Læknablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 21
FRÆÐIGREINAR / FJARLÆKNINGAR
ur á tölvunet spítalans fyrir öll samskipti.
FjarfundabúnaðunVCON Cruiser 384 (í PC vél),
Polycom 7000, Polycom iPOWER 9600, Polycom
960. Fjarfundagáttir :CISCO 3525, Polycom MGC
50
Lcmdspítali og heilsugœslustöðvar
Rafræn hlustpípa: Littmann 4000 og hugbúnaður
(Sound Analysis Software 4000S frá Littmann) til
að hlusta á hljóðsendingar beint úr tölvunni með
hátölurum eða heyrnartólum og/eða sjá þær graf-
ískt á tölvuskjá.
Heilsugœslustöðvar
Fjarfundabúnaður: VCON Cruiser 384 (í PC
vél) (Seyðisfjörður, Egilsstaðir, Patreksfjörður).
Stafræn myndavél: Kodak DX 3600, 2.2 mega-
pixla (Seyðisfjörður), Olympus E10, 4 megapixla
(Kópasker), Casio Exilim EX-Z55, 5 megapixlar
(Efstaleiti). Hjartalínurit: Schiller Cardiovit AT-2
plus (Seyðisfjörður). Spirometria: MEDIKRO/
Spiro 2000 (Seyðisfjörður). Blóðþrýstingsmælir:
Sun Tech PressureTrak, 24-Hr ABP (Ambulatory
Blood Pressure Monitor), (Seyðisfjörður).
Eyrnaholsjá (otoendoscope): Karl Storz
Endoscope- Tricam SL PAL með ljósgjafa
(STORZ Xenon Light Source 615) og eyrnahol-
sjárhaus (Richard WOLF 8484.42 25° lumina SL),
(Seyðisfjörður).
Fjarfundabrú
í verkefninu var keypt fjarfundabrúarþjónusta af
Símanum fyrir þá fræðslufundi sem sýndir voru á
landsbyggðinni.
Siðfrœði
1 samráði við Persónuvernd var ákveðið að
persónugreinanlegar upplýsingar yrðu einungis
sendar með bréfpósti eins og hefð er fyrir. Var
það mat Persónuverndar að formlegt samþykki
Persónuverndar þyrfti því ekki að liggja fyrir þar
sem ekki yrðu send persónugreinanleg gögn í
tölvupósti eða á annan hátt rafrænt.
Staðtöluleg lirvinnsla gagna
Læknar fylltu eins og áður sagði út matslista á
vefsíðu á ytri vef Landspítala þar sem ekki komu
fram persónuupplýsingar. Pessi gögn voru færð
yfir í Excel forrit til úrvinnslu. Niðurstöður voru
lýsandi, notaðar voru einfaldar reikniaðferðir.
Niðurstöður
I töflu I kemur fram skipting samráðsbeiðna milli
sérgreina. Aldursdreifing sjúklinga var frá 5-88
ára, að meðaltali 46 ár og miðgildi 49 ár. I rann-
Tafla II. Tæknileg atriði. Svör iækna og sjúklinga.
Allir læknar
Rafræn samráð alls 29
Virkaði tæknin eins og hún átti aö gera ? já = 48 nei = 9 vantar svar = 1
Voru myndgæði ásættanleg? já = 38 nei = 4 á ekki við/ ekki svaraö =16
Samráð með fjarfundabúnaði alls 11
Hvernig gekk að hringja? vel = 21 illa = 1
Slitnaði fundurinn (fraus)? já = 1 nei = 21
Hvernig heyrðist I viðmælanda? vel = 16 ásættanlega = 5 illa = 1
Hvernig sáust þeir sem voru á ijarfundinum? vel = 16 sæmilega = 6 illa = 0
Virkaði fjarlækningatæknin að öðru leyti eins og hún átti að gera? já = 20 nei = 1 svar liggur ekki fyrir = 1
Sjúklingar
Fannstu fyrir streitu í byrjun og eða enda viðtais? ekki = 8 aöeins = 3 talsvert = 0
Hvenig gekk að heyra í iækninum ? vel = 9 sæmilega = 2 illa = 0
Hvernig gekk að sjá þá sem voru á fjarfundinum? vel = 10 sæmilega = 1 illa = 0
sóknarhópnum voru 23 kvenkyns einstaklingar
eða 57,5 % hópsins og 17 karlkyns eða 42,5%.
Tœknileg atriði
í töflu II sést mat lækna og sjúklinga á tæknilegum
atriðum fjarlækninga fyrir báðar tegundir sam-
ráða. Sjá einnig kafla hér að neðan um reynslu af
lækningatækjum en þar er stuðst við upplýsingar
lækna í verkefninu. I nokkrum tilfellum komu upp
tæknivandamál sem voru leyst jafnhliða. Nokkuð
af eldri tækjabúnaði var endurnýjaður þegar leið
á verkefnið.
Reynsla af lœkningatœkjum
Eyrnaholsjá: Góð. Stilling á ljósstyrk þróaðist í
verkefninu.
Fjarfundabúnaði: Almennt nokkuð góð. Aldur
fjarfundabúnaðar og fjarfundagáttar í upphafi
verkefnis höfðu þó áhrif á myndgæði.
Hjartalínurit: Góð. Stafræn mynd af útprenti úr
hjartalínuriti var sent sem viðhengi. Rafræn send-
ing beint úr hjartalínuriti virkaði ekki í því tæki
sem reynt var að nota.
Rafrænni hlustpípu: Sæmileg. Erfiðleikar voru
við aukahljóð í hljóðupptökum og talsvert vanda-
söm vinna við upptökur. Hlustpípan bætti litlu
við í samráðum til lungnalæknis, en þar var einnig
send öndunarmæling.
Öndunarmælir: Mjög góð og gekk vel að senda
skrár úr Spiro 2000 öndunarmæli. Mælingin fór
beint inn í sams konar forrit í tölvu hjá lungna-
Læknablaðið 2006/92 769