Fréttatíminn - 24.10.2014, Blaðsíða 70
heilsa Helgin 24.—26. október 20142
Holtasmára 1
(Hjartarverndarhúsinu)
Sími 517 8500
Opið virka daga 11-18
og laugard. 12-17
facebook.com/barnshafandi
Ný sending frá
Tvö Líf er verslun fyrir
verðandi og nýbakaða
foreldra, hjá okkur
færðu fatnað fyrir
meðgöngu og brjóstag-
jöf, nauðsynlega
fylgihluti fyrir móður
og barn, ásamt fallegri
gjafavöru!
www.tvolif.is
geggjuð föt á
frábæru verði
Jakobína
Jónsdóttir
Grunnpakki kvenna
NOW er breið lína hágæða fæðubótarefna sem er án allra óæskilegra
aukefna, svo sem litar-, bragð- og rotvarnarefna og ódýrra uppfylliefna.
w
w
w
.n
o
w
fo
o
d
s.is
www.facebook.com/nowfoodsiceland
G æ ð i • H r e i n l e i k i • V i r k n i
Í grunnpakka NOW eru hágæða
fjölvítamín með steinefnum, D3
vítamín og omega-3 fiskolía en það
eru þau lykil næringarefni sem eru
líkamanum nauðsynleg til að starfa
eðlilega og viðhalda heilbrigði.
S nufflebabe Vapour Rub og olía hafa reynst vel til þess að draga úr einkennum
kvefs hjá ungbörnum. Olíuna má
nota frá fæðingu og smyrslið frá
þriggja mánaða aldri. Smyrslið er
eina varan sinnar tegundar sem
nota má á svo ung börn. Það inni-
heldur blöndu af róandi, náttúru-
legu eucalyptus og timjan olíu með
mentóli. Markmiðið er að hreinsa
öndunarveg barnins til að auðvelda
því að nærast við brjóstagjöf og sofa
betur. Vapour Rub er milt smyrsli
sem bera má beint á bringu og háls
barna til að auðvelda öndun. Einnig
er hægt að setja efnið í klút og festa
við rúm barnsins.
Vapour olían virkar á svipaðan hátt.
Hún hreinsar öndunarveginn með
náttúrulegum efnum sem hafa sótt-
hreinsandi og bakteríueyðandi áhrif.
Mild blanda af sítrónu, furu- og te tré
olíu virkar losandi fyrir öndunarveg-
inn og hefur róandi áhrif á barnið.
Allt frá fæðingu má nota olíuna
þannig að hún er sett út í skál af
heitu vatni sem komið er fyrir í
barnaherberginu eða með því að
væta klút með olíunni og setja á ofn.
Olíuna má nota með Snufflebabe
snuði frá því að barnið er þriggja
mánaða. Snufflebabe snuðið er sér-
hannað til að geyma olíuna án þess
að hætta sé á að hún komist í snert-
ingu við barnið. Einnig er í línunni
nefsuga sem hjálpar til við að losa
um stíflur í nefgöngum. Ef hor hefur
náð að þorna og stíflar nefgöng þá er
mælt með að nota Stérimar Baby til
að mýkja og leysa upp horið áður en
það er sogið upp í nefsuguna.
Virk innihaldsefni
í Vapour Rub:
n Eucalyptus Olía 2%
n Mentól 1.5%
n Timjan olía 0.5%
n Öll innihaldsefni eru náttúruleg og
hafa sótthreinsandi áhrif á bakteríur í
öndunarvegi
n Burðarefni: Vaselín
Snufflebabe Vapour rub SmyrSl og Snufflebabe Vapour olía
Má nota Snufflebabe Vapour Rub
fyrir nýfædd börn ?
Mælst er til þess að nota Vapour Rub
fyrir börn eldri en 3ja mánaða. Sé
ætlunin að nota það á yngri börn þá er
æskilegt að ráðfæra sig við lækni, lyfja-
fræðing eða annað heilbrigðismenntað
fólk.
Hver eru virk innihaldsefni Vapour
Rub ?
Eucalyptus olía, mentól og timjan olía.
Burðarefnið er paraffin. Allt náttúruleg
efni sem hafa verið notuð í gegnum
aldirnar til að losa stíflur í efri öndunar-
vegi og létta þannig öndun.
Má nota Vapour Rub með öðrum
lyfjum/meðferðum ?
Ef viðkomandi barn er í einhverskonar
lyfjameðferð er mælst til þess að ráð-
færa sig við lækni áður en notkun hefst.
