Skessuhorn - 22.01.2014, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2014
Þorrinn hefst með bóndadeg-
inum nk. föstudag og eftir það
verður hvert þorrablótið á fætur
öðru í landshlutanum. Meðal ann-
arra viðburða í vikunni má nefna
byggðaþing í uppsveitum Borgar-
fjarðar, sem haldið verður í hátíðar-
sal Snorrastofu í gamla skólanum
í Reykholti nk. laugardag. Þetta og
ótalmargt fleira í Skessuhorni vik-
unnar.
Spáð er sunnanáttum fram á
sunnudag. Á fimmtudag er útlit
fyrir suðvestan 5-13 m/sek, snjó-
komu eða slyddu vestan til en úr-
komulítið eystra. Á föstudag verð-
ur áttin komin meira til austurs en
svipað veður sunnan- og vestan til.
Á laugardag er útlit fyrir hæga suð-
vestan átt með éljum við suður- og
vesturströndina, en úrkomulítið á
Norður- og Austurlandi. Á sunnu-
dag er útlit fyrir ákveðna austan-
og norðaustanátt. Slydda eða rign-
ing á austur helmingi landsins en
úrkomulítið vestan til. Á mánudag
er spáð minnkandi norðaustanátt
en úrkomu fyrir norðan og austan.
Hiti um og yfir frostmarki.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns. „Ætlar þú á þorra-
blót?“ Flestir í hópi svarenda fara á
þorrablót, eða 47,44% þeirra sem
svöruðu spurningunni. „Kannski“
sögðu 9,77%, „nei“ 37,21% og
5,58% vissu það ekki enn.
Í þessari viku er spurt:
Ertu ánægð/ur með árangur
strákanna á EM í handbolta?
Kokkar og húsráðendur í lands-
hlutanum sem bjóða upp á sérís-
lenskan mat á þorra eru Vestlend-
ingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Hafa ekki hellt
hvalabjórnum niður
BORGARF: Eigendur Brugg-
hússins Steðja í Borgarfirði
hafa ekki fargað hinum svokall-
aða Hvalabjór sem Heilbrigðis-
eftirlit Vesturlands hefur bann-
að sölu og dreifingu á. „Okk-
ur þykir bannið ósanngjarnt of-
beldi af hálfu embættismanna.
Það er meðal annars grundvall-
að á tilvísun í 29. grein matvæla-
laga en hún var felld úr lögun-
um árið 2009. Við erum búin að
leggja fram stjórnsýslukæru og
vonumst eftir skjótri niðurstöðu
því tíminn er að hlaupa frá okkur
ef við ætlum að ná þorrablóta-
markaðnum eins og ætlunin var.
Þetta er spurning um fimm þús-
und lítra af bjór. Ef hann verður
ekki seldur þá mun ríkið verða af
3,5 milljónum króna í gjöldum
og álagningu. Tap okkar, bæði
vegna kostnaðar sem við höf-
um lagt í framleiðsluna og síð-
an tekjutap, mun hlaupa á millj-
ónum. Öll þessi málsmeðferð er
búin að vera mjög undarleg,“
segir Dagbjartur Arilíusson, eig-
andi Steðja í samtali við Skessu-
horn síðdegis í gær. -mþh
Úr hitabeltinu á
ónegldu
LBD: Þrjú umferðaróhöpp, öll
án teljandi meiðsla á fólki, urðu
í umdæmi lögreglunnar í Borg-
arfirði og Dölum í liðinni viku.
Þar á meðal rann bílaleigubíll
útaf veginum við Síkisbrýrn-
ar nærri Ferjukoti í Borgarfirði.
