Skessuhorn - 15.04.2014, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
Ef þú klemmir uppá stag - úr þér kvensemina
Vísnahorn
Það er nú svo með þessa
blessaða stjórnmálamenn
okkar að um þá sýnist sitt
hverjum enda sýnist þeim líka ýmislegt um
hvern annan og ekki öllum það sama. Þeirra
starf á þó að vera að vinna landi og þjóð til
gagns en ýmislegt virðist tefja þá frá þeirri
göfugu hugsjón. Sigmundur Benediktsson,
sem titlar sig í kveðju til þingmanna skatt
borgari, sendi alþingismönnum bréf á dögun
um þar sem hann fór einarðlega fram á að þeir
bættu hegðan sína:
Kröfur til Alþingis:
Þingsins hegðun þarf að laga
þjaka samstarfs mein.
Hnakkrífst eins og hundaþvaga,
sem hefur fundið bein.
Kurteisi og virðing visnar,
vandans aukast tök.
Málvísi og greindin gisnar,
glymja haldlaus rök.
Stund þar ekki fæst af friði,
með fítonsyrðum berst.
Að borga þessu lastaliði
laun, er allra verst.
Farið þegar satt að segja,
sýndarmakk er böl.
Fari snarast þau að þegja,
sem þykir lygin völ.
Augljós mistök á að laga,
ekki þrasa hót.
Þannig verður sannreynd saga
sátt og yfirbót.
Þjóðinni svo þjóna reynið
það er ykkar starf.
Agaleysis auðnumeinið
uppræta hér þarf.
Vinnið djörf með vinaþjóðum,
verjið lögmál gilt.
Fullveldis svo gildum góðum
geti ekkert spillt.
Flokkar saman stilli strengi,
styrki málin góð.
Vandið gjörð svo vaxi gengi.
Vinnið okkar þjóð!
Virðing fjöldans víst mun tapast,
von ef finnst ei ný.
Aftur gæti álit skapast
ef þið hlítið því.
Um skyldu síst í vafa vefst ég,
valdsvið mitt er hér.
Háttvísi og hyggni krefst ég.
Þið hafið laun frá mér!
Hitt er svo eftir að vita hvort þessar bréfa
skriftir hafa einhver áhrif á þingmennina en
tæplega geta þeir versnað. Annars hafa lengi
kjósendur verið ánægðir hver með sinn flokk
og beðið málgagnanna þolinmóðir. Meðan
samgöngur voru ófullkomnari en nú er kom
fyrir að flokksmálgögnin söfnuðust svolítið
upp á pósthúsunum og varð þá nokkurt magn
sem þurfti að meðtaka í senn. Á valdatíma
Ólafs Jóhannessonar kom maður út af póst
húsinu á Skagaströnd með nokkur Tímablöð
í fanginu og reif utanaf og byrjaði að gleypa
í sig fagnaðarerindið með óduldum ánægju
svip. Páll Valdimar Jóhannesson átti þar leið
hjá og orti:
Að sér Tímann óspart dró,
ánægður hann kímdi og hló.
Það var Óli en ekki Jó,
en Framsóknarmaður þó!
Þessa vísu hef ég birt áður með lítilshátt
ar breyttu orðalagi og eignaða öðrum höfundi
og leiðréttist það hér með og allir beðnir vel
virðingar á vitleysunni í mér.
Það hefur lengi loðað við alla stjórnmála
flokka að þeir reyni að hygla sínum liðsmönn
um hver með sínum hætti eftir því sem best
hentar hverju sinni. Um forstjóra fyrir ríkis
fyrirtæki sem á sínum tíma var sagt að hefði
vinnukonuútsvar kvað Stefán Stefánsson frá
Móskógum:
Aldrei mikið útsvar bar
eða skatta og þess konar
sem heldur ekki von til var?
Vinnukona Framsóknar?
Meðan það þótti ennþá nokkuð eðlilegt
viðhorf að ríkið stæði við sínar fjárhagslegu
skuldbindingar voru stjórnmálamenn stund
um að hnýta hver í annan fyrir ógætilega
meðhöndlun á vorum sameiginlegu sjóðum.
