Fréttatíminn - 30.12.2014, Qupperneq 35
heilsa 35Áramótin 30. desember 2014–1. janúar 2015
M arkmið hótelsins er að gestir þess upp-lifi og nemi hluti sem breyta lífinu með jákvæðum hætti. Ragnar Sær Ragnarsson
tók við rekstri hótelsins árið 2011, en hann kynntist
starfsemi þess sem hótelgestur. „Ég var að glíma
við veikindi vegna myglusvepps í húsi, ekki ólíkt því
sem Tómas skurðlæknir og fjöldi heilbrigðisstarfs-
manna á Landsspítalanum hafa verið að glíma við.“
Áður en Ragnar Sær sneri sér að hótelrekstrinum
var hann virkur þátttakandi í borgarpólitíkinni og
þar áður gegndi hann starfi sveitarstjóra í Bláskóga-
byggð. Þegar Ragnar tók við rekstrinum ákvað
hann að breyta hugmyndafræðinni og auka áherslu
á fjölbreytt námskeið frekar en staðlaðar með-
ferðir. „Með þessu náum við að höfða til fjöldans.
Námskeiðin ná yfir fjölbreytt svið heilsu og eru vel
sótt.“ Heilsudvöl býðst reglulega sem tveggja vikna
tímabil en einnig er mögulegt að nýta hótelið og
þjónustu þess yfir helgar til hvíldar og slökunar.
Fagleg þjónusta
Á Heilsuhóteli Íslands starfar fjölbreyttur hópur
starfsmanna. Læknir, hjúkrunarfræðingar, nudd-
og heilsuráðgjafar, heilsumarkþjálfar og jógakenn-
arar sjá til þess að hótelgestir fái sem besta þjón-
ustu. „Við nýtum styrkleika okkar og sérþekkingu
til hins ítrasta,“ segir Ragnar Sær en hótelið hefur
vakið athygli utan landsteinana og fjölgar erlendum
gestum stöðugt, en þeir eru nú um helmingur allra
gesta. Hótelið hlaut hvatningarverðlaun ráðherra
árið 2012 fyrir áhugaverðustu hugmynd að heilsu-
tengdri ferðaþjónustu.
Frábær aðstaða
Góð heilsa byggir á góðu mataræði, hreyfingu,
hvíld og slökun. Heilsuhótel Íslands er í fyrsta
flokks húsnæði sem hentar vel fyrir starfsemi þess.
Á hótelinu eru 50 herbergi og eru þau öll björt og
góð með ljósu parketi á gólfum, stóru amerísku
rúmi og er baðherbergið bæði með baðkeri og
sturtu. Húsnæðið er á tveimur hæðum með fal-
legum matsal, þægilegri setustofu, leikfimisal,
gufubaði, infra-rauðum klefa og garði með heitum
potti og stórum sólbaðspalli.
„Heilsumeðferðin sem við notum hefur verið þró-
uð og notuð lengi. Í meðferðinni eru skapaðar þær
aðstæður í líkamanum að hann hjálpar sér sjálfur
að vinna bug á óheilbrigði, sé það fyrir hendi,“ segir
Ragnar. Hvert heilsunámskeið er tvær vikur. Dag-
skráin er einföld og byggist á ákveðnu mataræði,
þar sem aðaluppistaðan er grænmeti og ávextir,
heilbrigðri hreyfingu, sogæða- og bólgueyðandi
nuddi, gufuböðum, hvíld og slökun. Einnig er boðið
upp á einkaviðtöl þar sem farið er yfir heilsufar
hvers og eins.
Fjölbreytt dagskrá
Námskeiðin hjá Heilsuhóteli Íslands eru fjölbreytt
og nóg er um að vera allan tímann. Ragnar segir þó
að gestir skulu hafa í huga að hluti af meðferðinni
er hvíld og því er um að gera að velja þá dagskrár-
liði sem mestur áhugi er fyrir en að gefa sér góðan
einnig tíma til hvíldar og slökunar.
Á hverjum morgni er boðið upp á létta göngu og
morgunteygjur úti undir beru lofti. „Eftir morgun-
mat er það sem við köllum útiveru sem er oft rösk
ganga. Einnig er boðið upp á létta innileikfimi.
Deginum er síðan varið í slökun, hægt er að fara í
nudd, gufubað, infra-rauðan klefa og heitan pott.
Þess á milli er gott að leggja sig, lesa góða bók eða
slaka á,“ segir Ragnar. Á hótelinu eru áhugaverðir
fyrirlestrar um hreinsandi meðferð, næringarfræði,
markmiðasetningu, gildi hreyfingar og annað gagn-
legt sem tengist heilsunni. Einnig er boðið upp á
ýmsa afþreyingu, svo sem danskennslu, félagsvist,
ferðir í Bláa lónið, auk þess sem góðir gestir koma í
heimsókn.
Spennandi tímar fram undan
Margt spennandi er á döfinni hjá Heilsuhóteli Ís-
lands á næsta ári. „Mars verður tileinkaður verkjum
og gigtarsjúkdómum með fjölbreyttum fyrirlestr-
um. Í maí kemur doktor Ásgeir Helgason frá Svíþjóð
og verður hann hótelgestum innan handar, en hann
er einn helsti sérfræðingur og leiðbeinandi um lífs-
stílstengda sjúkdóma og enn betri heilsu,“ segir
Ragnar.
Námskeiðin hjá Heilsuhóteli Íslands eru kjörin
fyrir einstaklinga sem vilja bæta líkamlega og and-
lega líðan eða takast á við einkenni lífstílssjúkdóma.
Með nýju ári koma nýjar ákvarðanir og tækifæri og
því er tilvalið að kynna sér þá þjónustu sem Heilsu-
hótel Íslands hefur upp á að bjóða.
Unnið í samstarfi við
Heilsuhótel Íslands
Úr hugsjónapólitík í heilsuráðgjöf
Ragnar Sær Ragnarsson sér um rekstur Heilsuhótels Íslands sem stuðlar að aukinni
lífsorku hótelgesta.
Ragnar Sær
Ragnarsson tók
virkan þátt í
borgarpólitíkinni
áður en hann sneri
sér alfarið að
rekstri Heilsu-
hótels Íslands.
Næstu heilsunámskeið:
Vorönn 2015 - tvær vikur
2. - 16. janúar
6. - 20. mars
1. - 15. maí
Einnig er hægt að bóka
sérstakar heilsuhelgar.
Næst: 23. - 25. janúar
Betra er að panta tímanlega
vegna aðsóknar á vornámskeiðin.
Flest stéttarfélög og fyrirtæki
styrkja þátttakendur.
Bókun meðferðar fer fram
í síma 512-8040 milli klukkan 9-17
alla virka daga.
Nánari upplýsingar:
Heilsuhótel Íslands,
Lindarbraut 634,
235 Reykjanesbær
www.heilsuhotel.is
Netfang: heilsa@heilsuhotel.is
Aðstaðan á Heilsuhóteli Íslands er til fyrirmyndar.
Á hótelinu eru sérstakir infra-rauðir
klefar, en slíkir geislar losa eiturefni
úr líkamanum og auka liðleika, blóð-
flæði og súrefnisflæði.
Heilsuhótel Íslands
er á Ásbrú í Reykja-
nesbæ, en það er ein-
stakt svæði þar sem
verið er að byggja
upp nýtt heilsuþorp.
Heilsuhótelið er nám-
skeiðs- og afþrey-
ingarhótel og geta
einstaklingar, fyrir-
tæki og félög nýtt sér
þjónustu hótelsins,
sem er opið allan
ársins hring.