Skessuhorn - 15.04.2014, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
Nú fer í hönd vika og helgi mikillar um-
ferðar. Rétt er að brýna fyrir öllum þeim
sem verða á ferðinni að fara með gát,
auk þess að huga vel að veðurspám, en
útlit er fyrir umhleypingasamt tíðarfar
næstu vikuna.
Útlit er fyrir umhleypinga núna í dymb-
ilvikunni og yfir páskana. Á miðviku-
dag er spáð vestan strekkingi og víða
éljum. Á fimmtudag lítur út fyrir hvassa
suðaustan- og sunnanátt seinni part-
inn með talsverðri rigningu eða slyddu,
en snjókomu inn til landsins. Á föstu-
dag verður suðvestan 13-20 með skúr-
um eða éljum, en hægari og bjartviðri
norðaustantil. Dregur úr vindi og éljum
með kvöldinu. Á laugardag er spáð suð-
vestan 5-13 og skúrir eða él, en bjartviðri
austan til. Á sunnudag er útlit fyrir suð-
austlæga átt, 3-10 m/s. Lítilsháttar væta
með köflum sunnan- og vestanlands en
bjartviðri Norðanlands. Hiti 0 til 7 stig,
hlýjast S-lands. Á mánudag: Hægviðri og
skýjað með köflum eða léttskýjað. Hiti 0
til 5 stig þessa daga.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hvað hyggstu gera um
páskana?“ „Verð heima í fríi“ sögðu
flestir, eða 45,63%. „Verð að vinna“
sögðu 19,66%. „Eitt og annað“ var svar
10,68%, „ferðast innanlands“ sögðu
9,47%, „fer til útlanda“ sögðu 7,52%,
„stunda námið“ var svar 3,88% og
3,16% vissu það ekki.
Í þessari viku er spurt:
Færð þú páskaegg?
Hin síunga Guðný Baldvinsdóttir í
Borgarnesi er Vestlendingur vikunnar
að þessu sinni. Hún fagnar 100 ára af-
mæli á föstudaginn eins og lesa má um
í blaði vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Fjöldi verkefna
hjá Borgarverki
BORGARNES: Borgarverk
í Borgarnesi hefur tryggt sér
þrjú verkefni sem stefnt er að
ráðast verði í nú í maíbyrjun.
Að sögn Óskars Sigvalda
sonar framkvæmdastjóra eru
þetta yfirlögn á Norður og
Vestursvæði og endurbygg
ing Svínvetningabrautar frá
Blönduósi. Fyrirtækið bauð
68 millj. kr. í verkið á Norð
ursvæði eða 84% af kostnað
aráætlun, 53 millj. kr. á Vest
ursvæði eða 82% af kostnað
aráætlun og loks 67,8 millj.
kr. vegna Svínvetninga
brautar sem var tæpum 3%
yfir kostnaðaráætlun. Í öll
um tilvikum var Borgarverk
lægstbjóðandi. Að auki seg
ir Óskar að yfirlögn á Aust
ur og Suðursvæði muni að
öllum líkindum vera unnin
af Borgarverki en fyrirtæk
ið var lægstbjóðandi í bæði
verkin í útboði hjá Vega
gerðinni. Eftir á hins veg
ar að ganga frá formlegum
samningi við Vegagerðina.
Tilboð Borgarverks hljóð
aði upp á 63,2 millj. kr. eða
4,3% yfir kostnaðaráætlun
á Austursvæði en um 173,3
millj. kr. eða 83% af kostn
aðaráætlun á Suðursvæð
inu. Óskar reiknaði með að
um 40 manns verði í vinnu
hjá fyrirtækinu í sumar til að
sinna verkefnunum.
–hlh
Skagamenn
mæta Grindavík
ÚTSVAR: Undir lok spurn
ingaþáttarins Útsvars á RÚV
sl. föstudagskvöld var dregið
í undanúrslit keppninnar, en
fjögur lið eru nú eftir. Í fyrri
viðureigninni sem fram fer
annað kvöld, miðvikudags
kvöld, mætast Reykjavík
og Fljótsdalshérað. Í þeirri
seinni mætast svo Akranes og
Grindavík, en Grindvíking
ar mörðu sigur gegn Mos
fellsbæ þegar liðin mætt
ust sl. föstudagskvöld. Akra
nes og Grindavík eigast við í
næstu viku, föstudagskvöld
ið 25. apríl, þegar sumarið á
eftir almanakinu að vera ný
gengið í garð.
