Skessuhorn - 08.10.2014, Síða 19
19MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Mánudaginn 20. október nk. verður hunda- og kattahreinsun
í þjónustumiðstöð Akraness að Laugarbraut 6 (gamla slökkvi-
stöðin). Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti
nr. 941/2002 er hunda- og kattaeigendum skylt að láta orma-
hreinsa dýr sín árlega. Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir
annast hreinsunina og er ormahreinsun hunda og katta innifalin
í leyfisgjaldi.
Hundahreinsun verður frá kl. 16.30-19.30 og kattahreinsun
frá kl. 20.00-22.00.
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar (ath. greiða þarf
með peningum):
Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta og
hundafári, verð kr. 3.000.
Ófrjósemissprauta, verð kr. 2.500 - 4.000.
Örmerkingu hunda og katta, verð kr. 3.000.
Perlutex ófrjósemistöflur í hunda og ketti, verð kr. 2.000
Bólusetningu gegn kattafári, verð kr. 3.000.
Óskráðir hundar og kettir eru velkomnir og geta eigendur þeirra
nálgast skráningargögn á staðnum.
Seinni hreinsun verður laugardaginn 1. nóvember, nánar
auglýst síðar.
Dýraeigendur hunda og katta eru hvattir til að kynna sér samþykktir
um hunda- og kattahald á Akranesi á vef Akraneskaupstaðar.
Nánari upplýsingar veitir dýraeftirlitsmaður í síma 898-9478
eða dýralæknir í síma 892-3230.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2014
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudaginn 16. október
Föstudaginn 17. október
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Jólaútsaumur
Opið:
Mánudaga – föstudaga kl. 9 – 18
Laugardaga kl. 11 - 15
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - Sími 511 3388
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Helga Garðarsdóttir hefur ver-
ið ráðin í stöðu hjúkrunarforstjóra
hjúkrunar- og dvalarheimilisins
Barmahlíðar á Reykhólum frá með
1. nóvember. Helga tekur við starfi
Þuríðar Stefánsdóttur sem gegnt
hefur starfinu síðastliðin níu ár.
Helga er menntuð bæði sjúkraliði
og hjúkrunarfræðingur og hefur
starfað á ýmsum heilbrigðisstofn-
unum í Reykjavík. Þá er hún einn-
ig rekstrarhagfræðingur frá Bifröst
og starfaði hjá gamla Landsíman-
um fyrir mörgum árum.
Fjölskyldan á tveimur
stöðum til að byrja með
Helga starfar nú á Krabbameins-
deild Landspítalans og er búsett í
Reykjavík ásamt Má Guðmunds-
syni eiginmanni sínum og fjórum
börnum þeirra. Hún segist vera
spennt fyrir nýja starfinu þó að útlit
sé fyrir að fjölskyldan verði tvístr-
uð um tíma. „Ég tek formlega við
starfinu 1. nóvember en verð með
annan fótinn á Reykhólum í októ-
ber þar sem ég mun kynnast starf-
inu betur. Ég hlakka til að byrja en
það er þó enn í vinnslu hvernig við
hjónum munum greiða úr flutning-
unum. Við eigum tvö börn sem eru
í menntaskóla og því munu þau ekki
flytja með okkur vestur. Ég mun þó
á komandi vikum hefja flutning til
Reykhóla og koma yngstu börnin
með mér á meðan Már verður fyrir
sunnan með eldri börnin. Það lítur
því út fyrir að fjölskyldan muni búa
á tveimur stöðum til að byrja með,“
segir Helga.
Tekur árlega þátt í
sauðburði
Helga er ættuð af Vestfjörðum og
bjó til átta ára aldurs á Ísafirði.
Þaðan flutti hún með fjölskyldu
sinni til Reykjavíkur og hefur búið
þar síðan. Fyrir sunnan kynntist
Helga vinkonu sinni Ástu Sjöfn
Kristjánsdóttur ábúanda á Litlu
Grund og skólastjóra grunnskól-
ans á Reykhólum. Þær vinkon-
urnar hafa haldið vináttu í gegn-
um árin og hefur Helga oft á und-
anförnum árum tekið þátt í sauð-
burði á Litlu Grund. „Ég hef síð-
ustu sjö ár farið á hverju vori með
börnin mín til Ástu þar sem við
tökum þátt í sauðburðinum. Þar
á ég líka kind sem Ásta gaf mér í
afmælisgjöf fyrir nokkrum árum,“
segir Helga um tengingu sína við
Reykhóla.
