Læknablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 39
FRÆÐIGREINAR / KLÍNlSKAR LEIÐBEININGAR / ENDURLÍFGUN
Mynd 7. Hjartahnoð á ungbarni með tveimur fmgrum sömu handar Mynd 8. Hjartahnoð á ungbarni með báðum höndum þegar tveir eru að
þegar einn er að endurlífga. endurlífga.
út um hitt opið. Við endurlífgun á eldri börnum
kemur til greina að setja æðalegg í ytri hóstarblá-
æð (vena jugularis externaj.
Flest þau lyf sem til greina kemur að nota við
endurlífgun er hægt að gefa í gegnum barkarennu,
en þau eru vasópressín, adrenalín, lídócain, atróp-
ín og nalóxone (VALAN). Frásog lyfja gegnum
lungu er hins vegar mjög óáreiðanlegt og því er
ekki mælt með að gefa lyfin á þann hátt nema ekki
sé hægt að nota æðalegg eða beinmergsnál. Eftir
að lyfið hefur verið gefið skal gefa 3-5 ml af 0,9%
saltvatni í barkarennuna. Þegar adrenalín er gefið
á þennan hátt skal gefa lOx meira magn af lyfinu
en þegar það er gefið í æð þar sem aðeins hluti
þess berst inn blóðrás.
Adrenalín
Ef hjartsláttur og púls fæst ekki við öndunaraðstoð
og hjartahnoð er það yfirleitt vegna þess að enn
er súrefnisþurrð í hjartavöðva vegna of lítils blóð-
flæðis um kransæðar. Skal þá gefa adrenalín sem
dregur saman viðnámsæðar í slagæðakerfi (alfa
áhrif) sem hækkar blóðþrýsting og eykur þannig
kransæðablóðflæði (24). Adrenalín örvar einnig
beta viðtaka í hjarta og eykur þannig samdrátt-
arkraft hjartavöðva og sjálfvirkni í leiðslukerfi
hjarta, en sú verkun virðist hafa minni þýðingu við
endurlífgun (24).
Skammturinn er 0,01 mg/kg ef lyfið er gefið í
æð eða í beinmerg, en 0,1 mg/kg ef það er gefið
í gegnum barkarennu. Þegar adrenalín er gefið í
æð eða beinmerg skal nota styrkleikann 0,1 mg/ml
(1:10.000), en 1 mg/ml (1:1000) ef það er gefið
í gegnum barkarennu. Endurtaka má gjöf adr-
enalíns á 3-5 mínútna fresti ef á þarf að halda.
Atrópín
Atrópín hraðar á hjartslætti og eykur leiðni í AV-
hnúti (nodus atrioventricularis) með því að hemja
viðbrögð parasympatíska taugkerfisins. Atrópín
skal gefa ef hjartsláttur barns er enn hægur þrátt
fyrir gjöf adrenalíns. Venjulega eru gefin 0,02 mg/
kg af atrópíni í senn, en lágmarksskammtur er 0,1
mg og hámarksskammtur 3 mg.
Adenosín
Adneosín er núkleotíð sem stöðvar leiðni um
skamma stund milli gátta og slegla og brýtur þann-
ig upp hringrásarhraðtakt (re-entry) vegna auka-
leiðnibrautar gegnum AV-hnútinn. Það hefur mjög
stuttan helmingunartíma (10 sekúndur) og fáar
aukaverkanir. Gefa skal 0,1 mg/kg hratt í æð sem
næst hjartanu og fylgja því eftir með 3-5 ml af 0,9%
saltvatni. Gagnlegt getur verið að nota þriggja rása
vökvakrana til að flýta fyrir við gjöf lyfsins.
Amíódarón
Amíódarón hefur áhrif á adrenerg viðtæki í
hjartavöðva (non competitive inhibitor) og hægir
á leiðni í leiðslukerfi hjartans og AV-hnúti. Það
er fyrsta lyf við sleglahraðtakti og sleglaflökti, líkt
og hjá fullorðnum. Skammturinn er 5 mg/kg og er
lyfið leyst upp í 5% sykurlausn. Ef barn er ekki
með greinanlegan púls eða önnur merki um blóð-
flæði skal gefa lyfið hratt í bláæð eða beinmerg. Ef
barn er með merki um blóðflæði skal lyfið gefið á
10-20 mínútum. Helsta aukaverkun þess er blóð-
þrýstingsfall og hægataktur sem bregðast má við
með því að hægja á lyfjagjöfinni.
Mynd 9. Hjartalinoð á
barni með annarri hendi.
Mynd 10. Hjartahnoð á
barni með báðum hönd-
um.
Vasópressín
Vasópressín eykur viðnám í slagæðum og hefur
verið notað við endurlífgun á fullorðum. Þar sem
notkun þess hefur lítið verið rannsökuð við end-
urlífgun á börnum (25) er ekki hægt að mæla með
því í þeim tilgangi enn sem komið er (7).
Læknablaðið 2006/92 787