Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.08.2014, Síða 52

Fréttatíminn - 08.08.2014, Síða 52
 Í takt við tÍmann ÓlÍna viðarsdÓttir Lúði í fatavali og á ekki tölvu Ólína Viðarsdóttir er 31 árs sálfræðingur og leikmaður Vals í Pepsideild kvenna. Hún vinnur á Laugarásnum sem er endurhæfingadeild fyrir ungt fólk með byrjandi geðrofssjúkdóma. Hún hlakkar til að demba sér á fullu í sálfræðina eftir fótboltann. Ólína er í sambúð með Eddu Garðarsdóttur og eiga þær dótturina Bergþóru Hönnu. Hún var skírð eftir ömmum sínum. Staðalbúnaður Vá, ég er al- gjör lúði þegar kemur að fata- vali. Ég hef t.d. aldrei átt Diesel gallabuxur eða Ray-Ban sólgler- augu og mæti með takkaskóna í Bónus- poka. Er í fínni fötum í vinnunni en er fljót að skipta í „sweats“ þegar ég kem heim. Er mjög dugleg að versla í landsliðs- ferðum og fer þá oftast í H&M. Ég yfirleitt ekki meira en 3 tíma að eyða dagpeningunum í allskonar nauðsynjar. Hugbúnaður Er náttúrulega á fullu í fótbolt- anum alla daga. Boltinn er enn í dag, eftir 20 ár, eitt það skemmtilegasta sem ég geri. En mér finnst lang- skemmtilegast að eyða tíma með dóttur minni. Við erum nýkomnar úr yndis- legu 4 vikna sumarfríi þar sem hver dagur var sem nýtt ævintýri. Annars er ég mikil félagsvera og finnst mér gaman að vera með vinum, skemmta mér og ferðast. Er líka að fikta við golfið og það er að koma skemmti- lega á óvart. Vélbúnaður Iphone 5s er mest notaður til að hringja og senda sms, taka myndir og spila 2048. Er einnig mikið inn á fasteignaappinu þessa dagana að skoða. Á enga tölvu en Edda leyfir mér að nota sína þegar hún er í góðu skapi. Aukabúnaður Veitingastaðurinn Local er í algjöru upp- áhaldi þessa dagana en svo er pabbi sjómaður og er duglegur að skaffa fisk sem tengdamamma mat- reiðir óaðfinnanlega. Það er besti matur í heimi og svo mikill kærleikur sem fylgir. Í haust er það skemmtiferð til Svíþjóðar og vinnuferð til Tókýó sem bíður. Fyrst er það að klára tímabilið með stæl og svo auðvitað fagna Gay Pride núna um helgina.  appafengur Ekki veit ég hvernig höfundar appsins „Bugs and Buttons“ – sem á íslensku myndi útleggjast sem „Pöddur og hnappar“ – fengu hugmyndina. Mér fannst nafnið alltaf fráhrindandi en nú þegar það er komið Bugs and Buttons 2 ákvað ég að prófa fyrra appið með dóttur minni. Í stuttu máli er í app- inu að finna alls 18 leiki fyrir börn þar sem þau læra tölustafi og bókstafi, fylgja ákveðnu mynstri og spila myllu, en líka bara að kremja pöddur. Þó er hægt að færa rök fyrir því að sá leikir æfi viðbragðsflýti. Eins mikilla vinsælda og þetta app hefur notið þá er það vart fyrir viðkvæma. Ég viðurkenni að fá nett- an hroll þegar maurar og kakkalakkar skríða yfir skjáinn á iPadnum, þar sem pöddurnar sjást enn betur en á símaskjánum. En miðað við hversu ánægð dóttirin er með þetta app eru töluverðar líkur á að hún fái hið seinna þegar fram líða stundir. - eh Bugs and Buttons 52 dægurmál Helgin 8.-10. ágúst 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.