Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.08.2014, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 08.08.2014, Blaðsíða 16
„Nokkrum mánuðum síð- ar fór ég aftur að finna til og það þurfti að hjartaþræða mig aftur.“ „Og ég stað- greiddi,“ segir Villi brosandi. „Nokkrar millj- ónir og þar fór varasjóðurinn okkar.“ – fyrst og fre mst ódýr! 1998kr.kg Krónu kjúklingabrin gur A fríkuævintýri og hótel-rekstur Guðmundar Þorvarðarsonar og Vil- hjálms Guðjónssonar þar var þeim mikil lífsreynsla en styrkti um leið hjónaband þeirra og ást, þrátt fyrir ýmis áföll. Sturtuvatn eða kaffi? „Það beið okkar svo sem tilbúið hótel með fimmtán starfsmönnum en það kom í ljós að það vantaði allan innri strúktúr, svo miklar endurbætur hófust strax. Úr sturtunni kom yfirleitt ekki vatn og ef það kom vatn var það dekkra á litinn en svart kaffi. Við settum hreinsibúnað á allt vatnsinntak á hótelinu þannig að vatnið varð hreint. Rafmagnsmálin voru í ólestri nánast öll árin því línurnar til þorpsins þjónuðu í raun ekki rafmagnsnotkun íbúanna, hvað þá heilu hóteli. Um helgar þegar mikið var af gestum og eldavélar á fullu allan daginn þá var svo lítil spenna á rafmagninu að ég vissi nákvæmlega hvaða hlutar hótelsins gætu verið rafmagnslausir. Ég var orðinn meistari í öryggistöflunni; vissi nákvæmlega hvaða öryggi ætti að slá út ef það voru tónleikar,“ segir Guðmundur hlæjandi. „Það var ekki mjög góð kynning fyrir hótelið að vera með tónleikahald, hundrað gesti eða fleiri og svo fór rafmagnið af í miðju lagi.“ Sumir sakna aðskilnaðar- stefnunnar Greyton er lítið fjallaþorp þar sem búa um 1.500 hvítir. Þeir telja að trúlegt sé að litaða fólkið í fátæku þorpunum hafi verið frá 10-12 þús- und, en oftast þegar spurt var um íbúafjölda voru svörin einungis um fjölda hvítra. „Litaða fólkið átti ekki upp á pall- borðið, það hafði litla möguleika á atvinnu eða menntun. Það er ekki af ættbálki þannig að það er skörinni lægra en svarta fólkið. Meðan aðskilnaðarstefnan ríkti var litaða fólkið þjónustufólk hvítra, reyndar bara eins og þrælar þeirra, en svartir telja þá hafa verið hand- bendi hvíta mannsins. Litaða fólkið segir að þeim hafi fundist lífið betra meðan aðskilnaðarstefnan ríkti. Fátæktin þarna er ekki mælanleg samkvæmt íslenskum staðli, þetta fólk átti ekkert. Það var ekki til matur, ekki stólar og borð, ekki rúm. Þau búa í skúrum sem líkjast helst spýtnakofum sem íslensk börn smíða á leikskólanum á sumrin. Þar sofa þau í hrúgu á gólfinu.“ Það sést á andlitum þeirra hversu mikið tilhugsunin fær á þá. Slíkt hið sama verður ekki sagt um hina tvo sambýlingana á heimilinu á Bræðraborgarstíg. Meðan Franz syngur hástöfum liggur Frímann í fangi mér og lygnir aftur augunum. Franz er kanarífugl og Frímann chihuahua hundur. „Við vissum af fátækt á þessu svæði, því ári áður en við fluttum út áttum við samtöl við kennara í skólum til að athuga hvernig að- stæður til menntunar væru; hvort samfélagið væri að styrkja skólana. Mörg börn gátu ekki farið í skóla, því heimilin áttu ekki peninga fyrir bókum og foreldrar oft ólæsir og óskrifandi. Mörg barnanna þurftu að ganga kílómetra leiðir að næsta skóla. Allt okkar starfsfólk bjó í fátækrahverfi skammt frá Greyton og það kom í ljós að það vantaði mikið hjá þeim; það var ekkert rafmagn, gluggar voru brotnir, ekki heitt vatn og laskaðar hurðir, þannig að hjálparstarfið okkar hófst bara á degi eitt.