Eru einhverjar aukaverkanir af
notkun Vapour Rub
Getur hugsanlega valdið ofnæmi/út-
brotum eða roða þar sem það er borið
á bera húð. Ef slíkt gerist þá er mælst til
þess að ráðfæra sig við lækni eða heil-
brigðismenntað fólk.
Er Vapour Rub framleitt úr einhverj-
um dýraafurðum ?
Nei, einungis framleitt úr náttúrulegum
efnum.
Er alkahól í Vapour Rub ?
Nei, Vapour Rub inniheldur ekkert alkahól.
Unnið í samvinnu við
ÝMUS
Spurningar og svör
Snufflebabe er náttúruleg og mild
vörulína sem losar stífluð nef og auð-
veldar öndun fyrir börn frá þriggja
mánaða aldri. Vörurnar hafa verið
lengi á markaði erlendis og njóta
virðingar hjá heilbrigðisstarfsmönnum
og foreldrum þar sem þær þykja mikil-
væg stuðningsmeðferð fyrir stífluð nef
og erfiðleika við öndun vegna kvefs
eða annarra kvilla í efra nefholi.
Lausn fyrir ungabörn
með stíflað nef og kvef
Ekki ofgera þér. Þú gætir þurft að fara
aðeins hægar í sakirnar eftir því sem
líður á meðgönguna. Ef þú ert í vafa
skaltu hafa samband við ljósmóður eða
lækni. Almenna reglan er að þú ættir
að geta átt samtal á meðan þú æfir
þegar þú ert ólétt. Ef þú stundaðir ekki
reglulega hreyfingu áður en þú varðst
ólétt skaltu ekki rjúka af stað á erfiða
æfingu. Mundu að mýkri æfingar bera
líka árangur.
Hitaðu alltaf upp áður en þú byrjar
að æfa og slakaðu á eftir æfinguna
Reyndu að hreyfa þig eitthvað á
hverjum degi. Hálftíma göngutúr á
hverjum degi gæti verið nóg en eitt-
hvað er betra en ekkert.
Forðastu mikla áreynslu í heitu veðri.
Drekktu nóg af vatni.
Ef þú ferð í hóptíma skaltu láta
kennarann vita að þú sért ólétt og hvað
þú ert langt gengin.
Prófaðu að fara í sund.
Æfingar sem ætti að forðast
Ekki liggja flöt á bakinu, sérstaklega
eftir 16 vikur. Bumban ýtir þá á æð sem
ýtir blóði aftur í hjartað sem gæti látið
þér líða eins og þú sért að falla í yfirlið.
Forðastu íþróttir sem fela í sér mikla
snertingu þar sem líkur eru á að þú
verðir fyrir höggi, eins og bardagaí-
þróttir.
Styrkjandi æfingar fyrir kvið
Æfingar sem miða að því að styrkja
kviðinn hjálpa til við að lina bakverki.
Byrjaðu á fjórum fótum með hné undir
mjöðmum, hendur undir öxlum með
fingurna fram og kvið spenntan til að
halda bakinu beinu.
Togaðu inn kviðarvöðvana og lyftu
bakinu upp í átt að lofti og leyfðu
höfðinu að slaka á fram á við. Ekki læsa
olnbogunum.
Haltu þessari stöðu í smá stund og
farðu svo aftur í stöðuna sem þú
byrjaðir í.
Endurtaktu þetta hægt og rólega 10
sinnum
Æfingar fyrir grindarbotninn
Grindarbotnsæfingar hjálpa til við að
styrkja grindarbotnsvöðvana sem gætu
orðið slappir á meðgöngu. Allar óléttar
konur ættu að gera grindarbotnsæf-
ingar, sama á hvaða aldri þær eru.
Til að gera æfinguna skaltu nota
vöðvana til að loka endaþarminum,
eins og til að koma í veg fyrir hægðir.
Á sama tíma skaltu spenna vöðvana í
leghálsinum, eins og til að stoppa þvag.
Fyrst um sinn skaltu gera æfinguna
hratt en svo skaltu gera hana hægar.
Reyndu að gera þrjú sett af 8 æfingum
á dag.
e ftir því sem þú hreyfir þig meira og ert í betra formi, því auðveldara verður það
fyrir þig að aðlagast breytingum á
líkamslögun og þyngd. Ef þú ert í
góðu formi munt þú eiga auðveldara
með að takast á við fæðinguna og að
komast aftur í form eftir fæðingu.
Haltu áfram að stunda þína reglu-
legu hreyfingu svo lengi sem þér
líður vel með það. Hreyfing er ekki
hættuleg fóstrinu.
Heilræði um hreyfingu á meðgöngu
Styrkjandi
æfingar
á meðgöngu