Læknablaðið - 15.11.2006, Page 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Þann 8. október 2003 skipaði þáverandi heil-
brigðisráðherra nefnd til að endurskoða lög um
heilbrigðisþjónustu. Eftir að hafa leitað umsagna
skilaði hún tillögum sínum til ráðherra þann 12.
apríl sl.
Vert er að vekja athygli lækna á ýmsu sem í
frumvarpsdrögunum felst. Margt er þar fært til
betri og nútímalegri vegar en hinu verður ekki
á móti mælt að verulega er styrkt vald ráðherra
til miðstýringar á öllum sviðum heilbrigðismála
og sömuleiðis eru völd forstjóra heilbrigðisstofn-
ana efld til muna. Af þessu leiðir að markvisst er
dregið úr áhrifum fagstétta, svo sem lækna á öllum
sviðum.
Ég vil hvetja lækna til að lesa frumvarpsdrögin
en vil í þessum stutta pistli draga fram nokkur um-
hugsunarverð atriði:
• Landinu er skipt í heilbrigðisumdæmi og í hverju
umdæmi skal starfrækt sérstök heilbrigðisstofnun.
• Ráðherra hefur heimild til að ákveða magn tiltek-
innar heilbrigðisþjónustu og hvar hún skuli veitt.
Hann getur til að mynda ákveðið að tiltekin heil-
brigðisþjónusta með greiðsluþátttöku ríkisins skuli
einungis veitt innan heilbrigðisstofnana sem reknar
eru af ríkinu.
• Ráðherra hefur heimild til að takmarka samnings-
gerð við hluta þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem
veitt geta þá þjónustu sem samið er um. Heimilt er
að auglýsa eftir aðilum á samning eða leita tilboða
frá þeim sem veitt geta þjónustuna.
• Ráðherra skipar forstjóra heilbrigðisstofnana og
eru þeir æðstu yfirmenn hverrar stofnunar. Ekki eru
gerðar kröfur til þeirra um tiltekna menntun.
• Forstjórum heilbrigðisstofnana er falið að ráða
starfslið þeirra, þar á meðal alla lækna.
• Forstjóri gerir tillögur um skipurit viðkomandi stofn-
unar og leggur fyrir ráðherra til staðfestingar.
• Framkvæmdastjórn er skipuð forstjóra heilbrigð-
isstofnunar auk framkvæmdastjóra lækninga og
framkvæmdastjóra hjúkrunar. Framkvæmdastjórn
hefur ekki ákvörðunarvald í málefnum tiltekinnar
stofnunar heldur er henni fyrst og fremst ætlað að
vera forstjóra til ráðgjafar.
• Forstjóri skipar lækningaforstjóra.
• Hvergi er fjallað um stjórnunarlega ábyrgð yf-
irlækna.
• Veitt er heimild til stofnunar fagráðs allra starfs-
manna innan heilbrigðisstofnana sem geti komið
í stað læknaráðs og hjúkrunarráðs. Fari þó svo að
læknaráð starfi áfram við stofnunina er dregið úr
áhrifum þess og er forstjóra og framkvæmdastjórn
nú aðeins skylt að leita álits þess um mikilvægar
ákvarðanir er varða læknisþjónustu stofnunarinnar
en ekki allt sem varðar læknisþjónustu sjúkrahússins
eins og er í núgildandi lögunt.
• Stjórnarnefnd Landspítala er lögð niður en í hennar
stað skipar ráðherra ráðgjafarnefnd án tilnefninga
sem hafi eingöngu ráðgjafar- og stuðningshlutverk.
Þá er henni falið að tryggja tengsl spítalans við
þjóðfélagið. Forstjóri skal boða til upplýsinga- og
samráðsfunda með nefndinni eftir þörfum en þó eigi
sjaldnar en tvisvar á ári.
• Landspítali er skilgreindur sem háskólasjúkrahús.
• Sjúkrahúsið á Akureyri er skilgreint sem kennslu-
sjúkrahús.
• Ráðherra skipar sérstaka samninganefnd án til-
nefninga til að annast samningagerð um heilbrigð-
isþjónustu fyrir sína hönd. Áður höfðu tveir nefnd-
armanna verið skipaðir samkvæmt tilnefningu frá
Tryggingastofnun ríkisins og fjármálaráðherra.
• Mælt er fyrir um skipan stöðunefndar lækna.
Ráðherra skipar í nefndina að fengnum tillögum frá
Læknafélagi Islands, landlækni og Háskóla íslands.
Hún hefur þó eingöngu það hlutverk að meta faglega
hæfni umsækjenda um stjórnunarstöður innan lækn-
inga sem forstjóri síðan getur ráðið hvern þann í sem
stöðunefnd hefur metið hæfan. Mat á hæfni umsækj-
enda um stöður sérfræðinga á sjúkrahúsum og öðrum
heilbrigðisstofnunum og stöðum heilsugæslulækna
sem ekki gegna stjórnunarstöðum verður alfarið á
ábyrgð forstjóra viðkomandi heilbrigðisstofnunar án
aðkomu stöðunefndar.
Verði frumvarpið óbreytt að lögum má öllum
ljóst vera að ráðherra heilbrigðismála og forstjórar
heilbrigðisstofnana skipaðir af honum munu hafa
öll ráð heilbrigðismála landsins í henda sér. Aðrir
aðilar verða í besta falli ráðgefandi. Markvisst er
dregið úr áhrifum fagstétta. Athygli vekur hve
mjög er dregið úr lögbundnum áhrifum læknastétt-
arinnar við alla stefnumörkun og stjórnun innan
heilbrigðiskerfisins. Hvort sem mönnum líkar
betur eða verr verður ekki fram hjá því litið að
innan heilbrigðismála eru læknar stjórnendur með
lengst nám og þjálfun allra stétta að baki.
Enn og aftur hvet ég lækna til að lesa frumvarps-
drögin. Hafi þeir eitthvað við þau að athuga er ekki
úr vegi að láta í sér heyra. Einnig er sjálfsagt að
inna þingmenn eftir afstöðu þeirra til frumvarpsins
nú á kosningavetri.
Sigurður
Böðvarsson
Höfundur er formaður
stjórnar LR og jafnframt
meðstjórnandi í stjórn LÍ.
Sérgrein: lyf- og
krabbameinslækningar.
í pistlunum Af sjónarhóli
stjórnar birta stjórnarmenn LÍ
sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Læknablaðið 2006/92 795