Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.12.2014, Síða 4

Fréttatíminn - 30.12.2014, Síða 4
Signethringur veður Þriðjudagur gamlársdagur Nýársdagur Hæg S-læg átt og rigning eða Slydda með V- og Sa-Ströndinni annarS úrkomulítið. HöfuðborgarSVæðið: Dálítil rigning SuðVeStan 8-15 m/S og rigning en úrkomu- lítið na-til. HöfuðborgarSVæðið: rigning. breytileg átt og dálítli nyrSt og SyðSt og kólnandi Veður HöfuðborgarSVæðið: Skýjað með köflum. meinlítið veður en úrkomusamt vestantil Það er minnkandi suðlæg átt og úrkoma í kortunum í dag, en strekkingur af suðvestri og rigning eða slydda um landi vestanvert í fyrramálið en kólnar smám saman og má gera ráð fyrir lítilsháttar snjókomu eða éljagangi SV-til annað kvöld. flug- eldaveður ætti þó að vera með þokkalegasta móti. á nýársdag er svo útlit fyrir hæga breytilega átt og kólnandi veður. 3 1 1 1 -2 3 1 1 1 3 -3 -5 -5 -6 -3 elín björk Jónasdóttir vedurvaktin@vedurvaktin.is 70 tonn af sandi á milli sextíu og sjötíu tonnum af sandi var dreift á götur reykjavíkurborgar í gær, mánudag. mikil hálka var í borg- inni eins og víða um land. átta bílar voru notaðir til að sanda göturnar. Um 500 missa bætur tæplega 500 manns missa rétt til atvinnuleysisbóta um áramótin þegar ný lög um atvinnuleysistryggingar taka gildi. Hámarksgreiðslutímabil atvinnu- leysisbóta styttist um sex mánuði. Birti myndir frá Íslands- ferðinni tónlistarkonan Beyoncé know les birti mynd ir frá ferð sinni og eig in manns ins, jay Z, til íslands á vef sínum. á mynd- un um má meðal annars sjá Beyoncé færa bónda sínum af mælistert u en tilefni heimsóknarinnar var 45 ára afmæli hans. Keyrðu yfir leiði í Gufunesi Tveir ökumenn sem keyrðu yfir leiði í Gufuneskirkjugarði yfir hátíðarnar hafa gefið sig fram. Báðir hafa lýst iðrun vegna skemmdanna sem þeir ollu. ekki liggur fyrir hversu mikið tjón hlaust af akstri þeirra. Óbreytt verð á flugeldum Verð á flugeldum stendur í stað milli ára og lækkar ekki þrátt fyrir að inn- flutningstollar á vörum frá Kína hafi verið felldir niður með nýjum fríversl- unarsamningi. flugeldasalar bera við auknum flutningskostnaði og segja að samningurinn geri það að verkum að ekki þurfti að hækka verð. 502 tonn af flugeldum voru flutt inn til landsins í ár. Í fyrra voru 406 tonn flutt inn en 648 tonn árið 2012.  vikaN sem var  Ofbeldi óttast fOrdæmiNgu ef Þeir segja frá kyNferðisOfbeldi Karlar faldir þolendur kynferðisofbeldis karlmenn segja síður frá kynferðislegu ofbeldi sem þeir hafa verið beittir og tengja ótta við að opinbera sig við skömm og ótrúverðugleika. Þetta kemur fram í meistaraverkefni önnu Lilju Karelsdóttur sem ber yfirskriftina: „Úr myrkrinu í dags- ljósið. Karlmenn: hinir földu þolendur kynferðisofbeldis.“ Einn þeirra karlmanna sem hún ræddi við var misnotaður sem barn af frænku sinni og aftur 15 ára gamall af vinkonu móður hans. k arlmenn standa fremur aftarlega þegar kemur að þessum málaflokki saman- borið við konur. Þeir ræða síður um ofbeldið og afleiðingar þess við nákomna, en konur geta rætt opin- skátt um aðstæður sínar við fjöl- skyldu og vini,“ segir Anna Lilja Karelsdóttir félagsfræðingur sem í meistaraverkefni sínu í félagsfræði við Háskóla Íslands rannsakaði reynslu og upplifun þolenda kyn- ferðislegrar nauðungar. Anna Lilja lagði sérstaka áherslu á karlkyns þolendur þar sem sýnt hefur verið fram á að félagsleg staða þeirra sé að einhverju leyti verri í samfé- laginu hvað varðar þöggun í þess- um málaflokki. Anna Lilja tók djúpviðtöl við 11 þolendur, 7 karla og 4 konur, á tíma- bilinu 1. febrúar til 10. maí 2014 en í rannsókninni er átt við kynferðis- lega nauðung þannig að „einstak- lingur er neyddur til kynferðislegra athafna með ofbeldi eða þvingun- um.