Fréttatíminn - 08.08.2014, Blaðsíða 4
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Mér finnst
mjög áhuga-
vert að fá
tækifæri til
að þjálfa upp
fagmennsku
innan stéttar-
innar.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
NA-gjólA á Vestfjörðum, rigNiNg NA-
og A-lANds, eN þurrt sV-til.
HöfuðborgArsVæðið: Þurrt,
en skýjað að mestu.
NA-átt. smá VætA N- og NA-lANds, eN bjArt
suNNAN og suðVestANlANds.
HöfuðborgArsVæðið: Hægur vindur og
fremur sólríkt.
AllHVöss N- og NA-átt og kólNAr Heldur.
Að mestu skýjAð og VætA NA-til.
HöfuðborgArsVæðið: n-gjóla og
skýjað með köflum.
á laugardag sýnir
sólin sig í reykjavík
vindur er að snúast út í na-átt og svo
verður yfir mest alla helgina. Strekk-
ingur norðvestantil í dag og á morgun og
allhvasst verður víða um land á sunnudag.
Nær samfelld rigning norðan- og
austanlands í dag, en minni væta
á morgun, suddi eða smá rigning.
SV- og S-lands léttir hins vegar
til og þar verður vindur að auki
hægur. Á sunnudag nálgast
lægð úr austri og þá þarf að
gæta að vindinum. Kólnar líka
heldur.
12
9 11
14
12
14
13 13 12
12
13
10 10 10
13
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
KirKjan um 20 íslensKir prestar starFa í noregi
Séra Sigríður Guðmarsdóttir hefur verið ráðin prófastur hjá norsku kirkjunni og er fyrsti
útlendingurinn til þess. Skipulag innan norsku kirkjunnar er annað en hér á landi og verður
Sigríður þar yfirmaður sem hefur umsjón með störfum presta. Vegna atvinnuleysis íslenskra
presta hafa þeir sótt til Noregs og segir Sigríður það nýtast stéttinni til lengri tíma.
Þ að hefur aldrei áður gerst að útlend-ingur hafi verið ráðinn prófastur í Noregi,“ segir séra Sigríður Guð-
marsdóttir sem þann 1. september tekur
við sem prófastur í Brønnøysund en bær-
inn er Íslendingum hvað kunnastur sem
sögusviðiðið í þáttunum Himmelblå. Sig-
ríður hefur verið sóknarprestur við Guð-
ríðarkirkju í Grafarholti en hefur fengið árs
leyfi frá Biskupsstofu. Hún er hins vegar
fastráðin hjá norsku þjóðkirkjunni en fær
árs umhugsunarfrest. „Kannski kem ég
aftur eftir ár en kannski verð ég áfram í
Noregi,“ segir hún.
Skipulag innan norsku kirkjunnar er
ólíkt því sem gerist á Íslandi og það heillaði
Sigríði. „Hér höfum við sóknir, prestaköll
og svo prófastsdæmi. Í Noregi hafa presta-
köllin í raun verið afnumin en þess í stað
vinna prestar saman undir stjórn prófasts
sem ræður hvaða prestur messar á hverjum
stað, hvernig vinnuframlagnu er skipt og
skrifar auk þess upp á alla reikninga. Á Ís-
landi stjórna prestar að mestu störfum sín-
um innan hvers prestakalls sem hefur bæði
kosti og galla. Mér finnst mjög áhugavert
að fá tækifæri til að þjálfa upp fagmennsku
innan stéttarinnar og þess vegna leitaði ég
eftir prófaststarfi,“ segir hún.
Sigríður gaf kost á sér sem biskup Ís-
lands í síðustu biskupskosningum og seg-
ir hún kosningabaráttuna hafa verið mjög
skemmtilega. „Fólk spurði mann fjölda
spurninga og ég þurfti að velta fyrir mér
hlutum sem ég hafði lítið hugleitt áður.
Skipulag prestþjónustunnar, fagmennska og
samvinna urðu mér hugleiknari eftir það og
má því segja að þátttaka í biskupskosning-
unum hafi ýtt undir þennan áhuga. “
Það sætir tíðindum í Noregi að erlendur
ríkisborgari fái yfirmannsstöðu hjá norsku
kirkjunni og hefur Sigríður þegar farið í stórt
viðtal í héraðsfréttablaðinu. „Eitt af mínum
fyrstu verkefnum verður að fara á námskeið
hjá menningarmálaráðuneytinu í Osló ásamt
öðrum nýjum próföstum. Þar verð ég eina
konan og eini útlendingurinn,“ segir hún.
