Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 23
23FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Búið er að draga og raða niður leikjum í Lengjubikarnum, sem er deildarbikar­ keppni KSÍ. Þrjú lið af Vesturlandi taka þátt í efri deildum keppninnar. Það eru karla­ og kvennalið ÍA og karlalið Vík­ ings Ólafsvík. Mótið hefst hjá körl­ unum laugardaginn 15. febrúar og þá fá Skagamenn BÍ/Bolungarvík í heimsókn í Akraneshöllina. Einn­ ig leika í sama riðli í A­deildinni, KR, Breiðablik, Fram, Grinda­ vík, Keflavík og Tindastóll. Sama dag fer fram í Akraneshöllinni leik­ ur Víkings frá Ólafsvík og Selfoss. Með þessum liðum eru einnig í riðlinum, Haukar, KV, Valur, ÍBV, Víkingur R og Stjarnan. Skagakon­ ur hefja keppni í Lengjubikarnum föstudaginn 14. mars, fá þá FH í heimsókn í Akraneshöllina. Auk þessara tveggja liða eru í riðlinum: Afturelding, Fylkir, HK/Víkingur og Þróttur frá Reykjavík. þá Kjöri Íþróttamanns Akraness fyrir árið 2013 verður lýst að kvöldi þrettándans, mánudaginn 6. janúar nk. Friðþjófs­ bikarinn verður nú afhentur Íþróttamanni Akraness í 23. skipti en hann er gefinn til minningar um Friðþjóf Daní­ elsson og er gefinn af móður hans og systkinum. Valið fer fram með þeim hætti að það er tíu manna nefnd sem greið­ ir atkvæði um það hver hlýtur titilinn Íþróttamaður Akra­ ness en aðildarfélög innan ÍA tilnefna fulltrúa sína, alls fjórtán félög. Við val á Íþróttamanni Akraness hefur dóm­ nefnd til hliðsjónar afrek og keppni innanlands­ og utan, stöðu viðkomandi á landsvísu og umsagnir. Eftirfarandi eru tilnefndir: Badmintonmaður ársins: Egill G. Guðlaugsson Fimleikamaður ársins: Logi Örn Axel Ingvarsson Fimleikakonaársins: Harpa Rós Bjarkadóttir Hestaíþróttamaður ársins: Jakob Svavar Sigurðsson Íþróttamaður Þjóts: Laufey María Vilhelmsdóttir Kylfingur ársins: Valdís Þóra Jónsdóttir Keilumaður ársins: Magnús Sigurjón Guðmundsson Knattspyrnumaður ársins: Joakim Wrele Karatekona ársins: Hafdís Erla Helgadóttir Knattspyrnukona ársins: Birta Stefánsdóttir Knattspyrnumaður Kára: Almar Björn Viðarsson Kraftlyftingamaður ársins: Einar Örn Guðnason Körfuknattleiksmaður ársins: Hörður Kristján Nikulás­ son Sundmaður ársins: Ágúst Júlíusson Vélhjólaíþróttamaður ársins: Ernir Freyr Sigurðsson. mm Blakdeild Ungmennafélags Grund­ arfjarðar stóð fyrir firmamóti í blaki föstudaginn 27. desember. Þar mættust hin ýmsu fyrirtæki og reyndu við bikarinn eftirsótta. Það fór svo að lið Eika United hreppti bikarinn enda valinn maður í hverju rúmi þar. tfk ÍA hefur á að skipa ungu og efni­ legu liði í kvennafótboltanum sem á liðnu hausti vann sér rétt til keppni í Pepsídeildinni næsta sum­ ar. Ljóst er að ÍA mun áfram tefla fram sínum sterka og efnilega leik­ mannahópi, en einnig verður lið­ ið styrkt með nokkrum leikmönn­ um þegar líður að átökunum í efstu deild næsta vor. Magnea Guðlaugs­ dóttir þjálfari segir að eins og stað­ an er í dag muni það verða erlendir leikmenn. Þessa dagana eru undir­ ritaðir leikmannasamningar og ný­ verið var skrifað undir samninga við 16 leikmenn en þrjár stúlkur voru forfallaðar þegar undirskriftin fór fram. Magnea þjálfari segir að stúlkurnar hafi verið duglegar við æfingar í haust og vetur. Faxaflóa­ mót byrjar hjá meistaraflokki um miðjan janúar, en stúlkurnar sem spila enn með 