Fréttatíminn - 08.08.2014, Blaðsíða 22
ALLRI
SUMAR
VÖRU
40-60
TEKK COMPANY og HABITAT | Kauptúni | Sími 564 4400
Opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18 og sunnudaga kl. 13-18
www.habitat.is | Vefverslun á www.tekk.is
40
TEVA
sólstóll/bekkur
Fjórir litir – 8.700 kr.
40MAUI sólstóll
með taubaki
10.350 kr.
Jón Gnarr eða Rögnu
sem næsta forseta?
Jón Gnarr og Ragna Árnadóttir fengu flest atkvæði þeirra tíu forsetaefna sem lesendur Frétta-
tímans kusu á milli í vikunni. Undanfarnar tvær vikur hefur Fréttatíminn leitað að næsta forseta
með hjálp þjóðarinnar í gegnum kannanir á Facebook-síðu sinni og með tölvupóstum. Alls tóku
um 1300 manns þátt í síðustu könnun og fékk Jón Gnarr flest atkvæði, um 24 prósent og Ragna
næstflest, um 19 prósent. Næstu vikuna gefst lesendum kostur á að velja á milli þeirra tveggja
og verða úrslitin á vali lesenda Fréttatímans á næsta forseta lýðveldisins kynnt í næsta blaði.
Jón Gnarr
24%
R agna er lögfræðingur sem vakti athygli þegar hún var dómsmálaráðherra, utan
þings, í kjölfar hrunsins. Hún hef-
ur lengi verið orðuð við forseta-
framboð en hefur hvorki sagt af
né á um áform sín í þeim efnum.
Hún er í dag aðstoðarforstjóri
Landsvirkjunar. Hún er fædd
árið 1966. Eiginmaður hennar er
Magnús Jón Björnsson tannlækn-
ir og eiga þau tvær dætur, fæddar
1993 og 2000.
Ragna hefur mikla reynslu úr
opinberri stjórnsýslu, hefur verið
í stjórnunarstöðum í heilbrigðis-
ráðuneytinu og dómsmálaráðu-
neytinu og var dómsmálaráð-
herra á árunum 2009-10.
Hún stýrir samstarfshópi
ríkisins, Reykjavíkurborgar og
Icelandair sem vinnur að því að
finna nýjan stað fyrir Reykja-
víkurflugvöll. Þá stýrir Ragna
einnig þverpólitískum og þver-
faglegum samráðsvettvangi um
aukna hagsæld á Íslandi. Á vett-
vangnum eiga sæti formenn
allra stjórnmálaf lokka sem
sæti eiga á Alþingi og ýmis
hagsmunasamtök, fulltrúar
sveitarfélaga og stjórnendur
fyrirtækja.
Í viðtali við RÚV sagði Ragna frá
því að hún væri mikill teiknimynda-
nörd og safnaði sögum um Andrés
önd, Dick Tracy og fleiri. Hún sótti
námskeið í Beyoncé-dönsum hjá
Kramhúsinu í fyrravetur og sagði
frá uppátækinu í fjölmiðlum.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
J ón Gnarr er fyrrverandi borg-arstjóri Reykjavíkur. Hann vakti heimsathygli með upp-
átæki sínu fyrir fjórum árum – þeg-
ar hann náði kjöri. Hann hefur verið
þráspurður um hvort hann ætli að
bjóða sig fram til forseta og segist
ekkert útiloka í þeim efnum.
Jón er fæddur árið 1967. Hann er
kvæntur Jóhönnu (Jógu) Jóhanns-
dóttur nuddara og eiga þau fimm
börn, fædd 1986, 1987, 1989, 1992
og 2005.
Jón hefur sagt frá því í viðtali
við fjölmiðla að Jóga sé hans helsti
ráðgjafi og stór hluti af öllum þeim
ákvörðunum sem hann tekur. Í við-
tali við Grapevine frá því í vor segir
Jón að Jóga spili mun stærri rullu en
fólk geri sér grein fyrir vegna þess
að hún sé ekki mikið í framlínunni
heldur kjósi fremur að halda sig
utan kastljóss fjölmiðlanna.
Jón segist snemma hafa verið
ódæll og til vandræða. Á unglings-
árum varð hann pönkari og þekkt-
ur undir nafninu Jónsi Pönk. Eftir
grunnskólapróf frá Héraðsskólan-
um Núpi við Dýrafjörð sótti Jón
Gnarr ýmsa framhaldsskóla, m.a.
Flensborgarskóla í Hafnarfirði, Fjöl-
brautaskólann í Ármúla, Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti og Menntaskól-
ann við Hamrahlíð. Hann staldraði
þó stutt við á hverjum stað fyrir sig
og lauk ekki stúdentsprófi.
Hann hefur unnið ýmis störf á
lífsleiðinni, hann var starfsmaður á
Kópavogshæli og næturvaktmaður
á Kleppi á árunum 1985-90 og flutt-
ist svo til Svíþjóðar árið 1990 þar
sem hann vann í verksmiðju bíla-
framleiðandans Volvo. Eftir að hann
kom heim aftur tveimur árum síðar
sá hann fjölskyldu sinni farborða
með akstri leigubifreiðar hjá Bæjar-
leiðum. Árið 1994 fóru hann og Sig-
urjón Kjartansson að skrifa og leika
í grínsketsum á Rás 2 sem var upp-
hafið að grínferli Jóns sem meðal
annars skóp Tvíhöfða og Fóstbræð-
ur. Þá sló Jón í gegn í vakta-þrí-
leiknum svokallaða og kvikmynd-
inni Bjarnfreðarsyni.
Ragna Árnadóttir
19%
22 forsetakadídatar Helgin 8.-10. ágúst 2014