Skessuhorn - 22.01.2014, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 4. tbl. 17. árg. 22. janúar 2014 - kr. 600 í lausasölu
Í tilefni bóndadagsins bjóðum
við 15% afslátt af herra ilm og
snyrtivörum
Gildir fimmtudag, föstudag
og laugardag
Bóndadagurinn
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Frá Landnámssetri
Þórarinn Eldjárn segir
sögu Barónsins á
Hvítárvöllum
Næstu sýningar:
25. janúar kl. 20:00 UPPSELT
7. febrúar kl. 20:00 UPPSELT
8. febrúar kl. 17:00
15. febrúar kl. 20:00
Miðapantanir í síma 437 1600 og
landnam@landnam.is
Grundarfjarðarbær
færði foreldrum
nýbura í bæjar-
félaginu veglegar
gjafir í síðustu
viku. Það hefur
tíðkast undan-
farin ár að nýir
Grundfirðingar séu
boðnir velkomnir
með notalegri
samverustund.
Að þessu sinni var
hún í bókasafninu
þangað sem öllum
foreldrum þeirra 13
barna sem fæddust
árið 2013 var
boðið. Gjafirnar eru
útbúnar í samstarfi
við heilsugæslu-
stöðina og
leikskólann en þar
var að finna gagn-
legar upplýsingar,
pollagalla, fatnað
og bók. Ljósm. tfk
Löggæsla í landinu verður efld á
næstu misserum. Innanríkisráð-
herra hefur samþykkt tillögu þver-
pólitískrar þingmannanefndar að
forgangsröðun varðandi 500 millj-
óna króna
viðbótar-
f r a m l a g
til mála-
flokksins.
H e l s t u
á h e r s l u r
þessa átaks
til eflingar
löggæslu
eru: Að al-
mennum
lögreglu-
mönnum
á landinu verður fjölgað um 44 á
þessu ári, auk þess sem fjölgað hefur
verið sérstaklega um átta lögreglu-
menn til rannsókna skipulagðra
glæpa og kynferðisbrota. Auk-
ið öryggi almennings er lykilatriði
í tillögunum þannig að á þessu ári
fer aukningin helst til landsbyggð-
ar og þeirra staða sem helst skortir
lágmarksmannafla. Búnaður, þjálf-
un, tækjakostur og endurmenntun
lögreglumanna verður bætt sem og
aukið eftirlit lögreglu á vegum.
Tillögurnar miða við að lögreglu-
embættin geti strax auglýst laus-
ar stöður og að ráðningar geti haf-
ist frá og með 1. mars. Samkvæmt
tillögunni mun lögreglumönn-
um fjölga
um fimm
á Vestur-
landi, tvo
á Vest-
f j ö r ð -
um, tíu á
N o r ð u r-
landi, sex
á Austur-
landi, níu
á Suður-
landi og
tvo á Suð-
urnesjum. Þá mun lögreglumönn-
um fjölga um átta á höfuðborgar-
svæðinu og tveir verða ráðnir til
embættis ríkislögreglustjóra vegna
þjálfunar lögreglumanna. Þess
utan munu átta stöðugildi rann-
sóknarlögreglumanna bætast við
á höfuðborgarsvæðinu og Suður-
nesjum af viðbótarframlagi vegna
rannsókna á skipulagðri glæpa-
starfsemi og rannsókna á kynferð-
isbrotum.
mm
Rekstrarvandi hrjáir flest dval-
arheimili aldraðra á Vesturlandi
og eru þau flest rekin með tapi.
Rekstrartapið er mest hjá Dvalar-
heimilinu Höfða á Akranesi en það
hefur numið um 200 milljónum á
síðustu tveimur árum. Brákarhlíð
í Borgarbyggð, Silfurtún í Dölum
og Jaðar í Snæfellsbæ glíma einnig
við taprekstur. Reksturinn er í jafn-
vægi hjá Dvalarheimili aldraðra í
Stykkishólmi, Fellaskjóli í Grund-
arfirði og Barmahlíð á Reykhólum
en ekkert má út af bera. Í Stykk-
ishólmi er húsakostur þó algerlega
úreltur þar sem íbúar búa flest-
ir við mikil þrengsli og verða að
deila salernum. Ekki hefur fengist
fjármagn til úrbóta. Dvalarheimil-
in hafa hagrætt eftir megni í rekstri
og reynt að spara eins og hægt er.
Nú er svo komið að forstöðumenn
þeirra segja að ekki verði gengið
lengra. Kallað er eftir því að dag-
gjöld hækki um minnst 15% ef ekki
eigi illa að fara. Alls bíða tæplega 40
manns eftir komast í vist á heimil-
unum sem alls hafa hjúkrunar- og
dvalarrými fyrir 204 íbúa. Skessu-
horn birtir í þessu blaði úttekt á
dvalarheimilismálum aldraðra á
Vesturlandi. Auk þess er rætt sér-
staklega við forstöðumenn dvalar-
heimilanna á Akranesi og í Stykkis-
hólmi vegna vanda þeirra.
Sjá bls. 18-20. mþh
Lögreglumönnum verður
fjölgað um fimm á Vesturlandi
Slæm staða dvalarheimila
á Vesturlandi