Læknablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 87
HUGLEIÐING HÖFUNDAR
Frumkvæðið
hugleiðing um breytta heimsmynd
Ég orðið þeirrar gæfu aðnjótandi á síðustu árum
að fá að meðtaka mjög einfaldan sannleika sem
stór hluti mannkynsins hefur litið á sem sjálfsagða
staðreynd frá örófi alda. Ég hef sem sagt komist að
því að ef ég er í sæmilegu andlegu jafnvægi gengur
mér betur að glíma við lífið frá degi til dags. Og
þegar svo var fyrir mér komið að andleg líðan
mín var í jafnvægi dag eftir dag, viku eftir viku, og
heilu misserin jafnvel, fór sú tilfinning að vera við-
varandi að flestir mínir draumar gætu ræst. Ef ég
væri reiðubúin til að leggja mig alla fram og halda
áfram á þessari þroskabraut, skref fyrir skref, væru
mér svo að segja allir vegir færir. Og þá áttaði ég
mig á því hvað mannshugurinn er merkilegt fyr-
irbæri, flókið og einfalt í senn. Það virðist nefnilega
vera þannig að þegar maðurinn hefur yfirstigið
hindranirnar í sínum eigin huga eru honum engin
takmörk sett. Þá verður honum ekkert lengur
ómögulegt. Og það er mjög magnað að uppgötva
þessar einföldu staðreyndir lífsins, sérstaklega
fyrir manneskju eins og mig.
Það sem síðan fylgir með í þessum mjúka
pakka eru ný og betri gleraugu í staðinn fyrir þessi
gömlu og rispuðu og þegar þau eru kominn á nefið
breytist allt umhverfi manns með undursamlegum
hætti til batnaðar. Eiginmaðurinn, fjölskyldan,
vinirnir og vinnufélagarnir verða allt í einu þol-
anlegri, fréttirnar í fjölmiðlunum verða jákvæðari
og skemmtilegri, ökumenn verða tillitssamari í
umferðinni og veðrið mun betra en maður á að
venjast. Það verður allt í einu gaman að vakna á
morgnana og öll þau viðfangsefni sem uxu manni
áður í augum leysast annaðhvort sjálfkrafa eða
breytast í tækifæri til að reyna á sig og þroskast.
Síðan kemur sá tími að maður fer að sjá það góða í
sérhverri manneskju og þá minnkar ósjálfrátt vægi
þess sem ekki er í lagi og í sumum tilfellum hverfur
það alveg þegar fram líða stundir. Allt kemur þetta
stórkostlega á óvart til að byrja með en svo áttar
maður sig smám saman á því að það hefur ekkert
breyst - nema maður sjálfur. Og þvílík breyting!
Það er ekkert skrýtið þótt maður detti eitt augna-
blik ofan í gamla ásökunartóninn og spyrji eins og
óábyrgur velferðarsamfélagsþegn: Af hverju sagði
mér enginn frá þessu fyrr?!
Þeirri spurningu er auðsvarað. Ef ég undanskil
foreldra mína sem gerðu alla tíð sitt besta til að ég
mætti þroskast og dafna og sný mér að stofnunum
þjóðfélagsins má tína þar ýmislegt til. Skólakerfið
var til dæmis langt frá því að vera fullkomið á þeim
árum sem ég var að alast upp. Þjóðkirkjan og flest
önnur trúarsamfélög treystu því enn í of ríkum
mæli að hræðsluáróður væri ágætis aðferð til að
breiða út fagnaðarerindið. Og heilbrigðiskerfið
- og þá er komið að því að ég andvarpi, eins og
Sigfús Daðason í ljóðinu um Jafet gamla á Efsta-
bæ: Æ! Heilbrigðiskerfið! Öll mín fullorðinsár
hefur heilbrigðiskerfið verið í krísu. Að mínu mati
er það ekkert svo fjarri lagi að líkja útþenslunni
og samdrættinum sem einkennt hefur íslenska
heilbrigðiskerfið síðustu áratugina við alkóhólíska
afneitun. Fyrstu árin er allt í uppsveiflu og fjörið
á djamminu yfirskyggir allt annað. Síðan fer að
halla undan fæti og leiðindin og lasleikinn varpa
sífellt stærri skugga á skemmtunina. Síðustu árin
ríkir ömurleikinn einn og þá er líðanin alltaf jafn-
slæm hversu mikið sem drukkið er. En þótt þessi
litla samlíking sé ágæt eins langt og hún nær er
þetta engu að síður útúrdúr frá meginefni pistils-
ins. Stofnanir samfélagsins samanstanda nefnilega
af borgurum þessa sama samfélags og þær verða
aldrei betri en þeir. Stofnanir samfélagsins gera
ekki annað en endurspegla ríkjandi viðhorf á
hverjum tíma og þær kröfur sem fólkið í landinu
gerir til lífsins.
Til að svara spurningunni hér að framan verð
ég að viðurkenna að fjöldinn allur af fólki, þar
á meðal kennarar, prestar og læknar, reyndu sitt
besta til að beina mér inn á rétta braut í gegnum
tíðina án þess hafa erindi sem erfiði. Ef það náði
á annað borð eyrum mínum trúði ég því ekki að
lífið gæti verið svona einfalt. Lífið, var í mínum
huga, aldrei hér og aldrei nú. Ég lifði aldrei einn
dag í einu. Ég var ýmist stödd í fortíðinni eða fram-
tíðinni. Annaðhvort upptekin við að velta mér
uppúr vonbrigðum og mistökum fortíðarinnar eða
önnum kafin við að koma böndum á allt það sem
hugsanlega gæti eyðilagt fyrir mér framtíðina. En á
síðustu árum hef ég lært að það eina sem er í mínu
valdi að stjórna í þessum heimi er það hvernig ég
bregst við því sem gerist frá degi til dags - hvernig
ég bregst við lífinu sjálfu. Og því get ég breytt - hér
og nú!
hugmyndin um tilgang
lífsins tœr eins og ískristall
meðan horfi á orðið
sem ég skrifaði í móðuna
á gufubaðsrúðunni hverfa
Linda
Vilhjálmsdóttir
Unda vHhjihraJduir
írostfiðrildin
Linda Vilhjálmsdóttir
er rithöfundur (1958).
Ljóð Lindu hafa birst víða
en fyrsta Ijóðabók hennar,
Bláþráður, kom út 1990.
Síðan hefur hún sent frá sér
fleiri Ijóðabækur og leikrit og
Ijóðverk eftir hana hafa verið
sett upp í Borgarleikhúsinu
og Kaffileikhúsinu. Þá voru
Ijóð hennar sýnd á Kjarvals-
stöðum í apríl 1993. Fyrsta
skáldsaga Lindu, Lygasaga,
kom út 2003. Linda hlaut
Menningarverðlaun DV
árið 1993 fyrir Ijóðabókina
Klakabörnin. Ljóð hennar
hafa birst í erlendum þýð-
ingum í safnritum. - Nýjasta
Ijóðabók Lindu, Frostfiðrildin
er væntanleg, á markað í
haust, Ijóðið til vinstri er úr
henni.
Læknablaðið 2006/92 835