2. flokki eru byrjað­ ar að spila í mótum þennan vetur­ inn. Flestar eru stúlkurnar í meist­ araflokki enn í 2. aldursflokki en Magnea segir ljóst að fyrir marg­ ar þeirra verði nóg að spila með meistaraflokknum næsta sumar svo álagið verði ekki of mikið. þá Hinn ungi og efnilegi íþróttamað­ ur, Helgi Guðjónsson úr Ung­ mennafélagi Reykdæla í Borgar­ firði, setti þann 19. desember nýtt Íslandsmet í 800 metra hlaupi. Helgi hljóp á tímanum 2,07,23 en gamla metið sem sett var árið 1981 var 2,09,60. Helgi er afar fjölhæf­ ur íþróttamaður. Hann er liðtæk­ ur í körfubolta, sundi og hlaupi en auk þess var hann markahæsti leik­ maður fjórða flokks í knattspyrnu í sumar, en hann æfir og spilar með Fram og sækir æfingar og mót úr Borgarfirði ásamt tveimur öðrum ungum piltum úr héraðinu. mm Úrvalsdeildarlið Skallagríms í körfubolta hefur tryggt sér starfs­ krafta Bandaríkjamannsins Ben­ jamin Curtis Smith. Benjamin kem­ ur inn í liðið í stað samlanda síns Oscar Bellfield sem Borgnesing­ ar leystu undan samningi fyrir jól. Benjamin leikur stöðu leikstjórn­ anda, hann er 176 cm á hæð og 26 ára gamall. Benjamin þekkir vel til íslenska körfuboltans en hann lék í fyrra með liði Þórs frá Þorláks­ höfn og var einn aðal burðarás liðs­ ins með 25,3 stig að meðaltali í leik og 5,2 fráköst og 5,8 stoðsending­ ar. Í fréttatilkynningu frá körfu­ knattleiksdeild Skallagríms kemur fram að miklar vonir séu bundnar við Benjamin. Vonast er til að hann komi sterkur til leiks og hjálpi lið­ inu að rétta hlut sinn í deildinni. Von er á Benjamin til landsins eftir áramót og er gert ráð fyrir að hann verði með Skallagrími þegar lið­ ið mætir ÍR í næsta leik 9. janúar í Borgarnesi. Benjamin er þriðji Bandaríkja­ maðurinn sem Skallagrímsmenn semja við á leiktíðinni en auk hans og Oscar Bellfield lék Mychal Green með liðinu í upphafi leiktíð­ ar. Liðið vermir 11. sæti Dominos deildarinnar með fjögur stig og hefur lokið ellefu leikjum af 22. hlh Skagamenn gengu fyrir jól frá samningi við tvo sterka leik­ menn fyrir komandi átök í 1. deildinni en samningarnir gilda til næstu tveggja ára. Um er að ræða tvo unga leikmenn sem búa yfir talsverðri leikreynslu þrátt fyrir ungan aldur en þetta eru leikmennirnir Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban og Ingimar Elí Hlynsson. Wentzel er 25 ára gamall örfættur leikmaður sem hefur allan sinn feril leikið með Aftureldingu en þar á hann að baki 160 leiki og hefur skorað í þeim 36 mörk. Ingimar er 21 árs miðjumaður. Hann hefur und­ anfarin ár verið á mála hjá FH en á síðasta tímabili lék hann sem lánsmaður með liði BÍ/Bol­ ungarvík. Ingimar hefur einn­ ig leikið með liðum KF og KS/ Leifturs og á að baki samanlagt 74 leiki með þessum liðum. mm Fimmtán í kjöri til Íþróttamanns Akraness Stúlkurnar sextán sem undirrituðu leikmannasamninga þriðjudagskvöldið 17. desember ásamt Haraldi Ingólfssyni framkvæmdastjóra Knattspyrnufélags ÍA. Gengið frá samningum við Skagakonur í fótboltanum Nýliðarnir í ÍA ásamt Gunnlaugi Jónssyni þjálfara. Ljósm. Ingunn. Wentzel Steinarr og Ingimar Elí til Skagamanna Benjamin Curtis Smith. Skallagrímsmenn ráða til sín nýjan leikmann Firmamót í blaki Dregið í Lengjubikarnum í fótbolta Helgi setti Íslandsmet í 800 metra hlaupi Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.