Fréttatíminn - 28.11.2014, Page 16
V Verðbólgustig á Íslandi er óvenjulegt um þessar mundir. Verðlag lækkaði um 0,52 pró-sent í nóvember, að því er fram kom hjá Hag-stofu Íslands, þvert á spár sem höfðu gert ráð fyrir að verðlag stæði í stað. Í markaðspunkt-
um greiningardeildar Arion banka kemur
fram að undanfarna þrjá mánuði hafi vísitala
neysluverðs lækkað um 0,5% sem jafngildir 2%
verðhjöðnun á ári. Vísitala án húsnæðis hefur
lækkað um 0,3% síðastliðið ár
og því er lítill sem enginn verð-
bólguþrýstingur, að frádregn-
um húsnæðisliðnum.
Greiningardeildin gerir ráð
fyrir lítilli verðbólgu næstu
mánuði en í bráðabirgðaspá
hennar er gert ráð fyrir 1,2%
verðbólgu í febrúar. Gangi það
eftir yrði febrúar þrettándi mán-
uðurinn í röð þar sem verðbólg-
an verður undir verðbólgumark-
miðum Seðlabankans. Horfur
eru á því að verðbólga verði undir markmiði
bankans vel fram á næsta ár. Verðbólga hér-
lendis hefur ekki verið lægri í sextán ár.
Greining Íslandsbanka talar á svipuðum
nótum en lítur talsvert lengra aftur í tímann
til samanburðar og segir að verðlagslækkunin
síðastliðna tólf mánuði sé mesta lækkun vísi-
tölunnar frá því í október árið 1967. Á þeirri
nærri hálfu öld hefur 12 mánaða taktur vísi-
tölu neysluverðs, án húsnæðis, aðeins tvisvar
áður mælst með neikvæðum formerkjum.
Ástæðan nú er fyrst og fremst innflutt verð-
hjöðnun vegna styrkingar krónu, verð-
lækkunar á eldsneyti og öðrum hrávörum á
heimsmarkaði og verðstöðnunar á innlendum
smásöluvarningi.
Þar sem horfur eru á lítilli verðbólgu næsta
kastið gæti hún farið í næsta mánuði niður
fyrir 1,0% þolmörk verðbólgumarkmiðs Seðla-
bankans. Bankinn yrði þá í fyrsta skipti frá
upptöku markmiðsins að birta greinargerð til
útskýringar á ástæðum fyrir verðbólgu undir
markmiði. Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins,
kallar því eftir lækkun stýrivaxta. Seðlabank-
inn lækkaði stýrivexti á síðasta vaxtaákvörð-
unarfundi um 0,25 prósentur en Ásdís telur
að nú sé svigrúm til að lækka vexti um 0,50
til 0,75 prósentur til viðbótar. Raunstýrivextir
nú eru orðnir hærri en þeir voru fyrir lækkun
stýrivaxtanna fyrr í þessum mánuði. Rök eru
því komin fyrir frekari lækkun þeirra en næsti
vaxtaákvörunarfundur peningastefnunefndar
bankans verður 10. desember næstkomandi.
Ásdís Kristjánsdóttir telur nýjustu verð-
bólgutölur þó vera jákvæðar þar sem krónan
hefur verið stöðug auk þess sem innflutt verð-
bólga hefur verið að ganga niður. Hún sér þó
hættur fram undan þrátt fyrir jákvæða þróun,
hugsanlega sterkari áhrif húsnæðisliðar en
einkum óvissu vegna komandi kjarasamn-
inga.
Þar er blika á lofti. Síðustu kjarasamningar
á almenna markaðnum voru hófsamir en
meiri hækkun hefur orðið meðal opinberra
starfsmanna á tímabilinu. Enn sér ekki fyrir
endann á kjaradeilu lækna og hins opinbera
en þeir fara fram á umtalsverða hækkun sem
gæti haft keðjuverkun í för með sér nema al-
menn sátt náist um að taka þá, af sérstökum
ástæðum, út fyrir sviga.
Hækkun launavísitölu að undanförnu hefur
að stórum hluta verið vegna hækkunar launa
opinberra starfsmanna. Áhrif af kjarasamn-
ingum við kennara til hækkunar launavísitölu
voru allsterk, eins og fram kemur hjá Grein-
ingu Íslandsbanka. Kaupmáttur launa hefur
aukist talsvert að undanförnu og má bæði
þakka það hinum hófsömu kjarasamningum
á almenna markaðnum og lítillar verðbólgu.
Skiljanlega mun Alþýðusamband Íslands gera
kröfu til hækkunar sinna félagsmanna á nýju
ári – en mikilvægt er fyrir alla aðila vinnu-
markaðar að huga að áframhaldandi kaup-
máttaraukningu og frekari vaxtalækkun en
óraunsæjum krónutöluhækkunum þegar að
samningagerð kemur. Náist hófleg lending í
almennum kjarasamningum snemma á næsta
ári, sem vissulega er óvissa um, er það mat
Greiningar Íslandsbanka að meira jafnvægi
verði milli launaþróunar hjá almennum og
opinberum starfsmönnum en raunin hefur
verið að undanförnu. Kaupmáttur og þar með
einkaneysla gæti því aukist allhratt í kjölfarið.
Lágt verðbólgustig auðveldar vaxtalækkun
Verðbólga – samningar – kaupmáttur
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
www.parkingheater.com
Ice scraping is a thing of
the past! With a Webasto
parking heater.
Enjoy the comfort and safety provided with a
parking heater and choose from different control
options with great useability.
T91 Thermo Call with AppHTM100
www.parkingheater.com
Ice scraping is a thing of
the past! With a Webasto
parking hea er.
Enjoy the comfort and safety provided with a
parking heater and choose from different control
options with great useability.
T91 Thermo Call with AppHTM100
Aldrei að skafa!
Með Webasto bílahitara.
Þú h tar bílinn með fjarstýringu og þan ig
ge ur þú notið þæginda og öryggis.
BÍLASMIÐURINN HF
Bíldshöfða 16
110 Reykjavík
sími 567 2330
bilasmidurinn@bilasmidurinn.is
www.bilasmidurinn.is
Thermo call með pp
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
16 viðhorf Helgin 28.-30. nóvember 2014