Skessuhorn - 15.04.2014, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
Á föstudaginn langa, 18. apríl,
verða Passíusálmar Hallgríms
Péturssonar fluttir í Hallgríms
kirkju í Saurbæ af fjórum leik
konum. Þær eru Helga E. Jóns
dóttir, Margrét Guðmundsdóttir,
Ragnheiður K. Steindórsdóttir og
Steinunn Jóhannesdóttir. Kon
urnar fjórar flytja verkið í minn
ingu þeirra fjögurra kvenna sem
Hallgrímur sendi sálmana í eigin
handarritum vorin 1660 og 1661.
Þær voru Ragnhildur Árnadóttir í
Kaldaðarnesi, Helga Árnadóttir í
Hítardal, Kristín Jónsdóttir í Ein
arsnesi og að lokum Ragnheiður
Brynjólfsdóttir í Skálholti. Hall
grímur fól þessum konum sálm
ana í „forsvar“ og bað þær að sjá
til þess að þeim yrði ekki „varp
að undir bekk”. Í tengslum við
flutninginn gefur Hallgrímskirkja
í Saurbæ út bækling eftir Stein
unni Jóhannesdóttur, Svoddan
ljós mætti fleirum lýsa, þar sem
rakin er saga kvennanna fjögurra
og rýnt í ástæður Hallgríms fyr
ir að velja þær sem umboðsmenn
sína. Bæklingurinn verður af
hentur öllum sem sækja flutning
sálmanna í Saurbæ. Passíusálma
flutningurinn á föstudaginn langa
hefst klukkan 13:30 og stendur
til 18:45. Umsjón hefur Stein
unn Jóhannesdóttir. Arna Kristín
Einarsdóttir flautuleikari velur og
flytur tónlist milli þátta.
Pílagrímaganga
Þennan sama dag verður svo
farin svokölluð pílagrímaganga
frá Leirárkirkju og að Hall
grímskirkju í Saurbæ. Er áætl
að að göngugarpar safnist sam
an kl. 9.00 árdegis í Leirárkirkju
þar sem fram mun fara stutt
helgistund við upphaf göng
unnar en síðan verður farið
sem leið liggur inn Leirársveit
ina og því næst í gegnum Svarf
hólsskóg upp á Saurbæjarháls.
Þaðan verður svo gengið niður
að kirkjunni í Saurbæ og kom
ið í hlað áður en lestur Passíu
sálmanna hefst. Gangan er um
16,5 km að lengd og er áætlað
að hún taki um þrjár og hálfa
klukkustund. Um og yfir 30
manns hafa tekið þátt í göng
unni á undanförnum árum, en
þetta er í þriðja sinn sem hún
verður farin. Þykir gönguleið
in bæði þægileg yfirferðar og
falleg, þannig að áhugafólk um
gönguferðir ætti ekki að láta
þetta tækifæri fram hjá sér fara.
Ef frekari upplýsingar óskast
um gönguna má hafa samband
við umsjónarmenn hennar sem
eru þau sr. Elínborg Sturludótt
ir og sr. Flóki Kristinsson, segir
í tilkynningu vegna pílagríma
göngunnar og lestur passíusál
manna. þá
Óvíða er hefðin fyrir fótboltan
um jafn sterk og á Akranesi. Sagt
hefur verið að gengið í fótboltan
um hafi mikil og greinileg áhrif á
bæjarsálina. Sumir hafa meira að
segja viljað ganga enn langra í þess
ari greiningu og sagt að fylgni sé
á milli gengi þjóðarbúsins íslenska
og í knattspyrnunni á Akranesi. Það
er fótboltasagnfræðingur Skaga
manna Jón Gunnlaugsson sem hef
ur haldið þessu fram nokkuð sann
færandi að mörgum finnst. Reynd
ar hefur Jón í þessum kenningum
sínum einkum miðað við karlaliðið
af Akranesi. Núna er staðan reynd
ar þannig í fótboltanum í bænum
að það verða konurnar sem spila í
Pepsídeildinni næsta sumar, en ekki
karlarnir. Þeir verða að gera sér að
góðu að spila í 1. deild. Skagakonur
unnu sæti í Pepsídeildinni síðasta
haust þegar þær urðu í öðru sæti í
deildinni á eftir Fylki sem sigraði
í úrslitaleiknum. ÍA mætir einmitt
Fjórar konur lesa
Passíusálmana í
Hallgrímskirkju í Saurbæ
Frá æfingu í Saurbæ. Konurnar taldar frá vinstri: Arna Kristín Einarsdóttir,
Ragnheiður K. Steindórsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Helga E. Jónsdóttir
og Steinunn Jóhannesdóttir.