–þá
Kannabisrækt
upprætt
SNÆFELLSNES: Síð
astliðinn laugardag stöðv
aði lögreglan á Snæfellsnesi
kannabisræktun. Fundust um
40 kannabisplöntur í rækt
un. Karlmaður á fertugsaldri
var handtekinn vegna máls
ins og viðurkenndi hann að
eiga efnin. Lögregla lagði
hald á plöntur auk tækja og
tóla sem notuð höfðu ver
ið við ræktunina. Lögregl
an minnir á fíkniefnasímann
8005005. Í hann má hringja
nafnlaust til að koma á fram
færi upplýsingum um fíkni
efnamál. Fíkniefnasíminn er
samvinnuverkefni lögreglu
og tollyfirvalda og er liður
í baráttunni við fíkniefna
vandann.
–þá
Aðalfundur Björgunarsveitarinnar
Lífsbjargar í Snæfellsbæ var haldinn
í húsi sveitarinnar, Björgunarstöðv
arinnar Vonar í Rifi sl. sunnudags
kvöld. Fyrir skömmu lét Davíð Óli
Axelsson að formennsku í félaginu
eftir 18 ár á formannsstóli. Ágætlega
var mætt á fundinn. Guðjón Björns
son fráfarandi varaformaður fór yfir
starf síðasta árs í skýrslu stjórnar.
Guðbjartur Þorvarðarson fór svo
yfir skýrslu gjaldkera. Voru báðar
þessar skýrslur samþykktar að lokn
um umræðum. Eftir kaffihlé sagði
svo Hafrún Ævarsdóttir frá starfi
Nú liggja fyrir breytingar á kennslu
fyrirkomulagi á vorönn í flestum
framhaldsskólum landsins en ákveð
ið hefur verið að bæta við kennslu
dögum eftir páska vegna verkfalls
kennara. Samkvæmt kjarasamningi
Félags framhaldsskólakennara og
Félags stjórnenda í framhaldsskól
um fá kennarar greiddar 40 þúsund
krónur vegna vinnu í a.m.k. fimm
daga sem bætt verður við skóla
dagatalið. Þetta er gert til að bæta
að einhverju leyti kennslutap sem
framhaldsskólanemendur urðu fyr
ir vegna verkfalls framhaldsskóla
kennara enda misstu nemendur
af fimmtán skóladögum á meðan
verkfallið stóð yfir.
Í Fjölbrautaskóla Vesturlands
á Akranesi verður fimm kennslu
dögum bætt við skóladagatalið eft
ir páska. Þá verður prófum þjappað
á átta daga og haldin á tímabilinu 8.
til 19. maí. Sjúkraprófum og próf
sýningu verður seinkað um einn
dag en brautskráning og skólaslit
verða á sama degi og ákveðið hafði
verið.
Á fundi kennara í Mennta
skóla Borgarfjarðar var ákveðið að
kenna samkvæmt stundaskrá fram
til fimmtudags í dymbilviku ásamt
fimmtudeginum 1. maí. Auk þess
verður kennslustundum eins föstu
dags dreift á síðdegi í maí og verð
ur það fyrirkomulag kynnt í skólan
um innan skamms.
Í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
stóð til að kenna til 7. maí en
kennsla verður nú til 13. maí. Með
þessu fyrirkomulagi verður próf
dögum því fækkað og próftaflan
þétt. Þá verður útskrift frestað um
einn dag og starfsdagur kennara
færður til. grþ
Sveitarfélögin á Snæfellsnesi hafa
nú hlotið endurnýjaða umhverfis
vottun á starfsemi sinni frá Earth
Check samtökunum. Theódóra
Matthíasdóttir hjá Nesvottun
skrifar: „Eins og árlegt er orðið
mætti óháður úttektaraðili, Hauk
ur Haraldsson gæðastjóri hjá Verk
ís, á svæðið í febrúar. Eftir tveggja
daga úttekt, þar sem meðal annars
var farið rækilega yfir öll þau gögn
sem verkefninu tengjast, mælti
hann með því að EarthCheck end
urnýjaði vottun sveitarfélaganna.
Það gekk eftir og nú skarta sveit
arfélögin á Snæfellsnesi gullvottun
frá EarthCheck samtökunum fyrir
árið 2014.“
Theódóra segir að vinna við um
hverfisvottun sveitarfélaganna á
Snæfellsnesi hafi byrjað árið 2003
og hefur verið unnið sleitulaust að
verkefninu síðan. „Í tilefni af tíu
ára afmæli verkefnisins er unnið
að gerð veglegs rits um umhverf
isvottun á starfsemi sveitarfélaga.