“ Hún bendir á að fræðileg um- fjöllun og rannsóknir á stöðu karla sem þolenda er afar lítil, en meiri áhersla hefur verið lögð á rannsókn- ir á kynferðisofbeldi gegn konum sem framin eru af körlum. Umræða um karlmenn sem þolendur hefur farið vaxandi á opinberum vett- vangi en kynjamunurinn enn afar mikill. Bæði konur og karlar sem Anna Lilja ræddi við upplifðu kvíða, þunglyndi, skömm og reiði, og sér- staka athygli vakti að flestir viðmæl- endurnir þjáðust einnig af líkamleg- um sjúkdómum á borð við gigt og meltingarvandamál sem mögulega eru afleiðingar andlegra erfiðleika í kjölfar ofbeldisins. „Flestir karlanna sem tóku þátt í rannsókninni vísuðu í hugmyndir um karlmennskuna, að karlmenn eigi að vera harðir og ekki sýna til- finningar. Sumir telja slíkar skoð- anir vera ástæður þess að þeir segi síður frá en flestir töldu frekar að ótrúverðugleiki eða skömm eigi stærstan hluta í því að þegja yfir of- beldinu. Viðmælendur voru flestir á því að tilkynna brotin til lögreglu gerði lítið gagn og leita þeir síður til lögreglunnar því þeir vilja forðast að opinbera sig og það ofbeldi sem þeir voru beittir og óttast að félags- lega staða þeirra breytist gagnvart fjölskyldu sinni og vinum,“ segir Anna Lilja. Frásagnar karlanna í rann- sókninni benda raunar til að þær áhyggjur geti átt við rök að styðj- ast. Einn maðurinn ákvað að segja móður sinni og systur frá því að hann hafi orðið fyrir misnotkun sem barn eftir að fjölskyldan hafði horft saman á heimildarmyndina um Breiðavíkurdrengina. „...þá var allt í einu eins og ég mætti aldrei passa eða vera í kringum börnin aftur,“ segir maðurinn í viðtali við Önnu Lilju. Hann var þá fordæmd- ur af fjölskyldu sinni fyrir að hafa verið misnotaður, sama fólki og stuttu áður lýsti því yfir hvað brot- in gegn Breiðavíkurdrengjunum væru hryllileg. Annar maður sem hún tók viðtal við hafði aldrei áður sagt neinum frá því ofbeldi sem hann varð fyrr en hann var misnotaður af konum sem þykir sérstaklega mikið feimn- ismál. Maðurinn var fyrst misnot- aður af frænku sinni þegar hann var barn, síðan 15 ára gamall af vinkonu móður hans og var síðar í sambandi við konu sem beitti hann ofbeldi. „... ég hugsa að jafnvel enn þann dag í dag að ef 15 ára strákur kæmi og kærði 35 ára gamla konu fyrir nauðgun þá yrði honum ekki trúað,“ segir hann. Anna Lilja bendir á að í tengslum við fréttaflutning af því að karlmað- ur sé misnotaður af konu falli gjarn- an ummæli í þá veru að: „Karlmenn eigi að vera þakklátir og ánægðir með að þeim sé sýndur áhugi og þeir komist á séns,“ sem sýni mikla vanþekkingu á málaflokknum. erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is 4 fréttir áramótin 30. desember 2014–1. janúar 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.