Á einhverjum tímapunkti kvað Karl Friðriks
son:
Ríkiskyllir rausn sem bar
rýrna vill að neðan
af því frillur Framsóknar
fara illa með hann.
Ekki var Tíminn heldur að hlífa sínum and
stæðingum og 23. júní 1959 birtist þessi nafn
laus í þeim fjölmiðli Framsóknar:
Á því kenna íhaldsmenn,
orðstír grenna svikin.
Rofnir brenna eiðar enn,
orð og pennastrikin.
Nú nálgast vorið okkur óðfluga og allavega
ekki hægar en um einn dag í einu. Í tilefni
þess væri ekki úr vegi að rifja upp þessar vor
vísur eftir Andrés Björnsson frá Bæ:
Ársól skær á himni hlær,
hvetur blærinn sporið.
Blánar sær og grundin grær.
Gleði færir vorið.
Grænkar hlíð og ljóðar lind
lágt við fríðan hólinn.
Harpa blíð sem helgimynd
hjalla skrýðir stólinn.
Það er margt sem breytist á einum manns
aldri eða svo og ekki síst viðhorf manna til
hinna ýmsustu hluta og spurningin um hvað
er feimnismál og hvað ekki. Fyrir svona sirka
löngum mannsaldri ólst upp piltur hjá systk
inum sem voru hið mætasta fólk á allan hátt.
Eitt sinn var húsmóðirin að þvo þvott og
breiddi síðan nærpils sitt yfir balann og bað
piltinn að hengja þvottinn á snúru. Eitthvað
vafðist þetta fyrir drengnum en húsbóndinn
sá til hans og stakk að honum þessari vísu:
Flest má viðra og færa í lag
svo fúni ekki eins og sina
ef þú klemmir uppá stag
úr þér kvensemina.
Margir hafa gaman af vísum sem bet
ur fer enda væri að öðrum kosti tilgangslít
ið að halda úti svona þætti. Sigurður Jónsson
frá Brún var um margt stórmerkur maður og
að mínu áliti verulega vanmetinn sem skáld
en fékk sinn skammt fyllilega mældan af erf
iðleikum lífsins. Ekki virðist hafa legið allt of
vel á honum þegar hann kvað:
Kólnar inni. Kólna hót.
Krap á sinnis vökum.
Helst þá finnur hrakningsbót
hugur minn í stökum.
Ætli það sé svo ekki við hæfi að enda þenn
an þátt á vísu eftir Braga Jónsson frá Hoftún
um öðru nafni Ref bónda:
Dvalins glóð ei dvínar góð,
drótt sá óður kætir.
Eru ljóðin Íslands þjóð
andans fóðurbætir.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í áttunda,
níunda og tíunda bekk grunnskóla var hald
in í Fjölbrautaskóla Vesturlands 11. mars
síðastliðinn. Fyrsta keppnin af þessu tagi
var haldin í febrúar 1999 og hefur hún ver
ið haldin árlega síðan. Að þessu sinni voru
keppnisgögn búin til af kennurum Fjöl
brautaskóla Vesturlands og notuð við þrjá
skóla. Hinir tveir voru Borgarholtsskóli og
Fjölbrautaskóli Suðurnesja. Keppendur hafa
jafnan verið á annað hundrað og koma frá
grunnskólum frá Kjalarnesi í suðri allt norð
ur til Hólmavíkur. Í ár voru þátttakendur
138, sem er fjölgun frá því í fyrra þegar 128
tóku þátt.
Síðastliðinn föstudag var tíu efstu nemend
um í hverjum árgangi boðið til athafnar á sal
FVA þar sem veittar voru viðurkenningar og
verðlaun fyrir góðan árangur í keppninni.