Mikil hálka var á vettvangi og
ekki stætt eins og lögreglumaður
orðaði það. Á ferðinni var fjög-
urra manna fjölskylda frá Suður-
Kóreu. Hana sakaði ekki og bíll-
inn var ökufær þrátt fyrir óhapp-
ið. Fólkið var skelkað eftir þessa
lífsreynslu og þegar búið var að
draga bílinn upp á veginn bað
það lögregluna um að aka fyr-
ir sig þann spotta þar sem hlið-
arhalli var á veginum og hálkan
hvað mest. Bílaleigubíllinn var
á ónegldum snjódekkjum sem
hentuðu ekki við þessar aðstæð-
ur. Í dagbók lögreglu er því vellt
upp hvað eigendur bílaleigufyr-
irtækja séu að hugsa að senda er-
lenda ferðamenn og það frá hita-
beltisslóðum út í umferðina á Ís-
landi á ónegldum dekkjum. -þá
Kirkjubekkir
endurgerðir
BORGARNES: Næstkomandi
laugardag klukkan 14 verða ný-
endurgerðir kirkjubekkir tekn-
ir í notkun í Borgarneskirkju,
en viðgerð þeirra lauk nú í vik-
unni. Þá fer fram útför Ragn-
eyjar Eggertsdóttur, Eyju í Dal,
sem lést sl. föstudag í hárri elli,
102 ára gömul og sjö mánuð-
um betur. Á sunnudaginn fer svo
fram guðsþjónusta í Borgarnes-
kirkju klukkan 11:00. Séra Þor-
björn Hlynur Árnason messar
og kór kirkunnar syngur und-
ir stjórn Steinunnar Árnadóttur
organista. -mm
Gríðarmikið fuglalíf er nú við
norðanvert Snæfellsnes eins og
undanfarna vetur. Síldargöngur á
svæðinu eru minni en í fyrravet-
ur. Síldin dregur samt að sér tug-
þúsundir fugla og fjölmörg sjávar-
spendýr, sem bjóða upp á tilkomu-
mikla sýningu dag hvern. Nýlega
lauk árlegri talningu á vetrarfugl-
um, sem fram fer um hver áramót.
Náttúrufræðistofnun Íslands held-
ur utan um talninguna á landsvísu
en Náttúrustofa Vesturlands tekur
nú eins og áður virkan þátt í taln-
ingunni og gerir upp niðurstöð-
urnar fyrir norðanvert Snæfellsnes.
Nú var talið á sömu 14 svæðum og
í fyrra. Þau eru frá Hellissandi í
vestri til Álftafjarðar í austri. Taln-
Laugardaginn 25. janúar n.k. verða
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofn-
unar Vesturlands stofnuð. Stofn-
fundurinn verður í starfsstöð HVE
á Akranesi (sjúkrahúsinu) og hefst
kl. 12:00. Áður en dagskrá fundar-
ins hefst verður boðið upp á léttan
hádegisverð. Tilgangur stofnunar
Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofn-
unar Vesturlands, sem kalla má
Vesturlandsvaktina, er eftirfarandi:
1. Að sameina íbúa á Vest-
urlandi í stuðningi við HVE með
regnhlífarsamtökum, sem láti sig
varða stöðu þeirrar mikilvægu
þjónustu sem heilbrigðismálin eru.
2. Að standa vörð um öfluga
heilbrigðisþjónustu á Vesturlandi,
taka þátt í umræðu um stöðu mála,
þróun og mikilvægi þjónustunnar.
3. Að styðja við starfsemi
HVE með söfnun fjár til mikil-
vægra tækja, sem komi þeim íbú-
um á Vesturlandi til góða, sem nýta
þjónustu HVE.
4. Að verð góð viðbót við ann-
að gott starf einstaklinga, félaga og
fyrirtækja á svæðinu sem stutt hafa
starfsstöðvar HVE myndarlega á
liðnum árum og áratugum.