Helga segist ekki hræðast við-
brigðin við að flytja í sveitina. Hún
þekki ágætlega til Reykhóla og
stefni á að verða virkur þátttakandi
í samfélaginu. „Það verða mik-
il viðbrigði að flytja úr borginni í
sveitina en ég hef engar áhyggjur
af því. Einhvern hluta af mér lang-
ar mikið að prófa að búa í sveit. Ég
stefni á að taka virkan þátt í samfé-
laginu og kynnast fólkinu og er því
ekki hrædd um að leiðast á Reyk-
hólum,“ segir Helga Garðarsdótt-
ir. jsb
Byggðarlag eins og Búðardalur og
Dalirnir í heild þarf á ýmissi þjón-
ustu að halda. Björn Anton Ein-
arsson áttaði sig á því eftir að hafa
unnið í mörg ár að viðhaldi vél-
búnaðar hjá MS í Búðardal. Toni,
eins og hann er jafnan kallaður,
er menntaður stál- og járnsmið-
ur. Hann ákvað fyrir einu og hálfu
ári að fara út í sjálfstæðan atvinnu-
rekstur. Verkefnin hafa verið næg
eftir að verkstæðið var opnað og
sem dæmi voru sex menn í vinnu
hjá BA Einarssyni ehf, eins og fyr-
irtækið heitir, í júní- og júlí þegar
mest var að gera.
Toni fékk verkstæðisaðstöðu að
Vetrarbraut 8 sem er hús á bakvið
verslun Samkaups. Er þar í rúm-
lega þrjúhundruð fermetra hús-
næði. Á skiltinu fyrir BA Einarsson
stendur bílaverkstæði, stálsmiðja og
vélaviðgerðir. Verkstæðið var form-
lega opnað í mars í vor. „Ég byrjaði
reyndar tæplega ári áður og það hafa
verið næg verkefni alveg frá upp-
hafi. Ég hef unnið mikið fyrir Þör-
ungaverksmiðjuna og svo saltverk-
smiðjuna Norðursalt á Reykhólum.
Það eru áframhaldandi verkefni hjá
báðum fyrirtækjunum og er ég m.a.
nýbúinn að smíða saltþurrkara fyr-
ir Norðursalt. Framleiðslustjór-
inn þar er gríðarlega ánægður með
þurrkarann, enda tekur núna hálfan
þriðja tíma að þurrka það sem tók
vel á annan sólarhring áður. Svo hef
ég smíðað allt fyrir þá hérna nið-
ur í Sæfrosti í gamla sláturhúsinu,
svo sem frystiböndin. Það eru næg
verkefni hérna á þessu svæði sýnist
mér,“ segir Toni.
Gert við ýmislegt á
verkstæðinu
Toni segir að talsvert sé einnig að
gera í bíla- og vélaviðgerðunum.
„Hingað koma menn með alls-
kyns tæki til viðgerða. Auk bíla eru
þeir t.d. að koma með fjórhjól og
sexhjól. Reyndar sinnum við við-
gerðum á öllu mögulegu. Meira
að segja barnakerrum og stól-
um,“ segir Toni og brosir. Hann
hefur verið að viða að sér tækjum
að undanförnu og er m.a. nýlega
búinn að kaupa bæði rennibekk
og járnsög. „Það veitir ekki af að
hafa tæki þegar þarf að smíða og
laga ýmislegt. Ég held ég geti al-
veg státað af því að fram að þessu
hef ég verið með menntaða menn
í öllum þeim smíðaverkefnum sem
ég hef tekið að mér,“ sagði Toni í
Búðardal.
þá
Margt smíðað og lagfært hjá Tona í Búðardal
Björn Anton Einarsson ásamt Katarínusi Jóni Jónssyni sem starfar á bílaverkstæðinu hjá BA Einarsson.
Helga Garðarsdóttir, nýráðinn hjúkr-
unarforstjóri Barmahlíðar.
Búið að ráða nýjan hjúkrunar
forstjóra á Barmahlíð