Skagahjartað mun slá örar í sumar
Spjallað við Magneu Guðlaugsdóttur þjálfara kvennaliðs ÍA í fótboltanum
Fylki í fyrsta leik í deildinni mið
vikudaginn 14. maí nk. á Akranes
velli. Áður mætast liðin í Lengju
bikarnum í Akraneshöllinni. ÍA
hefur staðið sig vel í þeirri keppni
enn sem komið er. Hefur unnið tvö
efstudeildarlið sannfærandi, fyrst
FH 2:1 og síðan Aftureldingu 3:2,
þar sem sigurinn átti að vera mun
stærri.
Góður mórall
grundvallaratriði
Magnea Guðlaugsdóttir þjálfar
meistaraflokk kvenna hjá ÍA núna
líkt og í fyrra. Aðspurð hvort að at
hygli fótboltaáhugamanna á Skag
anum muni beinast að kvennalið
inu í sumar, þegar það spilar í efstu
deild, segist hún vonast til þess að
fólk fjölmenni á leiki og hvetji liðið.
„Stelpurnar eru alla vega búnar að
leggja gríðarlega mikið á sig í vet
ur og það er hópur í kringum lið
ið sem mætir á leikina og styður og
hvetur liðið. Ég vona að það smiti
út frá sér til fleiri. Við ætlum okk
ur að setja okkar mark á Pepsídeild
ina í sumar, ætlum ekki að hverfa
þar. Við stefnum að því að verða
spútnik liðið í deildinni og stríða
bestu liðunum. Til að það takist
þá þurfum við númer eitt að vera
í mjög góðu formi og að mórallinn
í liðinu sé góðu. Góður mórall er
forsenda til að lið geti spilað vel og
það leynir sér ekkert í spilamennsk
unni þegar mórallinn er góður. Ef
hann verður góður hjá okkur verð
um við æðilegar,“ segir Magnea og
brosir.
Þarf að styrkja leik-
mannahópinn
Magnea segir að þegar liðið fór upp
um deild síðasta sumar, hafi verið
ljóst að framundan væri undirbún
ingstímabil þar sem æfingaálag yrði
meira en stúlkurnar í Skagaliðinu
voru vanar. Viðbrigðin yrðu tals
verð. Hópurinn var mjög stór síð
asta sumar, en eins og undanfarin
ár mikið af ungum stelpum, flest
ar enn í 2. flokki. „Það kom strax í
ljós að margar stelpnanna sem voru
á jaðrinum að komast í hópinn fyr
ir leikina voru ekki tilbúnar að tak
ast á við stífar æfingar. Það eru níu
hættar frá síðasta hausti sem er allt
of mikið. Ein hætti vegna náms, ein
vegna vinnu, ein vegna barnsburðar
og nokkrar vegna áhugaleysis. En
eftir eru „jaxlarnir“ sem ég kalla.
Þær hafa lagt sig gríðarlega fram
og eiga mikið hrós skilið. Við erum
með 19 manna hóp og þurfum að
styrkja leikmannahópinn fyrir mót
ið. Ég fæ að bæta við fjórum leik
mönnum, markmanni og þremur
útispilurum. Eins og staðan er í dag
koma þrjár frá Bandaríkjunum og
ein frá Englandi. Ég vona vissulega
að það standist að þarna séum við
að fá mjög sterka leikmenn. Að því
gefnu tel ég að við getum eins og ég
segi orðið spútnikliðið í deildinni.
