Fréttatíminn - 28.11.2014, Síða 14
Hraðhleðslustöðvar
ekki fyrir alla rafbíla
R afmagnsbílar verða sífellt al-gengari á götunum. Nissan Leaf er sérstaklega áber-
andi en aðrar tegundir sækja á og
eru flestir bílaframleiðendur annað
hvort á leiðinni eða þegar búnir að
setja rafmagnsbíla á markað. Að
undanförnu hefur ON, Orka Nátt-
úrunnar, sett upp níu hraðhleðslu-
stöðvar á suðvesturhorninu en ekki
er hægt að hlaða allar tegundir bíla
á þeim. Even hefur sett upp tvær
hleðslustöðvar þar sem hægt er
að hlaða alla bíla en ekki er um
hraðhleðslu að ræða. Bæði fyrir-
tæki reikna með að setja upp fleiri
stöðvar á næstu mánuðum og er
væntanleg hleðslustöð frá Even á
Höfðatorgi. Almennt er talið að um
90% rafbílaeigenda hlaði að mestu í
heimahleðslunni.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Hraðhleðstustöðvar frá ON
n Á hraðhleðslustöðvum er hægt að hlaða raf-
bílinn frá 0%-80% á einungis 20-30 mínútum.
n Japanskur staðall – CHAdeMO
Tegundir sem hægt er að hlaða: Nissan Leaf,
Mitsubishi i-MiEV, Kia Soul, Citroën C-Zero,
Peugeot iOn, o.fl. Hægt að hlaða Tesla Model S
með millistykki.
1 ON á Bæjarhálsi
2 BL á Sævarhöfða
3 Fríkirkjuvegur
4 Smáralind
5 Fitjar í Keflavík
6 Shell Miklubraut
7 IKEA í Garðabæ
8 N1 í Borgarnesi
9 Olís á Selfossi
3
2
6
1
1
2
8
9
4
5 7
Einkastöð
Hótel Nordica á Suður-
landsbraut fyrir við-
skiptavini og gesti.
Hleðslustöðvar frá Even
n Evrópskur staðall – Mennekes
n Á hleðslustöðvunum er hægt að
fullhlaða bíl á um 4-6 tímum.
Tegundir sem hægt er að hlaða:
Allar tegundir.
1 Elko Lindum
2 Kringlunni (bílakjallara)
14 viðtal Helgin 28.-30. nóvember 2014
Prófaðu reiknivélina á www.on.is og sjáðu hvað vöfflujárnið,
kaffivélin og önnur eldhústæki nota mikið rafmagn.
Við erum heppin að náttúran skuli sjá okkur fyrir meira en nóg
af orku til að létta okkur lífið svo um munar. Forsenda þess
að við getum farið vel með auðlindirnar og lækkað kostnað
er að vita hvað er í gangi og hversu mikla orku raftækin nota
að staðaldri. Á on.is er handhæg reiknivél sem auðveldar þér
að sundurliða orkunotkun heimilisins og meta kostnaðinn í
heild og við einstaka þætti.
Orka náttúrunnar framleiðir
og selur rafmagn til allra
landsmanna á samkeppnishæfu
verði. Við viljum nýta auðlindir
af ábyrgð og nærgætni og bæta
lífsgæðin í nútíð og framtíð.
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
HVAÐ FER MIKIL ORKA Í VÖFFLUKAFFIÐ?