Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2006, Page 5

Læknablaðið - 15.11.2006, Page 5
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS II M R Æ fl A 0 G F R É T T I R 795 Af sjónarhóli stjómar. Um drög að frumvarpi til laga um heilbrigðisþjónustu Sigurður Böðvarsson 796 Málþing um heimilislækningar á Húsavík Hávar Sigurjónsson 803 Jón forseti - WMA Hávar Sigurjónsson 809 Galdurinn við tónlist Wagners - áhugamál Arna Tómasar Ragnarssonar Hávar Sigurjónsson 815 Heimilislæknaþing 17. -19. nóvember - dagskrá 708 Anders Jahre verðlaunin í læknisfræði Hávar Sigurjónsson 713 Bókadómur. Umsögn um Handbók í lyflæknisfræði, 3. útg. Sigurður Guðmundsson F A S T I R P I S T L A R 821 íðorð 192. Hnútur eða hnúður Jóhann Heiðar Jóhannsson 822 Einingaverð og taxtar 823 Sérlyfjatextar 822 Ráðstefnur og fundir 835 Frumkvæðið - hugleiðing um breytta heimsmynd. Hugleiðing höfundar Linda Vilhjálmsdóttir You Take all My Time Egill Sæbjörnsson 2001 -2003 Innsetning meö blandaðri tækni og performans. Sviö úr MDF-plötum, plastmálning, gegnsær mynd dúkur, tveir samstilltir skjávarpar, tónlist, hljóð, hátalarar, DVD-spilari. Tónlistin eftir Egil Sæbjörnsson sem og allur flutningur og myndbandsvinna. Verkiö var gert að tilhlutan Katarinu Brown, Dundee Contemporary Arts, Skotlandi 2002-2003 og frumflutt IDCA í janúar 2003. Egill Sæbjörnsson (f. 1973) gefur okkur aðgang að vinnsluferli verka sinna með því að birta á forsíðu Læknablaðsins þessa strumpalegu Ijósmynd. Hún er af honum sjálf- um í gervi karlsins í tunglinu: „Parna var ég að leika mána og setti á mig svona leikaradeig og málaði hvítt og var med bláa sundhettu á hausnum og með bláan bakgrunn þvi þetta var bluescreen tækni." Sú tækni er notuð í kvikmyndum til að skeyta saman ólíku mynd- efni, allt sem er blátt þurrkast út og annar bakgrunnur kemur í staðinn. Þegar heild- armyndin var unnin varð verkið You Take All My Time (2001 -03) að veruleika, hér fyrir ofan dálkinn má sjá mynd af því. Máninn sefur uppi i horni á næturhimni en vaknar siðan við óhljóð sem berast frá runnanum. Egiil var sjálfur viðstaddur, með gítar og spilaði og söng hugljúft lag. Sviðsmyndin í kring um hann varð einhvers konar sambland af innsetningu og tónlistarmyndbandi, samsett úr máluðum flekum og myndvarpar vörpuðu figúrum sem sungu bakraddir og gerðu ýmsar kúnstir. Hann segist hafa byrjað á því að semja lagið og síðan leiddi eitt af öðru. Egill lærði myndlist í Frakklandi og á ís- landi. Hann er nú búsettur í Berlín og er ötull við sýningahald á alþjóðlegum vettvangi. Á Islandi sýndi hann nýverið í Safni i tengslum við listahátíðina Sequences en hann hefur sýnt í Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Is- lands. Egill er einn framúrstefnulegasti mynd- bandslistamaður þjóðarinnar og blandar þar saman ólíkum miðlum tónlist, gjörningi, teikningu og skúlptúr. Myndmálið er sótt í barnamenningu, teiknimyndir og ævintýri en einnig i heim rokks og róls og hann vílar ekki fyrir sér að bregða sér sjálfur í allra kvikinda líki. Egill hefur einnig gefið út hljómplötur og meðal þekktra laga hans er I Love You So af Tonk of the Lawn (2000). Það stoðar ekki að ætla sér að setja Egil á bás sem myndlistarmann eða tónlistarmann, hann blandar miðlunum saman og útkoman verður ýmist gjörningur sem varir í skamma stund, tónleikar, iistsýning eða hljómplata. Það sem draga má saman í verkum hans er einlæg leit að leiðum til að koma okkur hinum á óvart með því að lokka áhorfandann inn í furðuheim eða varpa einhverju óvæntu þaðan inn í raunveruleikann. Markús Þór Andrésson Læknablaðið 2006/92 753

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.