Ritið verður tvískipt; annars veg
ar verður fjallað almennt um um
hverfisvottanir og aðrar leiðir sem
sveitarfélög geta farið í átt að sjálf
bærara samfélagi. Hins vegar verð
ur fjallað um tíu ára reynslu sveit
arfélaganna á Snæfellsnesi af um
hverfisvottun EarthCheck og gerð
grein fyrir ávinningi hennar ásamt
þeim hindrunum sem orðið hafa á
veginum í gegnum tíðina, hvern
ig þeim hefur verið mætt og hvað
betur mætti fara til þess að ná enn
betri árangri. Ritið er ætlað sem
upplýsingarit fyrir íbúa sveitar
félaganna á Snæfellsnesi sem og
til leiðbeiningar fyrir önnur sveit
arfélög sem vilja bæta sig í um
hverfismálum. Stefnt er að því að
ritið verði tilbúið á næstu vikum
og verður því dreift á öll heimili
á Snæfellsnesi, svo íbúar geta far
ið að hlakka til.“
mm
Nýlega var sagt frá því í Skessu
horni að námsferð rúmlega tutt
ugu nemenda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga til Berlínar hefði ver
ið aflýst vegna verkfalls framhalds
skólakennara. Þegar sú frétt var
skrifuð var ljóst að þýskukennarinn
við skólann færi ekki með í ferðina
enda hefði það talist verkfallsbrot.
Því var ekki um námsferð að ræða
líkt og lagt var upp með í fyrstu. Þá
var heldur ekki ákveðið hvort nem
endur færu engu að síður í ferðina,
á sína eigin ábyrgð, enda áttu þeir
virka miða eftir að hafa safnað fyrir
ferðinni sjálfir.
Jón Eggert Bragason, skóla
meistari skólans sagði í samtali við
Skessuhorn að málið hefði endað
á farsælan hátt. „Krakkarnir komu
heim aðfararnótt miðvikudags í síð
ustu viku eftir að hafa lent í seinkun
vegna verkfallsaðgerða Isavia, þar
sem vinna var stöðvuð tímabund
ið á þriðjudeginum.“ Ljóst er því
að verkfallsaðgerðir í landinu hafa
haft töluverð áhrif á þessa einu ferð
nemendanna af Snæfellsnesi. „En
þetta fór allt vel. Þau fóru sem sagt
í ferðina með fararstjóra sem var
ótengdur skólanum og tveimur for
eldrum. Þau komu alsæl til baka,“
sagði Jón Eggert að lokum. grþ
Vel heppnuð Berlínarferð FSN
nemenda þrátt fyrir verkföll
Prófum seinkað og útskrift frestað
Ný stjórn í Lífsbjörg í Snæfellsbæ
Ný stjórn í Lífsbjörgu. Frá vinstri talið: Ægir Þór þórsson, Páll Stefánsson, Viðar
Páll Hafsteinsson, Sævar Örn Sveinbjörnsson og Hafrún Ævarsdóttir. Ljósm. Sóley.
unglingadeildarinnar Dreka á síð
asta ári. Þar kom fram að unglinga
starfið er metnaðarfullt og vex áhugi
ungmenna á svæðinu stöðugt fyr
ir starfinu. Við stjórnarkjör á aðal
fundinum var Viðar Páll Hafsteins
son kosinn nýr formaður, Sævar
Örn Sveinbjörnsson varaformaður,
Ægir Þór Þórsson gjaldkeri, Haf
rún Ævarsdóttir ritari og Páll Stef
ánsson meðstjórnandi. Sá síðasttaldi
er sá eini úr fráfarandi stjórn. Viðar
Páll segir að ný stjórn taki við góðu
búi, en mikil vinna var lögð af mörk
um hjá félögunum undir stjórn fyrr
verandi formanns við að byggja hús
næði sveitarinnar. Viðar segir að nú
geti félagsmenn í Björgunarfélaginu
Lífsbjörg einbeitt sér að innra starfi
og verði nú fyrst og fremst björgun
arsveit, en ekki byggingarfélag eins
og þegar húsbyggingin stóð sem
hæst. þá
Sveitarfélögin á Snæfellsnesi fá
endurnýjaða umhverfisvottun