Skessuhorn - 08.10.2014, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014
Stækkun
kirkjugarðsins
að ljúka
BORGARNES: Undanfarið
hefur verið unnið að stækkun
kirkjugarðsins í Borgarnesi
og hillir nú undir lok fram-
kvæmda. Reiknað er með
verklokum í þessum mán-
uði en verkið er unnið á veg-
um Borgarneskirkjugarðs.
Borgarverk átti lægsta tilboð
í verkið, tæpar 27 milljónir.
Fleiri undirverktakar koma
að því, meðal annars Sig-
urgarðar, en meðfylgjandi
mynd er einmitt af heima-
síðu fyrirtækisins frá fram-
kvæmdum fyrr í vikunni.
-mm
Leiðrétting
Í síðasta tölublaði Skessu-
horns var sagt frá opn-
un hannyrðaverslunarinnar
Gallery Snotru á Akranesi.
Þar birtist mynd af Sigurlínu
Júlíusdóttur að afgreiða einn
af sínum fyrstu viðskiptavin-
um, Skagakonuna Kristínu
Ragnarsdóttur. Í fréttinni var
Kristín ranglega sögð Agn-
arsdóttir en hún er Ragn-
arsdóttir. Það leiðréttist hér
með og beðist velvirðingar á
mistökunum.
-grþ
Sex sækja um
FVA
AKRANES: Umsóknar-
frestur um stöðu skólameist-
ara við Fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi rann út
mánudaginn 22. september
sl. Mennta- og menning-
armálaráðuneyti bárust sex
umsóknir um stöðuna. Um-
sækjendur eru: Ágústa Elín
Ingþórsdóttir, Gylfi Þorkels-
son, Hafdís Fjóla Ásgeirs-
dóttir, Hafliði Páll Guð-
jónsson, Jens Benedikt Bald-
ursson og Þorbjörg Ragn-
arsdóttir. Miðað er við að
menntamálaráðherra skipi
í stöðuna til fimm ára frá 1.
janúar 2015, að fenginni um-
sögn skólanefndar.
–mm
Persónu
afsláttur hækki
LANDIÐ: Samtökin Lands-
byggðin lifi, hélt aðalfund
sinn nýverið á Árskógsströnd
í Dalvíkurbyggð. Þar var eft-
irfarandi ályktun samþykkt:
„Aðalfundur samtakanna
Landsbyggðin lifi leggur til
að persónuafsláttur verði
hækkaður þannig að skatt-
leysismörk verði jafnhá og
lágmarksframfærsluviðmið
einstaklings eins og þau eru
metin af velferðarráðuneyt-
inu. Það hlýtur að flokkast
undir mannréttindi að vinna
að þessu markmiði.“
-mm
Áhugafólki um íþróttir á Vestur-
landi er bent á að núna er Íslands-
mótið í körfuknattleik að hefjast
þar sem nokkur lið úr landshlutan-
um verða í eldlínunni. Stuðnings-
menn eru hvattir til að fylgja sínum
liðum í vetur og hvetja til dáða.
Næstu dagana er spáð norðan- og
austanátt í landinu, með strekk-
ingi og svolítilli úrkomu fyrir norð-
an en hægari vindi og björtu syðra.
Gera má ráð fyrir gosmengun í
lofti í þessari vindátt. Hiti verður
eitt til tíu stig að deginum og hlýj-
ast sunnanlands. Frá laugardegi
er spáð að kólni smám saman. Á
sunnudag og mánudag er útlit fyr-
ir suðlæga eða breytilega átt, skúr-
ir eða él víða um land og fremur
svalt í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: Á að leyfa sölu áfeng-
is í matvöruverslunum? Naum-
ur meirihluti er á því að það eigi
ekki að gera. „Nei alls ekki“ sögu
52,83%. „Já léttvín og bjór“ var svar
25,94%. „Já allt vín“ sögðu 16,51%.
Þeir sem ekki höfðu skoðun á mál-
inu, merktu við „veit ekki“ voru
4,72%.
Í þessari viku er spurt:
Hvaða fjölmiðli treystir þú best?
Starfsmenn LbhÍ sem sameigin-
lega sendu ALLIR frá sér yfirlýs-
ingu í gær, eru Vestlendingar vik-
unnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Kranabíll með áföstum tengivagni í
eigu Vegagerðarinnar fór útaf Borg-
arfjarðarbraut á móts við Steðja í
Flókadal síðastliðinn miðvikudag.
Engan sakaði. Óhappið varð þeg-
ar kraninn og bíll voru að mætast
á veginum. Gaf þá vegkanturinn sig
en hann var gegnsósa eftir óvenju
miklar rigningar undanfarnar vik-
ur. Tókst ökumanninum að kom-
ast í veg fyrir að tækið færi á hliðina
með því að stýra því útaf. Óhapp
þetta gerðist einungis nokkrum
metrum frá þeim stað sem vegkant-
ur gaf sig í júní með þeim afleiðing-
um að mjólkurbíll með tengivagni
lenti útaf og valt. Kranabíll þessi er
um 25 tonn að þyngd. Hann er not-
aður af brúarvinnuflokki Vegagerð-
arinnar og var verið að færa tækin
að aflokinni brúarsmíði yfir Geitá á
Kaldadal.
