Þjóðlíf - 01.11.1986, Blaðsíða 46
um til bjargar, að smáborgin Dessau í
Sachsen-Anhalt bauð þeim til sín.
Borgarstjórnin í Dessau bauðst jafn-
framt til að kosta nýja uppbyggingu
skólans eftir teikningum Gropiusar
sjálfs.
Blómaskeið í Dessau
Bauhaus-byggingarnar í Dessau
eru dæmi um funkisbyggingar eins og
þær gerast fegurstar og um leið ein-
hver bestu verk Gropiusar; einfaldar,
formfagrar og gjörhugsaðar. í þess-
um byggingum voru rannsóknarstof-
ur, vinnustofur, leikhús, hljómlistar-
salir og fleira. Heimavistir voru
byggðar fyrir nemendurna, jafnvel
hjónagarðar og dagheimili fyrir börn,
sem vakti ekki svo litla hneykslan,
því það samrýmdist ekki tíðarandan-
um, að gift fólk væri í námi. Byggð
voru tvíbýlishús fyrir kennara með
vinnustofum og einbýlishús fyrir
Gropius sjálfan. í Dessau átti
Bauhaus sitt blómaskeið. Ekki leið á
löngu þar til þaðan streymdi ný
hönnun á öllum sviðum. Árið 1927
var Bauhaus komið með einkaleyfi á
þeim nytjahlutum, sem þar voru
framleiddir. Skapaði það skólanum
drjúgar tekjur.
Marcel Breuer, sem veitti forstöðu
húsgagnadeildinni, hannaði fyrstu
stálhúsgögnin úr sveigðum krómuð-
um stálrörum. Ný efni og uppfinning-
ar, eins og lampar úr ópalgleri og
plexigleri og fleira sem við höfum
fyrir augum okkar í daglegu um-
hverfi, streymdu frá verkstæðum
Bauhausmanna. Húsgögn, vefnaður,
rafmagnstæki, borðbúnaður, glerlist,
veggfóður, bókband, jafnvel leikrit
og tónlist. Bauhaus hafði sína eigin
hljómsveit, sem var á sínum tíma ein
þekktasta jasshljómsveit Þýskalands.
Saga hermannsins eftir Igor Strav-
insky var frumflutt í Bauhaus. Á
þessum tíma má segja, að draumur
Gropiusar um að koma listinni og
tækninni í eina sæng, hafi verið á
góðri leið með að rætast.
Flæðir undan
En eins og við mátti búast í samfé-
lagi eins og Bauhaus voru menn ekki
á eitt sáttir um markmið og leiðir.
Vegna vaxandi gagnrýni innan hóps-
ins ákvað Gropius að segja af sér.
Árið 1928 sagði hann upp stöðu sinni
sem forstöðumaður Bauhaus og við
tók Hannes Meyer. En á næstu árum
tók að flæða undan. Nasisminn var
smám saman að taka völdin í þjóðfé-
laginu og í þeirra augum var Bauhaus
kommúnista- og gyðingabæli og tákn
úrkynjunar. Árið 1932 náðu nasistar
völdum í borgarstjórninni í Dessau.
Peirra fyrsta verk var að loka skólan-
um og flytja hann til Berlínar. Par var
skólanum komið fyrir í gömlu vöru-
húsi.
Árið 1933 komst Hitler til valda.
Þá var skólanum endanlega lokað og
margir Bauhausmanna áttu ekki ann-
an kost en að fara í útlegð. Síðastur
til að veita Bauhaus forstöðu var
arkitektinn Mies van der Rohe, sem
haft hefur mótandi áhrif á bygging-
arlist síðari tíma. Nasistar og þeirra
fylgisveinar unnu mikil skemmdar-
verk á byggingum Bauhaus í Dessau.
A-Þjóðverjar hafa á síðasta áratug
endurbyggt þær í sinni upprunalegu
mynd.
Áhrifin
Þótt Bauhaus hafi átt upptök sín í
Þýskalandi urðu áhrifin mest í
Bandaríkjunum, en þangað flúðu
margir kennarar og nemendur.
Gropius varð prófessor í Harvard.
Síðar komu Marcel Breuer og Josef
Albers einnig til Boston. Mies van der
Rohe settist að í Chicago og Moholy-
Nagy stofnaði Nýja Bauhaus í Chi-
cago. Þannig héldu þessir menn
áfram að starfa að framgangi hug-
sjóna sinna í Nýja heiminum, sem í
þessu sem svo mörgu öðru naut góðs
af hnignun hins gamla.
Fúnksjónalisminn hefur mótað
umhverfi okkar í meira en 50 ár,
vagga hans stóð í Bauhaus. En eins
og Mies van der Rohe sagði í veislu til
heiðurs Gropiusi árið 1953: „Bau-
haus var ekki stofnun með skýra
stefnuskrá, — það var hugsjón, og að-
eins hugsjón festir svo víða rætur.“
FYLGIST MEÐ EFNAHAGSMALUM
. ■m- -44 -4 44-
"1— 1 — T+T ; ; i "1 '— ——
—\— 1 1 | ~r • T \ 44 - -
--+4— H "1—r ~\— 4-4 -4— "4“ _j—i— 4 —f— vi—/—— \ / rm 1 ———
—1— H-- — 4l- +- —h i. +4 i —4-4- 1——
] ._j 1 í Ha máni töfl gtc aðc bi ur )lum irins rtast um: 1:1 1 i ■ Per ■ Gr< ■ Utc ■ RíP ■ Fra Seðl. Austurs 1 ringa iiðslr mrík úsQá imlei aba Hagf »træt imál ijöfnu< isviðsl rmál ðslu nki 'ræðid< i 14, £ 5 cipti / Islan< sild nmi 20 ■ ■ ■ ds 500 Fjár Átvi 3g f Áuk um fest nnt leira yfii efn ingi ítek i rlits aha j jur gre gsrr tna íál