Læknablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 5
LISTAMAÐUR
MÁNAÐARINS
II M R Æ fl A 0 G F R É T T I R
795 Af sjónarhóli stjómar. Um drög að frumvarpi
til laga um heilbrigðisþjónustu
Sigurður Böðvarsson
796 Málþing um heimilislækningar á Húsavík
Hávar Sigurjónsson
803 Jón forseti - WMA
Hávar Sigurjónsson
809 Galdurinn við tónlist Wagners - áhugamál
Arna Tómasar Ragnarssonar
Hávar Sigurjónsson
815 Heimilislæknaþing 17. -19. nóvember - dagskrá
708 Anders Jahre verðlaunin í læknisfræði
Hávar Sigurjónsson
713 Bókadómur. Umsögn um Handbók í lyflæknisfræði, 3. útg.
Sigurður Guðmundsson
F A S T I R P I S T L A R
821 íðorð 192. Hnútur eða hnúður
Jóhann Heiðar Jóhannsson
822 Einingaverð og taxtar
823 Sérlyfjatextar
822 Ráðstefnur og fundir
835 Frumkvæðið - hugleiðing um breytta heimsmynd.
Hugleiðing höfundar
Linda Vilhjálmsdóttir
You Take all My Time
Egill Sæbjörnsson 2001 -2003
Innsetning meö blandaðri tækni og performans.
Sviö úr MDF-plötum, plastmálning, gegnsær
mynd dúkur, tveir samstilltir skjávarpar, tónlist,
hljóð, hátalarar, DVD-spilari. Tónlistin eftir
Egil Sæbjörnsson sem og allur flutningur og
myndbandsvinna. Verkiö var gert að tilhlutan
Katarinu Brown, Dundee Contemporary Arts,
Skotlandi 2002-2003 og frumflutt IDCA í janúar
2003.
Egill Sæbjörnsson (f. 1973) gefur okkur
aðgang að vinnsluferli verka sinna með því
að birta á forsíðu Læknablaðsins þessa
strumpalegu Ijósmynd. Hún er af honum sjálf-
um í gervi karlsins í tunglinu: „Parna var ég að
leika mána og setti á mig svona leikaradeig
og málaði hvítt og var med bláa sundhettu á
hausnum og með bláan bakgrunn þvi þetta
var bluescreen tækni." Sú tækni er notuð í
kvikmyndum til að skeyta saman ólíku mynd-
efni, allt sem er blátt þurrkast út og annar
bakgrunnur kemur í staðinn. Þegar heild-
armyndin var unnin varð verkið You Take All
My Time (2001 -03) að veruleika, hér fyrir ofan
dálkinn má sjá mynd af því. Máninn sefur
uppi i horni á næturhimni en vaknar siðan
við óhljóð sem berast frá runnanum. Egiil
var sjálfur viðstaddur, með gítar og spilaði
og söng hugljúft lag. Sviðsmyndin í kring
um hann varð einhvers konar sambland af
innsetningu og tónlistarmyndbandi, samsett
úr máluðum flekum og myndvarpar vörpuðu
figúrum sem sungu bakraddir og gerðu ýmsar
kúnstir. Hann segist hafa byrjað á því að
semja lagið og síðan leiddi eitt af öðru.
Egill lærði myndlist í Frakklandi og á ís-
landi. Hann er nú búsettur í Berlín og er ötull
við sýningahald á alþjóðlegum vettvangi. Á
Islandi sýndi hann nýverið í Safni i tengslum
við listahátíðina Sequences en hann hefur
sýnt í Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Is-
lands. Egill er einn framúrstefnulegasti mynd-
bandslistamaður þjóðarinnar og blandar
þar saman ólíkum miðlum tónlist, gjörningi,
teikningu og skúlptúr. Myndmálið er sótt í
barnamenningu, teiknimyndir og ævintýri en
einnig i heim rokks og róls og hann vílar ekki
fyrir sér að bregða sér sjálfur í allra kvikinda
líki. Egill hefur einnig gefið út hljómplötur og
meðal þekktra laga hans er I Love You So af
Tonk of the Lawn (2000).
Það stoðar ekki að ætla sér að setja Egil á
bás sem myndlistarmann eða tónlistarmann,
hann blandar miðlunum saman og útkoman
verður ýmist gjörningur sem varir í skamma
stund, tónleikar, iistsýning eða hljómplata.
Það sem draga má saman í verkum hans er
einlæg leit að leiðum til að koma okkur hinum
á óvart með því að lokka áhorfandann inn í
furðuheim eða varpa einhverju óvæntu þaðan
inn í raunveruleikann.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið 2006/92 753