Fréttatíminn - 28.11.2014, Síða 20
Jennifer
Lopez er
af mörgum
talin eins-
konar upp-
hafskona
rassatísk-
unnar.
PoPPmenning RassaR eRu ábeRandi í tónlistaRmyndböndum
Rassar eru hin
nýja brjóstaskora
Þ essi rassatíska verður sífellt meira áberandi í umræðunni og það er greinilegt að það
er í tísku núna að vera með stóran
rass,“ segir Dagbjört Ásbjörnsdóttir,
mannfræðingur og MA í kynja- og
kynlífsfræðum, sem ennfremur er
forstöðumaður frístundamiðstöðvar-
innar Kamps. „Ég hef í gegnum árin
talað við krakka vegna undirbúnings
fyrir borgaralega fermingu og þar
hef ég leyft stelpum að spyrja strák-
ana spurninga og öfugt. Í fyrra eða
hittifyrra var ein spurninganna frá
stelpunum á þá leið að ef strákarnir
væru skotnir í stelpu, hvort skipti
þá meira máli að hún væri með stór
brjóst eða stóran rass ef hún gæti
ekki verið með bæði. Allir strákarn-
ir svöruðu: Stóran rass,“ segir hún.
„Ég legg áherslu á það þegar ég tala
við krakkana að þetta sé bara tíska.
Það er ekki góð þróun ef fólk tengir
kynþokka bara við tiltekinn líkams-
part.“
Poppmenning, tónlist og kvik-
myndir hafa í gegnum tíðina haft
gríðarleg áhrif á hvað er í tísku,
hvort sem það er klæðaburður, hár-
greiðsla eða skartgripir. Í samfélagi
þar sem netið og fjölmiðlar eru allt-
umlykjandi allan sólarhringinn eru
áhrif úr poppmenningunni sterkari
en áður. Dagbjört bendir á að fyrr á
Dagbjört Ásbjörns-
dóttir, mannfræðingur
og MA í kynja- og kyn-
lífsfræðum, segir
áberandi hversu mikið
stórir rassar eru í tísku
og það hefur áhrif á
viðhorf unglinga til þess
hvernig hinn fullkomni
líkami er. Mynd/Hari
Stórir rassar eru í tísku
og hafa vikið fyrir stórum
brjóstum og myndarlegri
brjóstaskoru. Dagbjört Ás-
björnsdóttir vinnur mikið með
unglingum og segir áberandi
hjá þeim hversu mikil áhersla
sé á rassinn. Þetta er þó
aðeins enn ein tískan því í
gegnum árin hefur verið afar
mismunandi hvernig líkams-
gerð er í tísku.
Mörg verka
Rubens þykja afar
munúðarfull og
á þessu verki frá
17. öld sem ber
nafnið „Gyðjurnar
þrjár“ fangar
hann fegurð
kvenlíkamans.
Listamenn kalla
holdlegar konur
gjarnan „rú-
benískar“.
Marilyn Monroe var upp á sitt besta upp úr 1950.
Stundaglasavöxtur hennar þótti sérlega fallegur
og enn í dag þykir hún vera ein fallegasta kona 20.
aldarinnar.
Söngkonan Samantha Fox
vakti athygli fyrir ögrandi
framkomu og var hún
ófeimin við að vekja athygli
á veglegum barminum. Hún
er sögð vera mest ljós-
myndaða kona Bretlands á
áttunda áratugnum.
öldum hafi þótt fínt að konur væru
með mjúkan maga, rass og læri. Á 20.
öldinni urðu til þekktar fyrirmyndir
og frægust þeirra er án efa Marilyn
Monroe sem var dáð fyrir stundag-
lasavöxt sinn. Fyrirsætan Twiggy var
hins vegar dáð fyrir hversu grann-
vaxin hún var, þá var Pamela Andre-
son fræg fyrir stóran barminn en
á síðustu árum eru það konur sem
stóra rassa sem fanga athygli fjöl-
miðla og þar með almennings.
„Í dag er algjör ofuráhersla á
rassinn. Poppmenningin sér um
að innleiða þá hugmyndafræði að
verðleikar konunnar liggi í aftur-
endanum,“ segir Dagbjört. Til að
sýna hvernig tímarnir breytast rifj-
ar hún upp sögu af kunningjakonu
sinni á fertugsaldri sem er með
stóran rass. Sem unglingur hafði
hún miklar áhyggjur af vaxtarlagi
sínu enda voru skilaboðin sem hún
fékk bæði frá íþróttakennurum og
unglingamenningunni: „Þú þarft að
ná af þér þessum rassi.“ Dagbjört
bendir á að það sé hins vegar ein-
faldlega bundið í genamengi okkar
hvort við erum með stóran rass,
stór brjóst eða hvað við erum há-
vaxin.
Jennifer Lopez er af mörgum tal-
in einskonar upphafskona rassatísk-
unnar. Hún vakti fyrst heimsathygli
árið 1997 þegar hún lék söngkonuna
Selenu í samnefndri mynd og fór
með hlutverk í mynd Oliver Stone,
U-turn. Hún talaði þá um að henni
hefði gengið erfiðlega að fá kvik-
myndahlutverk vegna þess hversu
stóran rass hún er með. Jennifer
Lopez sló í gegn sem söng- og leik-
kona og stórir rassar voru í sókn.
„Í poppmenningu er alltaf verið að
ögra og núna er verið að ögra með
rassinum. Þetta er tíska sem á eftir
að víkja seinna fyrir annarri tísku,“
segir Dagbjört.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Fyrirsætan
Twiggy var
kona ársins í
Bretlandi árið
1966. Grann-
vaxinn líkami
hennar þótti
afar eftir-
sóknarverður
og markaði hún
tímamót í tísku-
bransanum.
Fyrirsætan
Kate Moss
sló í gegn um
1990 og var
þekkt fyrir
svokallað
„heróínútlit“
sem varð
afar vinsælt
og reyndu
konur að
vera sem
grennstar og
vesældar-
legastar.
Söng- og
leikkkonan
Jennifer Lopez
var upphaflega
gagnrýnd fyrir
hversu stóran
rass hún er
með en nú eru
rassar á borð
við hennar í
tísku. Hún er
síðan frekar
barmlítil.
Leikkonan
Pamela
Anderson
varð heims-
fræg eftir
hlutverk sitt
í Strand-
vörðum og
hefur setið
afar oft fyrir
í Playboy.
Pamela var
með afar
stór brjóst
vegna sílí-
konaðgerða
og hefur
látið stækka
og minnka
barminn
í gegnum
tíðina.
Kim Kardashian
er í raun fræg
fyrir að vera
fræg og fyrir
að vera með
stóran rass.
Hún tók fræga
sjálfsmynd af
rassinum á
sér og stutt er
síðan hún sýndi
rassinn á for-
síðu tímaritsins
Paper.
20 fréttir Helgin 28.-30. nóvember 2014