En Sigríður er einnig doktor í guðfræði
og meðfram því að starfa sem prófastur
í Noregi kennir hún trúarheimspeki við
Háskóla Íslands á komandi vetri og heldur
áfram meistaranámi sínu í menntavísinum.
Hún er fjarri því að vera eini íslenski
presturinn sem leitar til Noregs því alls eru
þeir um 20 talsins. „Eftir hrun fóru fyrstu
prestarnir til Noregs. Það er atvinnuleysi
meðal presta á Íslandi en prestastéttin er
að eldast og eftir nokkur ár verða mörg
brauð laus sem þarf að fylla fljótt. Það er
því gott að prestar starfi sem prestar ann-
ars staðar, í stað þess að fara yfir í önnur
störf, og það mun nýtast íslensku presta-
stéttinni til frambúðar.“
erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Séra Sigríður Guðmarsdóttir fékk aukinn áhuga á skipulagi innan kirkjunnar eftir að taka þátt í biskupskosningunum og fór að
líta Noreg hýru auga. Mynd/Hari
Fyrsti útlenski
prófasturinn í Noregi
50 sagt upp
50 starfsmönnum fyrirtækisins Sparnaðar
var sagt upp í vikunni. Uppsagnirnar verða
dregnar til baka náist samningar við Seðla-
bankann vegna reglna um gjaldeyrismál.
Píratar gegn drónum
Þingflokki Pírata hugnast illa fyrirhuguð
notkun lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu á drónum. Þetta kemur fram
í svari við fyrirspurn Viðskiptablaðs-
ins vegna ætlana lögreglunnar um
að festa kaup á drónum til nota við
lögreglustörf. Hörður Jóhannesson,
aðstoðarlögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu,
segir einu fyrirstöðu
þess að drón séu ekki
þegar í notkun lög-
reglu vera fjárskort.
75% sölu-
aukning
Áætlanir TM
Software gera ráð
fyrir að á þessu ári verði
seldur Tempo-hugbúnaður
fyrir um 700 milljónir króna
sem er 75 prósentum yfir sölu síðasta árs
og nærri þreföld sala ársins 2012.
staða reykjanesbæj-
ar verri en talið var
Nauðsynlegt er að ráðast í enn frekari
niðurskurð í Reykjanesbæ, til þess að rétta
af skuldastöðu bæjarins. Þetta
segir settur bæjarstjóri. Fram-
kvæmdir á borð við Hljómahöll-
ina hafi gert stöðuna enn verri
en talið var.
björgólfur
gerir upp
Björgólfur Thor
Björgólfsson hefur
lokið uppgjöri við
lánardrottna
sína. Hann
gagnrýnir
harðlega þá
sem hann
segir að hafi
tekið stærstu
lánin fyrir hrun, en
aldrei átt raunveru-
legar eignir.
viKan sem var
easyjet með aukin umsvif á Íslandi
Forsvarsmenn breska lággjaldafélagsins easyJet áætla að um 400.000 farþegar
nýti sér áætlunarflugið til og frá Íslandi til sex breskra borga og Basel og Genf í Sviss.
Undanfarið hafa íslenskir far-
þegar skipað 11 prósent sætanna
í Íslandsflugi easyJet. Samkvæmt
því munu um 44 þúsund íslenskir
farþegar fljúga frá Keflavík til
áfangastaða flugfélagsins í
Bretlandi og Sviss. Þessu greinir
Túristi.is frá. Í viðtali við Við-
skiptablaðið segist Ali Gayward,
framkvæmdastjóri easyJet, búast
við að hlutfall Íslendinga um borð
haldist óbreytt þrátt fyrir aukin umsvif í vetur og á næsta ári. Um 358.000 íslenskir
farþegar innrituðu sig í flug í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og því er markmið easyJet að
ná að lágmarki tíunda hverjum íslenska farþega um borð í sínar vélar.
4 fréttir Helgin 8.-10. ágúst 2014