Fréttatíminn - 08.08.2014, Blaðsíða 10
Á nokkurra ára
tímabili fór ég yfir
30 sinnum í gegn
um tíðahvörf.
Haust 8 5. - 12. október
Haustlitir í Svartaskógi
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Vínakrar, kastalar og skógar er nokkuð sem við kynnumst
í þessari skemmtilegu ferð til Þýskalands, Frakklands og
Sviss. Förum í spennandi og áhugaverðar skoðunarferðir
m.a. um Klukkuveginn í Svartaskógi, Heidelberg og
Strassburg og ökum um „Vínslóðina“ í Alsace.
Verð: 172.100 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
Fararstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson
Í praktískum skilningi er ég kona. Ég versla í kvenfataversl-unum því sniðin þar henta bet-
ur líkamsgerð minni. Ég er kvenleg
að sumu leyti en á mér líka karllæg
áhugamál. Stundum fatta ég konur
betur og stundum fatta ég karl-
menn betur. Í heildina samsama ég
mig best með öðru intersex fólki,“
segir Kitty Anderson, formaður
Intersex Ísland – nýrra samtaka int-
ersexfólks á Íslandi og aðstandenda
þeirra. Intersex er meðfæddur líf-
fræðilegur munur á kyni þar sem
ytri eða innri kynfæri eða litninga-
samstæða samræmast ekki hinum
hefðbundnu kynjum.
Innri og ytri kynfæri ósamstæð
Kitty var greind mjög ung, aðeins
nokkurra vikna gömul. „Ég fædd-
ist kviðslitin sem er mjög algengt
hjá fólki með mitt form af intersex.
Ég var skorin upp til að laga það
en aðgerðin sem átti að taka rúma
klukkustund dróst í marga tíma.
Það var þá sem læknar uppgötvuðu
innri kynfæri sem voru karlkyns og
pössuðu ekki við ytri kynfæri sem
eru kvenkyns,“ segir Kitty. Læknar
sögðu móður hennar að nauðsyn-
legt væri að fjarlægja þau vegna
krabbameinshættu, sem raunar var
stórlega ýkt. Eftir mikinn vand-
ræðagang hjá læknunum við að
segja móður hennar frá raunveru-
legu ástandi dótturinnar fór móð-
irin að ímynda sér það versta og var
henni því í raun eilítið létt þegar
henni var loks sagt nákvæmlega
hver staðan var. „Auðvitað var þetta
áfall fyrir hana. Sérstaklega því hún
hafði aldrei áður heyrt um intersex,
en henni var létt að heyra að ég
gæti lifað tiltölulega eðlilegu lífi, ég
gæti gengið og klætt mig sjálf.“
Niðurlægð í krabbameinsleit
Intersexfólk er í raun eins misjafnt
og það er margt, enda er hug-
takið svokallað regnhlífarhugtak
sem nær yfir fjölda afbrigða. Kitty
er greind með CAIS, Complete
Androgene Insensitivity Syndrome,
sem er ónæmi fyrir andrógeni
eða karlhormónum. Hún er með
XY-litninga, sem almennt eru
tengdir við karlmenn, en algjörlega
ónæma andrógen-móttakara sem
þýðir að karlhormón hafa lítil
áhrif á hana. Vegna þess að
innri kynfæri hennar voru
fjarlægð þegar hún var
ungbarn – nokkuð sem er
gert mun sjaldnar í dag
– þá framleiðir hún ekki
sjálf kynhormón. Kitty
getur ekki gengið með barn
og þarf að vera á hormónameð-
ferð allt sitt líf. „Eins og staðan er
núna fæ ég hormónasprautu hjá
hjúkrunarfræðingi á fjögurra
vikna fresti. Ég þarf að
passa að eiga sprautur og
panta tíma hjá lækni til að
fá lyfseðla því lyfin eru
sérinnflutt. Í raun er of lít-
ið fyrir mig að fá sprautu
á fjögurra vikna fresti og
því fer ég í gegnum horm-
ónafall í hverjum mánuði. Það
er þó mikill munur að það sé aðeins
nokkrir dagar í staðinn fyrir margir
mánuðir eins og þegar ég var með
hormónaígræðslu. Á nokkurra
ára tímabili fór ég yfir 30 sinnum í
gegn um tíðahvörf, því það er auðvi-
tað það sem gerist þegar hormón-
arnir minnka. Hvort sem hormónin
eru gefin með nálum, plástrum
eða pillum þá er afleiðingin alltaf
sú sama ef þeir minnka, maður
fær sömu einkenni og fylgja tíða-
hvörfum.“ En því að fá kvenhorm-
ónagjöf fylgir aukin hætta á því að
fá brjóstakrabbamein og þarf Kitty
því að fara í krabbameinsleit árlega.
