Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.2006, Qupperneq 55

Læknablaðið - 15.11.2006, Qupperneq 55
UMRÆÐA & FRETTIR / WMA Jón forsetí - WMA Á aðalfundi Alþjóðasamtaka lækna (World Medical Association) var Jón Snædal kjörinn næsti forseti samtakanna. Jón tekur formlega við embættinu að ári þar sem sá háttur er hafður á við skipan forseta að hann er kjörinn ári fyrr og því er árið sem fer í hönd eins konar undirbúningsár. Aðspurður um hvernig þetta hefði komið til svaraði Jón að þetta væri fyrst og fremst við- urkenning á því að fulltrúar Læknafélags íslands hefðu verið virkir innan samtakanna undanfarin ár. „Það má líka þakka kjör mitt því hversu vel fulltrúar læknasamtaka á Norðurlöndunum stóðu saman. Þetta hefur þau áhrif að hlustað er meira á okkar sjónarmið. Sigurbjörn Sveinsson formaður LI hefur meðal annars beitt sér í innri málum sam- takanna svo sem um kostun utanaðkomandi aðila á verkefnum á vegum samtakanna. Það er mikill menningarmunur á afstöðu einstakra félaga til þessa, annars vegar Bandaríkjamenn sem telja að kostun af hálfu fyrirtækja sé mjög ásættanleg til að koma verkefnum á legg og hins vegar Norðurlönd- in sem hafa staðið talsvert gegn þessu og viljað setja ákveðnari skorður. Þetta er ágreiningsefni innan samtakanna og ekki búið að leysa úr því en staðreyndin er þó sú að langflest verkefni á vegum samtakanna eru kostuð með aðildargjöldum svo kostun er mjög lítil og hefur minnkað á allra síð- ustu árum. Þetta er eitt dæmi þar sem hlustað hefur verið á okkar sjónarmið.” Á hvaða sviðum beita Alþjóðasamtökin sér einna helst? „Samtökin gefa út yfirlýsingar og ályktanir fyrst og fremst um siðferðileg málefni en einnig um almenn heilbrigðismál, svo sem framboð og aðgengi að heilbrigðisþjónustu og jafnan aðgang að henni hvar sem er. Þau hafa einnig reynt að hafa áhrif á stjórnvöld varðandi faraldra, notkun tóbaks og áfengis, ofbeldi og ölvunarakstur. Sam- tökin beina ályktunum sínum gjarnan að lækna- félögum í viðkomandi löndum og hvetja þau til að hafa áhrif á stjórnvöld heimafyrir. Síðan eru aðrar yfirlýsingar sem eiga að hafa almennari skírskotun og ná lengra. Þekktasta dæmið er Helsinkiyfirlýs- ingin sem fjallar um rannsóknir á mönnum með þátttöku manna. Sú yfirlýsing er nú grunnurinn að öllum rannsóknum á mönnum og yfirleitt eru slík- ar rannsóknir ekki leyfðar í dag nema skilmálum Helsinkiyfirlýsingarinnar sé fylgt. Samtökin reyna einnig að hafa áhrif á aðrar alþjóðastofnanir, eins og Alþjóðaheilbrigðisstofnunina WHO, og fylgist með því hvað þessar stofnanir hafa á prjónunum og reyna að hafa áhrif á stefnumótun þeirra. Dæmi um góða samvinnu þessara aðila er afstaða til tóbaks en dæmi um hið gagnstæða er að í síðustu yfirlitsskýrslu WHO (World Health Report 2006) er ýtt undir þá hugmynd að mennta megi fólk til að sinna heilbrigðisþjónustu með styttri námskeiðum svo komið verði til móts við þörfina á þeim svæð- um í heiminum þar sem lítið framboð er af mennt- uðu starfsfólki. Með þessu er verið að búa til nýja stétt heilbrigðisstarfsmanna með miklu minni þekkingu en vissulega er verið að bæta úr brýnni þörf. Alþjóðasamtök lækna hafa skilning á því að bæta þurfi úr þessari þörf en þau hafa engu að síður sett sig upp á móti þessu þar sem ljóst er að sum ríki líta á þetta sem leið til að spara menntun heilbrigðisstarfsfólks og að þessi leið verði miklu útbreiddari en lagt er upp með.” Jón segir að sér hafi komið nokkuð á óvart að núverandi forseti samtakanna sem er frá Malasíu, hyggist leggja áherslu á lífsstílssjúkdóma, velmeg- unarsjúkdóma, sem margir telja að séu fyrst og fremst vandi Vesturlanda. „Hann tjáði mér að hans helstu áhersluatriði yrðu fyrst og fremst lífsstílssjúkdómar sem væru stórt vandamál í SA-Asíu. Og vandinn er af svip- uðum toga og vestrænum ríkjurn. Orkurík fæða er sú ódýrasta sem fólk getur fengið. Þetta er því sá Jón Snœdat öldrunarlœkn- ir sem verður forseti Alþjóðasamtaka lœkna árið 2007-2008. Hávar Sigurjónsson Læknablaðið 2006/92 803
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.