Ég reikna fastlega með að deild
in verði tvískipt. Við viljum vera
best af liðunum sem teljast slakari
í deildinni, en munum samt ekki
sætta okkur við að tapa fyrir bestu
liðunum. Það verður spilað til sig
urs og númer eitt hjá okkur verður
að tryggja sæti okkar í deildinni.“
Mikil áhersla á þrek- og
úthaldsþjálfun
Í æfingunum í vetur hefur ekki síst
verið lögð áhersla á þrek og út
haldsþjálfun. Í því sambandi hefur
verið leitað í smiðju Silju Úlfars
dóttur frjálsíþróttaþjálfara hjá FH.
Þessi úthaldsþjálfun byggist mik
ið upp á stuttum sprettum en ekki
langhlaupum. Anna Lilja Valsdótt
ir hefur stjórnað þessum hlaupa
æfingum með Magneu og Mar
gréti Ákadóttur aðstoðarþjálfara.
„Það verður gaman að sjá útkom
una eftir veturinn hjá okkur en ég
held þetta ráðast rosalega mikið hjá
okkur í sumar af því hversu góðu
formi liðið verður í. Allir leikir hjá
okkur verða miklir baráttuleikir og
þá skilur oft á milli hvort liðið er
í betra formi. Við ætlum að vera
vel undirbúnar fyrir baráttuna og
þannig getum við strítt sterkari lið
unum í deildinni,“ segir Magnea.
Það hefur vakið athygli í leikj
unum í vetur að markvörður gamla
Skagaliðsins í kvennaboltanum,
Steindóra Steinsdóttir, hefur tek
ið fram hanskana að nýju og spilað
nokkra leiki með ÍA. Magnea segir
að með aðeins meiri leikæfingu sé
hún tilbúin að spila í efstu deild, en
eins og áður segir er einn útlensku
leikmannanna sem fenginn verð
ur til að styrkja liðið markvörður.
Markvörður ÍA frá síðasta sumri,
Guðrún Valdís Jónsdóttir, hefur
sótt um í bandarískum háskóla og
er skuldbundin félaginu innan skól
ans þótt margir mánuðir séu þar til
hún fer að spila með því.
Fótboltinn verður að
vera númer eitt
Magnea telur að umgjörðin sé góð
í kringum knattspyrnuna á Akranesi
um þessar mundir. Henni líst mjög
vel á nýja stjórn í Knattspyrnu
félagi ÍA. „Ég hef rætt við fólkið og
líst rosalega vel á það. Sama er við
hvern ég tala, það eru greinlega allir
samtaka í því að vinna í sömu átt. Ég
hef trú á því að á næstu fimm til tíu
árum munum við raða inn titlum og
það verði á ný litið upp til okkar af
landsmönnum. Ég er mjög bjartsýn
á þetta. Mér finnst samt vanta hjá
stelpunum á Skaganum í dag ákveð
inn aga og þetta viðhorf sem var
ríkjandi hjá gamla liðinu hérna ´89
´94, á gullaldartímanum í kvenna
boltanum á Akranesi. Það vantar að
allir séu að gefa sig alveg hundrað
prósent í þetta og fótboltinn sé núm
er eitt. Við erum mjög bjartsýnar
fyrir sumarið, ég og aðstoðarþjálfari
minn Margrét Ákadóttir. Við erum
spenntar að sjá hvernig stelpurnar
tækla Pepsídeildina, stóru deildina
á Íslandi. Draumur allra knattspyrn
ustelpna er að fá tækifæri til að sýna
hæfileika sína og það á stóra sviðinu.
Skagahjartað slær örar þetta sumar
ið hjá okkur þjálfurunum og stelp
unum. Og þó svo að við þurfum
að skóla nokkur erlend hjörtu til í
okkar hóp þá eru allar með hjartað
á réttum stað þegar í gulu treyjuna
er komið,“ sagði Magnea Guðlaugs
dóttir að endingu. þá
Frá úrslitaleik ÍA og Fylkis í 1. deildinni á Fylkisvelli síðasta haust.
Magnea Guðlaugsdóttir þjálfari kvennaliðs ÍA í fótboltanum sem spilar í Pepsídeildinni í sumar.