Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.08.2014, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 08.08.2014, Blaðsíða 40
40 matur & vín Helgin 8.-10. ágúst 2014  Hinsegin Vinsæll matur meðal samkynHneigðra Hommar fitna ekki, eða hvað? Hápunktur Hinsegin daga í Reykjavík verður á morgun, laugardag, þegar gleðigangan fer fram í miðbænum með öllum sínum glæsileika og litadýrð. Við fögnum fordómaleysi og fjölbreytileika með samkynhneigðum og sýnum um leið stuðning okkar við þeirra réttindabaráttu með gleði og bjartsýni í hjarta. V ið forvitnuðumst um það hvort einhver matur eigi betur við samkynhneigða menn- ingu en aðra, hvort ein- hver fæðutegund sé vinsælli meðal sam- kynhneigðra en ann- arra og komumst að ýmsu fróðlegu. Fyrir tveimur árum kom út bók sem nefnist „Hommar fitna ekki“ og er höf- undurinn listrænn hönnuður hjá Bar- ney´s í New York og er samkynhneigður. Samkynhneigðir menn eru víst með ákveðnari skoðanir á þessum málum en samkynhneigð- ar konur. Hér eru nokkrar hugmyndir um mat sem er vin- sæll hjá samkyn- hneigðum mönnum. Guacamole. Samkynhneigðir og þá sérstaklega hommar elska allt með avocado. Eina vandamálið er það að Guacamole er fitandi, lífshættulega fitandi. Því verður að passa skammtana. Sushi er gríðarlega vinsæll meðal samkynhneigðra. Enda inniheldur hann fáar kaloríur og svo er mikil stemning í því að borða sushi. Makkarónur eru eftirlæti samkynhneigðra manna. Litadýrðin er mjög að þeirra skapi og svo eru þær sætari en allt sætt. Þú sérð aldrei gagnkyn- hneigðan mann með makkarónur, allavega ekki einan. Hvítvín. Þrátt fyrir að hvítvín sé mjög kaloríuríkt þá er það mjög vinsælt meðal samkynhneigðra manna. Hvít- vín er oftast tekið fram yfir vatn. Hver hefur svo sem gaman af vatni? Panini er lúxusútgáfa af hefðbundinni samloku. Samkynhneigðir fara yfirleitt ekki hefðbundnu leiðina. Panini getur verið alveg einstaklega góð leið til þess að borða mikið af kjöti og osti án þess að margir taki eftir því. Bakaðar kartöflur. Sam- kynhneigðir menn borða ekki djúp- steiktar kartöflur, heldur bakaðar. Ástæðuna þarf ekki að útskýra. Súkkulaði. Það eru allir vitlausir í súkkulaði. Alveg sama hvar þeir eru staddir í flórunni. Ab gerlar stuðla að jafnvægi Líkamar okkar verða stöðugt fyrir áreiti frá óæskilegum þáttum í nánasta um- hverfi okkar. Óæskilegar bakteríur og sveppir geta sest að í meltingarveginum og valdið óþægindum og veikt mót- stöðuafl líkamans. Holl fæða hjálpar okkur að halda jafnvægi í daglegu lífi. Góðu gerlarnir sem ab-vörurnar innihalda, Lactobacillus acidophilus (a) og Bifidobacterium bifidum (b), eru ólíkir flestum öðrum mjólkur- sýrugerlum. Þeir lifa af ferðalagið um magann og halda áfram mikil- vægri starfsemi sinni í þörmunum. Dagleg neysla á ab-mjólk tryggir hæfilegt magn af a- og b-gerlum í meltingarvegi og gerir óæskilegum gerlum erfitt uppdráttar. A- og b-gerlarnir treysta mótstöðuafl okkar gegn bakteríum. Þeir bæta meltinguna og styrkja um leið innri varnir líkamans. Þannig helst líkaminn í lifandi jafnvægi. Ab-vörurnar eru þróaðar með það fyrir augum að gegna lykilhlutverki í mat- aræði nútímafólks. Þær eru svokallað markfæði sem er skilgreint sem matvæli sem hefur heilsusamlega virkni umfram hefðbundin matvæli. Eins og aðrar mjólkurvörur eru ab-vörurnar næringarríkar og innihalda hina heilnæmu a- og b- gerla. Í einu grammi af ab-mjólk eru að minnsta kosti 500 milljón a-gerlar og 500 milljón b-gerlar. Þegar eðlilegt jafnvægi í meltingarvegi raskast, t.d. vegna inntöku sýklalyfja, er mikilvægt að neyta vara sem innihalda heilnæma gerla til að byggja aftur upp heilbrigða gerlaflóru. Góðu gerlarnir sem ab-vörurnar inni- halda lifa af ferðalagið í gegnum magann og hjálpa til við að ná aftur og viðhalda mikilvægu jafnvægi í meltingarvegi. Unnið í samstarfi við MS MMikilvægt Magnesíum plús með B12, B6 og fólinsýru er slakandi og styrkjandi fyrir líkama og sál. VAKANDI!VERTU blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR 36% þeirra sem beita drengi kynferðislegu ofbeldi eru ókunnugir karlar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.