Fréttatíminn - 28.11.2014, Qupperneq 2
Komdu inn
úr kuldanum
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hluti af öruggri vetrarumferð
Ég er búinn
að vera með
öllum sigurat-
riðunum frá
árinu 2010 og
það er tími
kominn á að
gefa þessu
pásu.
Rekstrarniðurstaða
jákvæð hjá
Reykjavíkurborg
Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykja-
víkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um
11.085 milljónir króna en áætlun gerði
ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 6.063
milljónir. Rekstrarniðurstaðan er því 5.022
milljónum betri en gert var ráð fyrir. Þetta
kemur fram í árshlutareikningi Reykja-
víkurborgar fyrir janúar til sept-
ember árið 2014 en hann var
staðfestur í borgarráði í dag.
Helstu ástæður má rekja
annars vegar til tekjufærslu
matsbreytinga fjárfestinga-
eigna hjá Félagsbústöðum og
hins vegar til áhrifa fjármagns-
gjalda hjá Orkuveitu Reykja-
víkur. Þar vegur þyngst
gengismunur og
verðmæti innbyggðra
afleiða. Rekstrarniður-
staða fyrir fjármagns-
liði var jákvæð um
13.260 milljónir króna
sem er 288 milljónum
lakari niðurstaða en
áætlun gerði ráð fyrir.
„The Color
Run“ á Íslandi
„The Color Run“ verður
haldið í fyrsta skipti á Ís-
landi laugardaginn 6. júní
2015 og er miðasala hafin
á miði.is. Hlaupið er 5 km langt þar sem
litagleði og tónlist ræður ríkjum. The Color
Run er tileinkað réttindum barna og stefnt
er að því að 5 milljónir króna renni til góð-
gerðamála vegna viðburðarins.
Fjöldi hlaupara verður takmarkaður við
6.000 en sá fjöldi hefur nú þegar staðfest
komu sína á samfélagssíðu hlaupsins sem
fór í loftið nú í nóvember. „The Color Run“
hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár
og yfir 200 hlaup hafa verið haldin í meira
en 40 löndum.
23 fá heiðurslaun
listamanna
Allsherjar- og menntamálanefnd
Alþingis leggur til að 23 einstak-
lingar fái heiðurslaun listamanna,
samkvæmt ákvörðun Alþingis
á næsta ári. Heiðurslaun
listamanna eru veitt
listamanni að fullu
til sjötíu ára aldurs
og skulu vera þau
sömu og starfslaun
listamanna eru á
hverjum tíma. Eftir
sjötugt verða þau
80% af starfs-
launum. Meðal
þeirra sem fá
heiðurslaunin eru
Megas, Þráinn Bert-
elsson, Kristbjörg
Kjeld, Atli Heimir
Sveinsson og Edda
Heiðrún Backman.
SkipulagSmál Svæði undir kirkjugarð í borginni
Ekkert pláss fyrir látna í Reykjavík
S tjórn og forstjóri Kirkju-garða Reykjavíkurprófast-dæmis hafa um árabil lagt
hart að skipulagsyfirvöldum í
Reykjavík að útvega land undir
kistukirkjugarð innan borgar-
markanna en það hefur ekki
gengið. Þórsteinn Ragnarsson,
forstjóri Kirkjugarðanna, áætlar
að eftir sex ár verði ekkert pláss
eftir fyrir nýjar grafir. Ástandið sé
alvarlegt þar sem það taki allavega
fimm og allt að átta ár að undirbúa
nýjan garð. Það má því gera ráð
fyrir því að það verði ekkert pláss
fyrir látna eftir um það bil sex ár,
útvegi borgin ekki land.
„Borgin er að vingsa okkur til
og frá. Fyrir 2 árum var talað um
Geldinganesið sem ákjósanlegan
stað en nú hefur komið í ljós að
ekkert verður gert í skipulags-
málum þar fyrr en eftir svona 10
ár. Í upphaflega aðalskipulaginu,
áður en farið var að ræða Geld-
inganesið, átti garðurinn að vera
við Úlfarsfell en það var tekið af
okkur þegar við fengum vilyrði
fyrir landinu í Geldinganesi, sem
var mjög óraunhæft þar sem ekk-
ert var fast í hendi þar heldur. Nú
óskum við eftir því að fá Úlfars-
fellið til baka.“
Þórsteinn er ekki sáttur við
vandræðagang borgarinnar því
ef eitthvað er ljóst í heimi hér, og
borg, þá er það að við endum öll
í þessum garði á endanum. „Það
er mjög óábyrgt hjá borginni að
bregðast ekki hraðar við í þessum
málum því það tekur svona fimm
til átta ár að útbúa kirkjugarð.