Þeir sem voru í tíu efstu sætunum í hverjum
árgangi fengu viðurkenningarskjöl og fengu
þeir sem voru í þremur efstu í hverjum ár
gangi peningaverðlaun að auki: 20.000 kr.
fyrir fyrsta sæti, 15.000 kr. fyrir annað sæti
og 10.000 kr. fyrir það þriðja. Líkt og und
anfarin ár var allur kostnaður við keppnina
greiddur af Norðuráli, sem einnig gaf veit
ingar og verðlaunin.
Hér eru taldir upp þeir sem voru í tíu efstu
sætum í hverjum árgangi. Þeir sem eru í 4.
til 10. sæti eru taldir upp í stafrófsröð. grþ
8. bekkur
1. sæti: Bjartur Finnbogason, Grundaskóla.
2. sæti: Aníta Jasmín Finnsdóttir, Grunn
skólanum í Borgarnesi.
3. sæti: Aron Máni Nindel Haraldsson,
Grunnskóla Borgarfjarðar Kleppjárnsreykj
um.
4. 10. sæti: Andri Freyr Eggertsson,
Grundaskóla.
4. 10. sæti: Eydís Lilja Kristínardóttir, Auð
arskóla.
4. 10. sæti: Kristmann Dagur Einarsson,
Grundaskóla.
4. 10. sæti: Oliver Konstantínus Hilmars
son, Brekkubæjarskóla.
4. 10. sæti: Ragnar Líndal Sigurfinnsson,
Grunnskóla Borgarfjarðar Varmalandi.
4. 10. sæti: Svava Kristín Jónsdóttir,
Grunnskólanum í Borgarnesi.
4. 10. sæti: Þorgrímur Magnússon, Grunn
skólanum í Borgarnesi.
9. bekkur
1. sæti: Halla Margrét Jónsdóttir, Brekku
bæjarskóla.
2. sæti: Steinþór Logi Arnarsson, Auðar
skóla.
3. sæti: Svavar Örn Sigurðsson, Brekkubæj
arskóla.
4. 10. sæti: Alexander Helgi Sigurðsson,
Brekkubæjarskóla.
4. 10. sæti: Bjarni Guðmann Jónsson,
Grunnskólanum í Borgarnesi.
4. 10. sæti: Eiríkur Hilmar Eiríksson,
Brekkubæjarskóla.
4. 10. sæti: Inga Lilja Þorsteinsdóttir,
Grunnskólanum í Borgarnesi.
4. 10. sæti: Kári Haraldsson, Klébergsskóla.
4. 10. sæti: Kristján Elí Hlynsson, Heiðar
skóla.
4. 10. sæti: Logi Örn Axel Ingvarsson,
Heiðarskóla.
4. 10. sæti: Sveinn Logi Kristinsson,
Grundaskóla.
10.bekkur
1. sæti: Anna Margrét Þorsteinsdóttir,
Grunnskólanum í Borgarnesi.
2. sæti: Anna Chukwunonso Eze, Grunda
skóla.
3. sæti: Selma Dís Hauksdóttir, Brekkubæj
arskóla.
4. 10. sæti: Árni Teitur Líndal Þrastarson,
Grundaskóla.
4. 10. sæti: Bergþóra Hrönn Hallgrímsdótt
ir, Brekkubæjarskóla.
4. 10. sæti: Björk Gísladóttir, Lýsuhóls
skóla.
4. 10. sæti: Margrét Helga Magnúsdóttir,
Grunnskólanum í Borgarnesi.
4. 10. sæti: Matthías Finnur Vignisson,
Brekkubæjarskóla.
4. 10. sæti: Patrekur Björgvinsson, Brekku
bæjarskóla.
4. 10. sæti: Sindri Þór Harðarson, Grunda
skóla.
4. 10. sæti: Vigdís Erla Sigmundsdóttir,
Heiðarskóla.
Úrslit í stærðfræðikeppni grunnskólanemenda á Vesturlandi
Keppendur sem urðu í þremur efstu sætunum í öllum árgöngum.
Hér eru þeir sem mættu af nemendum 10. bekkjar. Hér eru tíu efstu úr 9. bekk. Hér eru þeir sem mættu af nemendum 8. bekkjar.