„Það eitt og sér er mjög erfitt. Í
Ég er intersex
Kitty Anderson var greind intersex sem ungbarn og læknar
fjarlægðu innri kynfæri hennar. Hún getur ekki eignast börn
og verður á hormónameðferð til æviloka. Kitty er formaður
nýstofnaðra samtaka intersexfólks á Íslandi, hún vill opna
umræðuna og fræða almenning.
eitt af fyrstu skiptunum sem ég fór
á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins
gerði ritari athugasemdir við hversu
ung ég var og ég þurfti að lýsa allri
minni sögu fyrir framan fullan biðsal
af fólki. Það var mjög niðurlægjandi.“
Ekki alveg kona
Kitty segir mikið þekkingarleysi
ríkja meðal heilbrigðisstarfsfólks á
Íslandi þegar kemur að intersex og
skortur á sérhæfðri læknisþjónustu.
„Ég hef verið í sambandi við stelpur
erlendis sem eru með CAIS og hef
reynt að fá viðurkennda hér sömu
hormónameðferð. Þær sem eru með
mitt form af CAIS fá testosterón
en þar sem ég á að vera kona fæ ég
bara estrógen. Ef innri kynfæri mín
hefðu ekki verið fjarlægð hefðu þau
framleitt testosterón sem líkami
minn hefði að hluta breytt í estrógen.
Það er fjarri því að það sé einfalt að
ákveða hvers kyns barn er. Ég er
ekki alveg kona en flestir líta á mig
sem konu. Ég þarf samt ekki læknis-
þjónustu fyrir konu heldur fyrir inter-
sexmanneskju.“
Á Hinsegin dögum í ár er sérstök
vitundarvakning á málefnum inter-
sexfólks en intersex snýst alls ekki
um kynhneigð heldur líffræðilegt
kyn viðkomandi. Samkynhneigð er
ekki algengari meðal intersexfólks
en hjá öðrum, flestar intersex kon-
ur eru gagnkynhneigðar en Kitty
skilgreinir sjálfa sig sem pankyn-
hneigða. „Ég verð skotin í fólki,“
segir hún og það er því persónan sem
hún verður hrifin af, óháð kyni. Hún
hefur í áratug verið í sambandi með
núverandi eiginmanni sínum og aðra
1,7%
fæddra barna
á heimsvísu
eru intersex
1
barn fæðist árlega
á Íslandi að meðal-
tali með óræð
kynfæri.
hverja viku býr sonur hans hjá þeim.
Á intersex frænku
Það var ekki fyrr en Kitty var tólf ára
gömul þegar móðir hennar og læknir
sögðu henni frá því að hún væri inter-
sex og hvað fælist í því. „Ég viður-
kenni að fyrst á eftir missti ég traust á
móður minni. Þarna voru þau að segja
mér hluti um sjálfa mig sem aðrir
vissu löngu á undan mér. Ég hef síðan
búið við mjög gott stuðningsnet og
það er því að þakka að ég hef komið
tiltölulega heil út úr þessu.“
Seinna eignaðist Kitty frænku sem
hefur verið greind intersex. „Eftir leg-
vatnsástungu var hún greind sem heil-
brigt karlkyns barn með XY-litninga
en síðan fæddist stúlka. Því hefur
aldrei verið haldið leyndu fyrir henni
að hún er intersex og við fjölskyldan
höfum gefið henni tólin til að tala um
þetta þegar hún vill og þarf.“
Sumir sem eru intersex eru
greindir strax sem ungbörn, aðrir
þegar þeir verða kynþroska eða jafn-
vel á fullorðinsárum þegar fólk leitar
sér aðstoðar vegna frjósemisvanda-
mála. Sumir eru aldrei greindir. Kitty
hefur tekið þátt í alþjóðlegu starfi
intersexfólks og heldur því áfram sem
formaður Intersex Ísland. „Ég mæli
með því að intersex fólk hitti aðra sem
eru intersex og að intersex börn séu
frá upphafi upplýst um stöðuna. Það
gefur manni ótrúlega mikið að upplifa
sig ekki sem einangraða heldur sem
hluta af hópi. Það er ómetanlegt að
vera ekki ein.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Kitty Anderson var orðin tólf ára gömul þeg-
ar henni var sagt frá því að hún væri intersex
en innri kynfæri hennar voru fjarlægð þegar
hún var ungbarn þar sem þau pössuðu ekki
við ytri kynfæri. Ljósmynd/Birkir Jónsson
Hvað er intersex?
Intersex-hugtakið er mjög vítt
og nær yfir margs konar ólíkar
greiningar. Intersex-ástand er
greint á tvennan hátt. Stundum
sést að útlit ytri kynfæra
samsvarar ekki venjulegum
kynfærum karla eða kvenna. Hins
vegar, og það er mun algengara,
kemur intersex-ástand í ljós með
kynlitningagreiningu, til dæmis
þegar fólk leitar til læknis vegna
ófrjósemi. Fólk með óræð ytri
kynfæri er því bara hluti af þeim
margbreytilega hópi sem er
intersex.
intersex Ísland
Samtökin funda fyrsta þriðjudag
í hverjum mánuði í nýju húsnæði
Samtakanna 78 á Suðurgötu 3.
Netfang samtakanna er inter-
sex@samtokin78.is og ný vefsíða
er Intersex.samtokin78.is
10 fréttaviðtal Helgin 8.-10. ágúst 2014