“ Kreppan á Íslandi teygði anga sína til S-Afríku „Markmið okkar með hótelkaup- unum var að reka hótelið í tíu ár, fyrstu fimm árin við byggja það upp og markaðssetja og svo ætl- uðum við koma rekstrinum meira yfir á starfsfólk og nota þá tímann okkar meira í hjálparstarf, borga til baka í þakklætisskyni og gera eitt- Þar sem þeir Guðmundur Þorvarðarson og Vilhjálmur Guðjóns- son stóðu inni á hótelinu sem þeir höfðu keypt, Greyton Lodge í bænum Greyton í Suður-Afríku, varð þeim ljóst að ekkert yrði af markmiðum þeirra, enda segir máltæki í Afríku að ef eitt- hvað getur farið illa, þá fer það illa. Núna, tíu árum, tveimur hjartaáföllum og einu heilablóðfalli síðar eru þeir komnir heim. hvað gott fyrir aðra,“ segir Villi. „En það breyttist allt á fyrsta degi. Við vorum allt í einu komnir með fimmtán manns sem við höfðum „ættleitt“ ásamt fjölskyldum þeirra. Við bárum ábyrgð á þeim. Sem atvinnurekendur vorum við líka bankinn þeirra, fólkið fékk lán hjá atvinnurek- endum, sjúkratryggingar og jarðarfarir, allt kom inn á borð til okkar. Eftir því sem tíminn leið varð fjárhagur okkar verri og verri. Einu ári eftir að kreppan skall á hér á Íslandi hurfu 40% hótelgesta og 100% ráðstefnugesta. Ráðstefnur voru mikil- vægar í rekstrinum og því mikið áfall að missa öll þessi viðskipti.“ Úr pallbíl í limmósínu En það var ekki nóg með að þeir þyrftu að vera hótelstjórar, kokkar, vinna í þvotta- húsinu og elda matinn því oft vantaði starfsfólk: „Við þurftum að sækja starfsfólkið og keyra það heim þrisvar á dag. Fyrrverandi eigendur áttu pallbíl og sóttu starfsfólkið á pallinn eins og rollur að okkar mati. Þar stigu niður fallegar stúlkur og konur í mjallahvítum búningum sem voru orðnir brúnir af rykinu frá vegunum. Okkur fannst þetta niðurlægjandi. Hótelinu fylgdi ónýtur bíll svo fyrstu dagana hjóluðum við í matvöruverslunina eða gengum. Þá kom til okkar elskulegur kunningi okkar og sagði að það væri ómögulegt að hóteleigendurnir ættu ekki bíl og lánaði okkur lengdan Jagúar, þannig að frá því að hoppa skítugt ofan af pallbíl, ferðað- ist starfsfólkið með limmósínu. Það tók langan tíma að byggja upp traust til okkar, en þegar traustið var komið, þá vorum við komnir með mjög sterkan kjarna sem stóð við bakið á okkur. Í fyrstu áttum við von á öllu, starfsfólkið reykti maríjúana í vinnunni, viðgerðarmaðurinn datt svo oft í það að hann datt og braut sig og datt enn eina ferðina í það í tilefni af því. Þvotta- konan okkar gekk út á miðjum vinnudegi og kom mörgum vikum síðar til að segja okkur að hún væri ekki hætt, hún væri bara þunglynd og kæmi seinna.“ Með súpueldhús í fátækrahverfi „Við veltum fyrir okkur hvað við gætum gert til að láta gott af okkur leiða og ákváð- um að fara af stað með súpueldhús fyrir fátækustu börnin í næsta þorpi. Við vorum með heita súpu í hádeginu á laugardögum og kjötkássu á sunnudögum. Kona, sem hafði unnið í þvottahúsinu á hótelinu og bjó í Heuwelkroon sem var fátækasta hverfið rétt utan við Greyton, bauð okkur að hafa þetta heima hjá sér. Ástæðan fyrir því að þetta var bara um helgar var sú að börnin fá mat í skólanum en um helgar var engan mat að fá heima. Það voru eingöngu börn sem komu og sóttu mat, sum reyndar báðu um fyrir ömmu sína og afa, sem var velkomið. Þau fengu þá tíu skammta og roguðust með þetta heim. Sum þeirra gengu marga kílómetra til að fá mat. Það hafði mjög mikil áhrif á okkur.“ „Bói! Bói! Bói!“ Til að útskýra það sem á eftir kemur, er Guðmundur kallaður Bói: „Súpupottarnir voru settir inn í skottið á Land Rover jeppa og það var svo mikill hávaði í honum að þegar við nálguðumst fátækrahverfið heyrðist kallað úr öllum áttum: Bói, Bói! Börnin vissu hvaða bíll var að koma og hvað væri í bílnum. Þau birtust alls staðar, bak við hóla og Afríkubaslið styrkti hjónabandið Framhald á næstu opnu Vilhjálmur Guðjónsson og Guðmundur Þorvarðar- son mættu mótlæti í Suður-Afríku en það styrkti hjónaband þeirra. Ljósmynd/ Teitur 16 viðtal Helgin 8.-10. ágúst 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.