Fréttatíminn - 24.10.2014, Qupperneq 12
M
Meginniðurstöður nýrrar þjóðhagsspár
Greiningar Íslandsbanka eru þær að þrótt-
mikill hagvöxtur sé fram undan, horfur séu
á kröftugum vexti í einkaneyslu, atvinnu-
ástand haldi áfram að batna, aukning verði
í fjárfestingum atvinnulífsins en óvissa sé
um þróun krónunnar. Í spánni kemur fram
að hagvaxtarhorfur séu heilt á litið góðar og
að hagur heimila og fyrirtækja muni halda
áfram að batna. Óvissa sé hins vegar um þró-
un krónunnar næstu misseri
í ljósi greiðslujafnaðarvanda
þjóðarbúsins, og sömu leiðis
um uppgjör búa föllnu fjár-
málafyrirtækjanna og áhrif
fyrirhugaðra tilslakana sem
gerðar verði á fjármagnshöft-
um á spátímabilinu, fram til
ársins 2016. Spáin byggir á því
að þær tilslakanir sem gerðar
verið á fjármagnshöftum verði
framkvæmdar þannig að þær
raski ekki stöðugleika á gjald-
eyrismarkaði.
Við höfum búið við fjármagnshöft um sex
ára skeið en þau áttu að vera til bráðabirgða
í kjölfar efnahagshrunsins. Varla er um það
deilt að afnám þeirra er eitt af brýnni hags-
munamálum þjóðarinnar en verkið er vanda-
samt. Sérfræðingar leita nú heppilegra leiða
til losunar haftanna en í júlí síðastliðnum
samdi fjármála- og efnhagsráðuneytið við er-
lenda ráðgjafa sem nú vinna með íslenskum
stjórnvöldum að losun þeirra. Jafnframt voru
ráðnir íslenskir sérfræðingar til að vinna að
málinu með erlendu sérfræðingunum. Mark-
miðið er að finna heildstæða lausn sem tekur
á öllum þáttum fjármagnshaftanna. Vinnan
snýr bæði að lagalegum og efnahagslegum
þáttum. Með verkinu fylgist samráðsnefnd
þingflokka, svo sem eðlilegt er í slíku stór-
máli.
Fram hefur komið hjá fjármála- og efna-
hagsráðuneytinu að skilyrði eru til þess að
stíga næstu skref í losun fjármagnshafta.
Aðgengi ríkissjóðs að erlendum lánamörkuð-
um er gott og afgangur af rekstri ríkissjóðs
og lækkun skulda eru mikilvæg skref í átt að
losun haftanna.
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, bendir á að núna sé
tækifæri til að losa um höftin. Efnahagslífið
sé í ágætu jafnvægi, verðbólga lítil, hagvöxt-
ur hafi aukist á nýjan leik, afgangur sé af við-
skiptum við útlönd og aðgangur að erlendum
lánamörkuðum hafi opnast á viðunandi
kjörum. Vextir ytra séu í sögulegu lágmarki
og vaxtamunur við viðskiptalöndin styðji við
gengi krónunnar. „Það er ekki víst,“ segir
Þorsteinn, „að svo hagstæðar aðstæður muni
bjóðast lengi meðal annars vegna þenslu-
áhrifa sem höftin hafa á íslenskt efnahags-
líf. Það er því ekki eftir neinu að bíða.“ Hann
nefnir og að fram hafi komið í nýrri skýrslu
Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika
að frá því að höftunum var komið á hafi aldrei
verið eins góðar aðstæður til að losa þau og
nú.
Um leið og framkvæmdastjórinn brýnir
stjórnvöld til afnáms haftanna nefnir hann
vankanta þeirra þar sem þau hamla uppbygg-
ingu útflutningsfyrirtækja, auk neikvæðra
áhrifa á lánshæfi landsins og þeirrar ógnar
sem þau eru við efnahagslegt jafnvægi.
„Gjaldeyrishöftin eru skaðleg þar sem þau
brengla sýn og stuðla að rangri verðlagningu
krónunnar og helstu eignamarkaða. Hætta
er á að hagkerfið ofhitni innan hafta, verð-
bólga aukist og leiði á endanum til gengisfell-
ingar,“ segir Þorsteinn og bendir á að slíkt sé
hringekja sem Íslendingar þekki allt of vel.
Ótalinn sé þá kostnaður vegna glataðra tæki-
færa, færri nýrra fyrirtækja og brotthvarfs
annarra úr landi vegna óviðunandi rekstrar-
skilyrða. „Stærsta efnahagslega áhætta Ís-
lendinga felst ekki í afnámi hafta heldur í
hættunni á að búa við þau um ókomna tíð.“
Ónefnt er þá hve höftin þrengja að fjár-
festingakostum lífeyrissjóða. Allt stefnir í
að eignarhluti þeirra í íslensku efnahags-
lífi verði meira en góðu hófi gegnir. Úti-
lokað er að binda eignir sjóðanna til fram-
búðar alfarið með fjárfestingum hér á landi.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
fullyrðir að gjaldeyrishöftin séu uppskrift að
nýrri kreppu.
Allt sviðið er til skoðunar hjá fyrrnefndum
sérfræðingahópum stjórnvalda. Þar er að
ýmsu að hyggja og verkefnið fráleitt auðvelt –
en sé lag nú, ber að nýta það.
Hagstæð skilyrði til losunar gjaldeyrishafta
Tækifærið gríptu greitt
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
www.forlagid.is
– alvöru bókabúð á netinu
LJÓÐ
UM
GL ÆP
þetta hlaut
að fara
illa
hlaut
12 viðhorf Helgin 24.—26. október 2014