Skessuhorn - 15.04.2014, Page 11
11MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
Konur í Kvenfélaginu Fjólu í Suð
urdölum afhentu í síðustu viku
höfðinglega gjöf, eina og hálfa
milljón króna, til kaupa á endur
lífgunartækinu Lúkasi í Dalina.
Nú sjá því sjúkraflutningsmenn
fram á að geta keypt tækið sem
kostar um tvær og hálfa milljón
króna með virðisaukaskatti. Gjöf
in var afhent formlega í Heilsu
gæslustöðinni í Búðardal. Þetta er
jafnframt stærsta einstaka gjöfin
sem Kvenfélagið Fjólan hefur gef
ið frá upphafi. Berglind Vésteins
dóttir, gjaldkeri Fjólunnar, segir
að þær hafi haft augastað á þessu
tæki og því kjörið að grípa tæki
færið þegar sjúkraflutningsmenn
með liðsinni Lionsmanna ákváðu
að ráðast í söfnunina. Berglind
sagði að Fjólan hefði áður styrkt
Heilsugæslustöðina í Búðardal, en
einnig ýmis félagasamtök og hópa,
svo sem deildir Auðarskóla. „Í ekki
stærra samfélagi er ekki lengi ver
ið að fara hringinn,“ segir Berg
lind. Í Fjólunni eru 22 félagskon
ur. Aðspurð um hvernig Fjólukon
um tekst að safna svona miklum
peningum til samfélagsmála, seg
ir hún að það sé að mestu í gegn
um veitingasölu í félagsheimilinu
Árbliki, aðallega í erfidrykkjum,
en einnig séu haldin spilakvöld og
bingó.
Eins og Skessuhorn hefur
greint frá er Lúkas endurlífgun
ar og hjartahnoðtæki til notkun
ar í sjúkrabifreiðum. Það veitir
stöðuga og fullkomna virkni sem
mannshöndin jafnast engan veg
inn á við. Stundum getur þurft að
beita endurlífgun í langan tíma og
hjartahnoð er erfitt fyrir manninn
eða mennina sem skiptast á um að
hnoða, en Lúkas þreytist ekki og
veitir jafna og góða aðhlynningu.
þá
Kvenfélagskonur úr Fjólunni afhentu peningagjöfina að viðstöddum sjúkraflutningsmönnum, lækni og hjúkrunarfræðingi
við Heilsugæslustöð HVE í Búðardal. Ljósm. bae.
Sjá nú fram á að geta keypt
Lúkas í Dalina
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Í Logalandi laugardaginn 19. apríl kl: 20:30.
Allra síðasta sýning.
Miðapantanir í síma 699-7938 eða
tölvupósi tota@vesturland.is
Vegna fjölda áskoranna verður aukasýning á revíunni
„Ert´ekk´að djóka“ (elskan mín)
eftir Bjartmar Hannesson í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Opið
Skírdagur, 12-14.
Föstudagurinn langi, 12-13, vakt lyfjafræðings.
Laugardagur 19. apríl, 10-14.
Páskadagur, 12-13, vakt lyfjafræðings.
Annar í páskum, 12-13, vakt lyfjafræðings.