Sem kunnugt er sinnir Heil-
brigðisstofnun Vesturlands sjúkra-
húss- og heilsugæsluþjónustu á
átta stöðum á Vesturlandi, þ.e. á
Akranesi, í Borgarnesi, Búðardal,
Grundarfirði, Snæfellsbæ, Stykkis-
hólmi, Hvammstanga og Hólma-
vík. Heilbrigðisþjónustan á öllum
þessum stöðum gegnir veigamiklu
hlutverki. Þennan hornstein sam-
félagsins þarf að verja, ekki síst þeg-
ar fjárframlög til rekstrar og búnað-
ar hafa dregist saman með aukinni
kröfu um hagræðingu í rekstri. Sú
hagræðing hefur sín takmörk, því
þjónustustig heilbrigðisþjónustu á
Vesturlandi verður að mæta eðlileg-
um kröfum íbúanna um þá grunn-
þjónustu sem styrkir búsetu fólks á
svæðinu. Þá ber einnig að hafa að
leiðarljósi að öflug heilbrigðisþjón-
usta á Vesturlandi getur boðið upp
á tækifæri til að auka fjölbreytni í
heilbrigðisþjónustu á hagkvæman
hátt fyrir samfélagið. Sameinaðir
kraftar íbúanna til stuðnings þessari
grunnstoð skipta hér miklu máli.
Það er von þeirra sem undirbúa
verkefnið að sem flestir lýsi stuðn-
ingi við stofnun samtakanna, taki
þátt í stofnun þeirra og hvetji til al-
mennrar þátttöku þannig að Holl-
vinasamtök Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands verði jákvætt afl í þágu
samfélagsins á Vesturlandi.
-fréttatilkynning
Sjá nánar bls. 20.
Síldin auðgar mjög fugla- og sjávar-
spendýralíf við Snæfellsnes
ingarfólk sá 40.386 fugla af 38 teg-
undum og skráði auk þess 162 sjáv-
arspendýr af fjórum tegundum.
Síld hefur gengið inn á Breiða-
fjörð árlega frá 2006. Það hef-
ur haft mikil áhrif á fuglalífið sem
hefur verið óvenjulega auðugt
síðustu vetur, sérstaklega í Kol-
grafafirði og nágrenni. Svo er enn.
Fjöldi fugla í talningunni var lang-
mestur þar.
Fuglalíf í þessari talningu var
mjög ríkulegt miðað við meðalár.
Heildarfjöldi tegunda (38) var svip-
aður og síðustu tvö ár. Óvenjulega
mikið sást af sjávarspendýrum; 17
háhyrningar sáust í Grundarfirði
og 45 á utanverðum Kol grafafirði
og margir útselir (42) og landselir
(43), sérstaklega í Kolgrafafirði. Þá
sáust um 15 hnýðingar innan brú-
ar í Kolgrafafirði.
Máfar (7 tegundir), súlur og æð-
arfugl voru um 86% af öllum fugl-
um. Þúsundir súlna stungu sér án
afláts á eftir síld í Kolgrafafirði.
Þúsundir svartbaka og hvítmáfa
voru líflegir við fæðunám. Þá var
óvenjumikið um toppskarfa. Sam-
tals sáust hvorki meira né minna
en 32 ernir. Þar af voru 20 við Kol-
grafafjörð og Hraunsfjörð.
Talningarfólk var: Árni Ásgeirs-
son, Daníel Bergmann, Helgi Guð-
jónsson, Jón Einar Jónsson, Lúð-
vík Smárason, Róbert A. Stefáns-
son, Skúli Alexandersson, Smári
Lúðvíksson, Sæmundur Kristjáns-
son, Sævar Friðþjófsson, Thomas
Holm Carlsen, Véný Viðarsdóttir
og Viðar Gylfason. -fréttatilk.
Kort af talningarsvæðunum (blá) á norðanverðu Snæfellsnesi.
Talningarsvæðin á Snæfellsnesi hafa verið könnuð mismunandi lengi. Hér sést
þróun í fjölda fugla frá 2002-2013, annars vegar við Kolgrafafjörð og hins vegar
við Stykkishólm. Fuglalíf jókst í kringum um 2006 þegar síld gekk fyrst inn á fjörð-
inn og hefur verið sérlega mikið allra síðustu ár. Kvarði y-ássins er mismunandi á
gröfunum vegna fuglamergðar í Kolgrafafirði.
Stofnfundur Hollvinasamtaka
HVE verður á laugardaginn