Það þarf að taka þessa ákvörðun
núna.“ -hh
Gufuneskirkjugarður var vígður árið 1980 en í dag, föstudaginn 28. nóvember,
klukkan 18, fer fram vígsla sáluhliðsins inn í Gufuneskirkjugarð. Segja má að með
vígslu sáluhliðsins sé framkvæmdum í garðinum loks lokið ef frá eru taldar fram-
kvæmdir við stækkun grafarsvæða en þeim lýkur á næstu 6 árum. Eftir þann tíma
verða engar nýgrafir fyrir kistur í boði í höfuðborginni.
Söngvakeppni valli Sport byrjaður að fá Símtöl
Tólf lög hafa verið valin í forkeppni Söngvakeppninnar á RÚV en ekki hefur verið tilkynnt hver
þau eru. Þrír lagahöfundar hafa þegar sett sig í samband við Valgeir Magnússon, Valla sport, sem
séð hefur um kynningarmál fyrir síðustu sigurvegara í keppninni. Valli býst við að taka sér pásu
frá undankeppninni vegna anna en útilokar ekki að aðstoða sigurvegarann.
m arkaðsmaðurinn Valgeir Magn-ússon, sem oftast er kenndur við auglýsingastofuna Pipar/
TBWA, hefur undanfarin ár unnið með
fjölmörgum höfundum og flytjendum
sem tekið hafa þátt í söngvakeppni Sjón-
varpsins. Valli, eins og hann er kallaður,
þykir hafa einstakt nef fyrir markaðsher-
ferðum atriðanna og oftar en ekki hafa
atriðin sem hann vinnur með farið alla
leið í aðalkeppnina ár hvert.
Söngvakeppni Sjónvarpsins hefst í
janúar og verður tilkynnt um hvaða lög
taka þátt fyrir jól. Nú þegar er búið að
láta nokkra höfunda vita að þeirra lag
hafi komist inn.
Valli sagði að byrjað væri að hringja í
sig og falast eftir hans samvinnu en hann
hefur ákveðið að gefa undankeppninni
frí þetta árið. „Ég er búinn að vera með
öllum siguratriðunum frá árinu 2010 og
það er tími kominn á að gefa þessu pásu,“
segir Valli. „Ég er í stórum verkefnum hjá
Pipar/TBWA en við sameinuðumst Fíton
í haust og er söngvakeppnin of tímafrek
til þess að geta farið frá 70 manna fyrir-
tæki.“
Meðal atriða sem Valli hefur unnið
fyrir og farið með alla leið eru Je Ne Sais
Quoi með Heru Björk, Ég á líf með Eyþóri
Inga og á síðasta ári fór hann alla leið með
Pollapönkarana og laginu Enga fordóma.
Einnig vann hann að markvissu kynning-
arstarfi fyrir önnur lög, þrátt fyrir að hafa
ekki farið með þeim út.
„Það eru 2 eða 3 höfundar búnir að hafa
samband og tékka á mér, það er þó aldrei
að vita hvað gerist eftir undankeppnina,“
segir Valli. „Ef sigurvegarinn hefur sam-
band og mér finnst lagið gott þá er aldrei
að vita. Undankeppnin heltekur mann og
fyrir keppnismann eins og mig þá get ég
ekki unnið að verkefni eins og því með
annarri hendinni í 6 vikur,“ segir Valli.
„Það er ómögulegt að vinna með þessu.“
Söngvakeppni evrópska sjónvarpsstöðva
fer fram í Austurríki á næsta ári.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Valli ætlar að taka pásu í undankeppninni í Eurovision í ár. Hann kveðst hafa nóg að gera hjá auglýsingastofunni Pipar. Mynd/Hari
Slegist um Valla
sport í Eurovision
583 milljónir til eiganda Plain Vanilla
Þorsteinn Baldur Friðriksson, stofnandi og einn eig-
enda Plain Vanilla, fékk tæpar 583 milljónir króna í
sinn hlut þegar fjárfestingafélögin Tencent Holdings
og Sequoia Capital lögðu hugbúnaðarfyrirtækinu til
22 milljónir dala í hlutafé í lok árs 2013.
Þetta kemur fram í ársreikningi WhiteRock ehf.,
sem heldur utan um eignarhlut Þorsteins í Plain
Vanilla Corp, sem er móðurfélag PV hugbúnaðar hf.
Hann greiddi sér út 30 milljónir króna í arð á þessu
ári, samkvæmt ársreikningnum.
2 fréttir Helgin 28.-30. nóvember 2014