Fréttatíminn - 30.12.2014, Page 29
Halldór Halldórsson
Sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
fyrir borgarstjórnarkosningarnar
í vor. Náði ekki að rétta af fylgi
flokksins og endaði á að tapa einum
manni frá síðustu kosningum.
Reynir Jónsson
Reynir Jónsson hrökklaðist úr starfi
forstjóra Strætó eftir að kaup hans á tíu
milljóna jeppa fyrir sjálfan sig komust í
hámæli. Jeppann keypti hann án þess að
spyrja kóng og prest – eftir að hann eyði-
lagði sjálfur jeppann sem hann hafði til
afnota í laxveiði.
Hildur Lilliendahl
Feministinn Hildur Lilliendahl hefur
látið lítið fyrir sér fara á þessu ári eftir
að í ljós kom að hún hafði stundað
það að atyrða tónlistarkonuna Hafdísi
Huld undir dulnefni á netinu. Hildur
hafði fram til þessa vakið athygli fyrir
baráttu sína gegn kvenfyrirlitningu á
netinu.
Núvitund
Karlapúl
Orkulausnir
Hreyfilausnir
Ei
ns
ta
kl
in
gs
þj
ál
fu
n
60+
Slökun
Hugarlausnir
Stoðkerfislausnir
H
ei
ls
ul
au
sn
ir
Sj
úk
ra
þ
já
lf
un
Heilsumat
Sá
lfr
æ
ði
ng
ar
Eldum betur
Bo
rð
um
b
et
ur
A
ðh
al
d
hj
úk
ru
na
rf
ræ
ði
ng
s
Sofum betur
- Þín brú til betri heilsu
Lausnina finnur þú í Heilsuborg
www.heilsuborg.is Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010
Kynningarfundur á námskeiðum Heilsuborgarskólans
fimmtudaginn 8. janúar kl 18:00
Hvað hentar þér? Hafðu samband og fáðu fría ráðgjöf
– Ertu ekki að hreyfa þig reglulega?
– Eru kílóin að hlaðast á?
– Er svefninn í ólagi?
– Ertu með verki?
– Líður þér illa andlega?
– ....eða er hreinlega allt í rugli?
Taktu í taumana og finndu þitt jafnvægi
Sv
ef
nm
æ
lin
ga
r
O
ffi
tu
rá
ðg
jö
f
Ólöf Nordal
Ólöf Nordal var öllum að óvörum
skipuð innanríkisráðherra eftir
afsögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur.
Ólöf hafði sagst vera hætt afskiptum af
stjórnmálum og hafði auk þess barist
við krabbamein. Endurkomu hennar
var hins vegar almennt vel tekið – bæði
af samherjum og andstæðingum í
pólitíkinni.
Stony
Þorsteinn Sindri Bald-
vinsson, sem kallar sig
Stony, lék í auglýsingu fyrir
Pepsi með Lionel Messi og
mörgum af fremstu fótbolta-
mönnum heims. Auglýsingin
var sýnd í yfir 100 löndum í
kringum HM í knattspyrnu.
Stony sló fyrst í gegn í fyrra
þegar hann fékk mörg
hundruð þúsund áhorf á
Youtube fyrir eigin útgáfu af
laginu Can’t Hold Us þar sem
hann notaði glös, örbylgjuofn
og fleira til að búa til hljóð.
Ófeigur Sigurðsson
Rithöfundurinn Ófeigur Sigurðs-
son komst upp í úrvalsdeildina
með bók sinni, Öræfi. Gagnrýnendur
héldu vart vatni yfir ágætum bókar-
innar og fyrir vikið tók salan mikinn
kipp. Þegar upp var staðið höfðu
verið prentuð fimm upplög af bókinni
og alls um ellefu þúsund eintök selst.
Nú bíður Ófeigi stórt verkefni - að
standa undir hæpinu.
Lars Lagerbäck
Sænski þjálfarinn Lars
Lagerbäck stýrði íslenska karla-
landsliðinu í knattspyrnu af miklum
myndarskap ásamt Heimi Hallgríms-
syni. Liðið vann meðal annars Hol-
lendinga og Tyrki og komst í 28. sæti
styrkleikalista Fifa. Liðið hefur aldrei
komist svo hátt en fyrir tveimur
árum var það í 131. sæti listans.
Yrsa Roca Fannberg
Yrsa kom sá og sigraði
með sinni fyrstu heim-
ildamynd „Mamma Salóme”.
Myndin var kosin, fyrst
íslenskra mynda, besta
norræna heimildarmyndin á
Nordisk Panorama hátíðinni.
Að auki völdu áhorfendur
hana bestu myndina á Skjald-
borgarhátíðinni og hún vann
titilinn „Most Moving Movie“
á Szczecin-kvikmyndahá-
tíðinni í Póllandi. Það verður
gaman að fylgjast áfram með
Yrsu.
úttekt 29 Áramótin 30. desember 2014–1. janúar 2015