Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.12.2014, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 30.12.2014, Blaðsíða 20
É g gerði mér ferð norður á Akureyri núna síðustu helgina fyrir jól. Ferðina dulbjó ég sem bóka- kynningu. Ekki mátti nokkur maður komast á snoðir um að ég væri að greiða fúlgur fjár fyrir flugferð, flugferð til þess eins að berja Bubba minn augum. Þannig að já, ég fór norður til þess að kynna bókina. Þorláksmessutónleikar Bubba á sunnudagskvöldinu voru hrein tilviljun. Stormandi lukkuleg tilviljun. Og óvænt. Svo þvi sé haldið til haga. Ég lagði ýmislegt á mig fyrir þessa tónleika. Nei, ég meina bóka- kynningu. Ég átti flug á afar ókristi- legum tíma. Svaf að sjálfsögðu yfir mig (ekki hanga á Ölstofunni til klukkan fjögur að nóttu þegar þú átt flug sjö að morgni). Keyrði fimmtán ára gömlu ryðhrúguna sem ég kalla bíl inn í snjóskafl skammt frá flug- vellinum og þar sat hann bara fastur. Í stórum skafli úti á miðri götu. Bölv- aður. Það var annað hvort að bjarga bílnum eða eiga stund með Bubba. Já og halda bókakynninguna, auðvi- tað. Hvað geri ég? Nú hrifsa töskuna mína og hleyp af stað. Eins og fætur toga. Rétt næ upp í flugvél og eru örlög bílsins míns mér enn ókunn. Nokkuð klakklaust kemst ég til Akureyrar. Næli mér þar í ljómandi fínan bílaleigubíl og fleygi mér út í umferðina á illa ruddum götum bæjarins. Ekki staldra ég lengi við í umferðinni. Tvær mínútur kannski. Þá er ég komin upp á gangstétt með brunahana óþarflega nálægt stuðar- anum. Frábært. Eftir að hafa hringt skælandi á bílaleiguna, fengið þá til þess að fjarlægja laskað ökutækið og blótað Vegagerðinni (ber hún annars ekki ábyrgð á snjómokstri?) arka ég á nærliggjandi kaffihús. Með arka á ég við að ég óð snjó upp að mitti. Jafnvel lengra. Rassblaut tek ég þá ákvörðun að morgunboll- inn verði af írskum toga. Ekkert að því að sjá unga konu sötra áfengi klukkan níu að morgni. Ekki nokkur skapaður hlutur. Ég sannfærði sjálfa mig um að ég væri á Spáni og pant- aði mér annan bolla. Þrátt fyrir áfenga kaffidrykkju morgunsins gekk bókakynningin stórvel. Norðlendingar eru augljós- lega mikið smekkfólk. Ég fyrirgaf þeim illa ruddar göturnar med det samme. Að mestu. Ég hef ekki enn fengið reikninginn fyrir hrakförum mínum. Mér er að vísu alveg sama. Ég seldi bækur. Sá Bubba. Skítt með einhvern brunahana. Að sjá Bubba á sviði, ég á engin orð, nema eina væna slettu: be still my beating heart. Sjá fingur hans leika fimlega við gítarstrengina. Bónaður skallinn. Dularfull gler- augun. Textarnir. Lögin. Tónleik- arnir hans voru einstök upplifun. Bæði fyrir snarsjúka aðdáendur eins og mig sjálfa sem og aðra. Stemn- ingin í stútfullum salnum gaf að minnsta kosti ekki annað til kynna. Það skyggði hins vegar dálítið á þetta góða kvöld að þegar Bubbi gekk inn á sviðið og allt ætlaði um koll að keyra, hvíslaði félagi minn að mér: ,,þú veist að fólk myndi klappa alveg jafn mikið ef þetta væri pabbi þinn að labba inn - það myndi enginn sjá muninn.” Blæti mitt fyrir Bubba er sennilega ekki eðlilegasti hlutur í heimi. En þegar fólk fer að draga pabba minn inn í jöfnuna - þá fyrst verður það af- skaplega óeðlilegt. Hann þykir líkur honum. En er það ekki. Alls ekki. Höfum það alveg á tæru. Fyrir utan skallann. Kollvik- in. Klæðaburðinn. Kannski eitthvað fleira, ég veit það ekki. Ég ætla ekki lengra með þetta. Oj bara. Ef einhver veit hvar bíllinn minn, sem ég skildi eftir á víðavangi á höfuðborgarsvæðinu, elur mann- inn má sá hinn sami hafa samband. Númerið er ZY-500. Guðrún Veiga Guðmundsdóttir er mannfræðinemi frá Eskifirði sem vakið hefur athygli fyrir bloggskrif sín. Hún stjórnaði sjónvarpsþættinum Nenni ekki að elda og var að gefa út samnefnda bók. Guðrún Veiga skellti sér á tónleika með Bubba Morthens á Akureyri á dögunum en hún hefur verið snarsjúkur aðdáandi hans um árabil. Guðrún Veiga hjarta Bubbi Guðrún Veiga Guðmundsdóttir ritstjorn@ frettatiminn.is Blæti mitt fyrir Bubba er sennilega ekki eðlilegasti hlutur í heimi. En þegar fólk fer að draga pabba minn inn í jöfnuna - þá fyrst verður það afskaplega óeðlilegt. 20 pistill Áramótin 30. desember 2014–1. janúar 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.