Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2006, Síða 49

Læknablaðið - 15.11.2006, Síða 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MÁLÞING orðið í læknisþjónustu á landsbyggðinni. Ég er þó bjartsýnn á framtíðina og þróun HÞ. Hugmynda- ríkt, öflugt fólk hefur kontið lil starfa og tekið við stjórnartaumum, brotið er upp á markverðum nýj- ungum og ég finn að andinn innan stofnunarinnar er léttur, framsækinn og áræðinn. Allra ánægð- astur er ég þó með að hér skuli hafin kennsla læknanema og unglækna í heimilislækningum. Engum er það ljósara en heimilislæknum að starfs- þjálfun lækna verður að fara fram að verulegu leyti úti á akrinum. Starf heimilislæknis í strjálbýli er frábrugðið starfi í borg. Þeir eiga miklar þakkir skyldar sem komu þessurn kennsluþætti í í kring því fátt er eins gefandi og samstarf við kröfuhart ungt fólk sem knýr okkur til stöðugrar endurskoð- unar og að horfa sífellt fram á veginn. Megi það verða aðal Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga.” Einn í héraði Sigurður Halldórsson stundaði framhaldsnám í heimilislækningum í Svíþjóð og hóf störf á Kópaskeri 1984. „Astæður þess að ég ákvað að fara í einmenningshérað voru aðallega þær að ég átti fjölskyldu á svæðinu og mig langaði að spreyta mig á því að vera eigin herra og skipuleggja mitt starf sjálfur. A þessum tíma var mikil umræða um hlutverk heimilislæknisins, að hann væri sjálfsagð- ur fyrsti hlekkur heilbrigðiskerfisins gagnvart skjólstæðingum og aðgengi að honum væri gott. Ég þóttist sjá að öll þessi skilyrði gæti ég uppfyllt í einmenningshéraði. Okostir einmenningshéraða eru ljósir. Það er fagleg og að hluta til félagsleg einangrun, vaktbind- ing, lítið aðgengi að sérfræðiþjónustu, bæði lækna og annarra fagstétta. Óöryggi varðandi afleys- ingar er geysilega stórt atriði þó ég telji það síðast. Ýmislegt hefur breyst á þessum 20 árum. Bylting hefur orðið í fjarskiptamálum. Þegar ég byrjaði var símasamband bæði lítið og lélegt. Samgöngur hafa stórbatnað þó mér finnist að okkar landshorn hafi setið eftir hvað það varðar. Þetta hefur breytt miklu um að koma fólki frá sér á önnur sjúkra- hús, bráðveiku fólki eða stórslösuðu.Tölvuvæðing hefur einnig breytt talsverðu og minnkað einangr- un. Ég hef reynt að vinna gegn einangrun og leiða í starfi með því að nýta mér reglulega námsleyfisrétt og standa vörð um aukinn frírétt.” Sigurður ræddi síðan um reynsluna af sam- einingu læknishéraða undir HÞ og sagði hana jákvæða. „Ég var fylgjandi þessu frá byrjun og samstarfið hefur gengið vel. Ég trúi á þessa ein- ingu og er viss um að stærri eining, Sjúkrahús Norðurlands, yrði of stór og þá tapaðist yfirsýn yfir starf sem unnið er á þessu stóra svæði. Ég vil í framtíðinni sjá HÞ á Húsavík sem grunneiningu á svæðinu og að heilbrigðisþjónusta verði áfram opinber rekstur, í höndum ríkis eða sveitarfélaga. Ég sé ekki grundvöll fyrir einkarekstri heilbrigð- isþjónustu í dreifbýli hér.” Sigurður kvaðst geta séð fyrir sér að bættar samgöngur um Norður-Þingeyjarsýslu sköpuðu grundvöll fyrir einni læknavakt sem sinnti þorp- unum þremur og þannig leystist afleysingavand- inn. Framtíð heimilislækninga Elínborg Bárðardóttir formaður Félags íslenskra heimilislækna ræddi stöðu heimilislækninga, upp- byggingu grunnþjónustunnar og hlutverk heim- ilislækna. Hún benti á að í Reykjavík eru starfandi 110 heimilislæknar, þar af 25 sjálfstætt starf- andi, 12 á eigin vegum og 13 hjá sjálfstætt reknu heilsugæslustöðvunum í Salahverfi og Lágmúla. Hún kvaðst sjá möguleika á því að sjálfstætt starf- andi heimilislæknum gæti fjölgað í Reykjavík og á stærstu þéttbýlisstöðunum og vísaði til viljayfir- lýsingar heilbrigðisráðherra frá 2002 um fjölgun sjálfstætt starfandi heimilislækna. Þátttakendur ípall- borði frá vinstri: Sigurður Guðmundsson, Pétur Pétursson, Elínborg Bárðardóttir, Jóhann Agúst Sigurðsson, Sigurður Halldórsson, Gísli Auðunsson og Hallgrímur Hreiðarsson. Læknablaðið 2006/92
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.