Unnið var að því á fimmtudag-
inn að koma kranabílnum aftur upp
á veg. Sökum þyngdar hans þurfti
að taka úr vegöxlinni til að hægt
væri að draga bílinn upp á veg að
nýju. Samtímis þurfti að halda við
bílinn með gröfu til að hann færi
ekki á hliðina. Vél og gröfumað-
ur frá Jörva á Hvanneyri unnu það
verk. Sérstakrar varúðar þurfti auk
þess að gæta við verkið þar sem
stofnæð hitaveitu OR frá Deildar-
tungu að Borgarnesi og Akranesi
var undir þeim stað þar sem krana-
bíllinn fór útaf.
mm/ Ljósm. Björn
Húnbogi Sveinsson.
Nýtt mötuneyti var tekið í notk-
un í Grundaskóla á Akranesi mið-
vikudaginn 1. október síðastliðinn.
Framkvæmdin fólst í því að matsal-
urinn var stækkaður um 41,2 fer-
metra og eldhúsið um 12,5 fermetra.
Ennfremur voru tæki í eldhúsi end-
urnýjuð að mestu leyti. „Þetta eru í
fermetrum talið kannski ekki mikl-
ar breytingar en það er samt ótrú-
lega mikill munur. Við vonum að
Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi
sínum 2. október síðastliðinn erind-
isbréf vegna starfshóps um Sem-
entsreitinn. Hlutverk starfshópsins
er að móta tillögur um hvernig stað-
ið verður að skipulagi og uppbygg-
ingu á lóðum verksmiðjunnar sem
Akraneskaupstaður fékk með sam-
komulagi við Sementsverksmiðj-
una hf. í sumar. Hópnum er falið að
leiða vinnu um skipulag á Sements-
reitnum, að leiða samráðsferli við
íbúa og að móta tillögur um hvernig
sé best að standa að uppbyggingu á
Sementsreitnum til lengri tíma litið.
Stefnt er að því að tillögur að nauð-
synlegum breytingum á aðalskipu-
lagi verði lagðar fyrir skipulags- og
umhverfisnefnd fyrir 1. ágúst 2015
og að tillögur að deiliskipulagi og
tillögur um uppbyggingu svæðisins
liggi fyrir í árslok 2015.
Starfshópinn skipa Rakel Óskars-
dóttir bæjarfulltrúi, sem jafnframt er
formaður, Bjarnheiður Hallsdóttir
sem rekur ferðaskrifstofu og Dagný
Jónsdóttir framkvæmdastjóri rekstr-
arsviðs Samgöngustofu. Með starfs-
hópnum vinna Sigurður Páll Harð-
arson framkvæmdastjóri umhverfis-
og framkvæmdasviðs Akraneskaup-
staðar og Hildur Bjarnadóttir skipu-
lagsfulltrúi.
-mm
Starfshópur skipaður um
framtíð Sementsreitsins
Sementsreiturinn er hér afmarkaður með rauðum og bláum línum. Sementsverk-
smiðjan ehf. heldur í 15 ár svæðinu sem afmarkað er með bláum línum til vinstri
(lóð nr. 11). Þar eru m.a. sementsgeymarnir. Akraneskaupstaður fær nú forræði
yfir lóðunum sem afmarkaðar eru með rauðum línum. Mannvirki sem Sements-
verksmiðjan leigir af Akraneskaupstað innan rauða svæðisins er merkt eru merkt
með bláum skálínum.
Mötuneytið í Grundaskóla stækkað
við fáum nokkur borð í viðbót en
með þessari breytingu fáum við
mun meira rými í matsalinn. Það er
því meira pláss og minni hávaði og
ef við fáum fleiri borð, þá geta fleiri
borðað í einu. Frá vistvænu sjónar-
horni er þetta því miklu betra. Við
erum mjög sátt,“ segir Hrönn Rík-
harðsdóttir skólastjóri Grundaskóla
í samtali við Skessuhorn.
Þá auðveldar breytingin á eld-
húsinu starfsfólki að elda matinn frá
grunni. „Nú eigum við möguleika á
að elda meira frá grunni og hlökk-
um til þess. Við óskuðum meðal
annars eftir þessari stækkun vegna
þess, til að koma til móts við nem-
endur og foreldra hvað það varð-
ar,“ bætir Hrönn við. Að auki má
þess geta að nýtt fólk tók við rekstri
mötuneytisins þegar það var opn-
að. Hugrún Vilhjálmsdóttir tók við
sem matráður og með henni starfar
Díana Carmen Llorens.
grþ
Sigurður Arnar aðstoðarskólastjóri,
Hugrún og Díana Carmen í nýja eld-
húsinu.
Ljósm. Facebook.com/Grundaskóli.
Nemendur í Grundaskóla eru að vonum ánægðir með að mötuneytið hefur verið
opnað á nýjan leik. Ljósm. Sigurður Arnar Sigurðsson.
Kranabíll útaf á Borgarfjarðarbraut