Læknablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 70
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VERÐLAUN
Anders Jahre verðlaunin í læknisfræði
Hannes Pélursson
Hávar
Sigurjónsson
Hannes Pétursson geðlæknir tók sæti í haust
í stjórn hins virta sjóðs sem stofnaður var af
Norðmanninum Anders Jahre og eru verðlaunin
úr sjóðnum þau stærstu í rannsóknum í líf- og
læknisfræði á Norðurlöndunum. Aðalverðlaunin
veitir háskólinn í Osló og eru þau ein milljón
norskra króna.
Læknablaðið fór þess á leit við Hannes að hann
gerði grein fyrir verðlaununum og skýrði frá sögu
þeirra og tilurð. Varð hann góðfúslega við því.
„Að þessu sinni hlaut Jón Storm-Mathisen
prófessor í Osló stærri verðlaunin fyrir brautryðj-
andarannsóknir á boðefnum í heilanum, einkum
fyrir rannsóknir á glútamate. Úr hópi yngri vís-
indamanna deildu þeir Farrukh Abbas Chaudhry
prófessor við háskólann í Osló og Poul Nissen
prófessor við háskólann í Árhus með sér verðlaun-
um yngri vísindamanna. Chaudhry hefur stundað
rannsóknir á flutningspróteinum fyrir glútamate
og glútamín. Poul Nissen hlýtur verðlaunin fyrir
störf sín við kortlagningu á byggingu þýðingarmik-
illa frumupróteina sem tengjast próteinmyndunum
og flutningi yfir frumuhimnur.
Anders Jahre verðlaunin eru veitt fyrir fram-
úrskarandi rannsóknir á sviði læknisfræði á
Norðurlöndum. Öllum virkum prófessorum í
læknisfræði á Norðurlöndunum er boðið að senda
tilnefningar til valnefndar og berist í lokuðu um-
slagi til formanns nefndarinnar, Ole M. Sejersted
dr.med. Heimilisfang: Institute for Experimental
Medical Research, Ullevaal University Hospital,
N-0407 Oslo, Noregi. Tilnefningar þurfa að vera
í fimm eintökum. Valnefnd tekur afstöðu til til-
nefninga en meðal fylgigagna þarf ítarleg með-
mæli fyrir þann sem tilnefndur er auk lista yfir
vísindaleg verk og curriculum vitae. Erindi á að
senda á ensku og valnefnd tekur ekki við tillögum
á myndsendi. I ár þurftu tilnefningar að berast
formanni nefndarinnar fyrir 1. febrúar en dagsetn-
ing fyrir næsta ár hefur enn ekki verið ákveðin.
Fyrirspurnum má beina til formanns valnefndar:
o.m.sejersted@medisin.mio.no
Anders August Jahre (1891-1982) var Norð-
maður sem m.a. fékkst við skipaútgerð. Hann var
þó betur þekktur fyrir hvalveiðar sem hann stund-
aði frá Sandefjord. Hann stofnaði auk þess verk-
smiðjur sem unnu úr hvalaafurðum. Hann lærði
lögfræði og lagði stund á þá grein um árabil þar til
umsvif hans í skipaútgerð urðu hans aðalverkefni.
Anders Jahre hlaut ýmsa virðingu og var heiðr-
aður í Noregi og víðar. Hann var útnefndur heið-
ursdoktor í Osló fyrir stuðning hans við vísinda-
störf við háskólann þar. Hann hlaut sömu nafnbót
í Lundi og var heiðursfélagi í vísindaakademíunni,
norræna félaginu í læknisfræði í Stokkhólmi og
norska læknafélaginu í Osló. Anders Jahre veitti
auk þess stuðning á sviði menningarmála og vel-
ferðar.“
Lausar læknastofur Hef opnað stofu
í Keflavík í Læknastöðinni í Mtli
og á Selfossi Glæsibæ, aðgerðir á sama stað jk
Höfum lausar stofur með góðri aðstöðu á efri hæð í hús- næði Lyfju í Keflavík og á Selfossi. Bókunarþjónusta og ORRI ÞÓR ORMARSSON HHH^Hk
biðstofa til staðar.
Allar frekari upplýsingar veitir sérgrein BARNASKURÐLÆKNINGAR,
Þórbergur Egilsson í síma 693 2225 ALMENNAR SKURÐLÆKNINGAR
eða í rafpósti: the@lyfja.is Tímapantanir alla daga í síma 5356800
818 Læknablaðið 2006/92