Fréttatíminn - 28.11.2014, Síða 54
54 bílar Helgin 28.-30. nóvember 2014
ReynsluakstuR kia soul eV
Svífur
hljóðlaust
um göturnar
Vantar þig gistingu í útlöndum?
Gerðu Verðsamanburð á hóteltilboðum út um allan
heim oG bókaðu haGstæðasta kostinn á túristi.is.
T Ú R I S T I
Kia Soul er nýr rafmagnsbíll frá Kia sem vert er að gefa
gaum. Hann er sérstaklega fallega hannaður en það
er ekki allt því það er líka dásemd að keyra hann. Soul
dregur 200 km á fullri hleðslu og virkilega þægilegt að
nánast svífa um göturnar í hljóðleysi rafmagnsins.
s oul er fyrsti rafmagnsbíllinn frá Kia og er hægt að fullyrða að einstaklega vel hafi tekist
til. Útlit bíla skiptir mig alltaf miklu
og ég get með sanni sagt að ég
brosti út í annað þegar ég leit hann
fyrst augum, jafnvel þó ég væri áður
búin að skoða myndir af honum því
hann er svo skemmtilega öðruvísi.
Það er einhvern veginn ekki hægt
að líkja honum við neitt þó einn
vinur minn hafi sagt framendann
líkjast Range Rover en með fullri
virðingu þá er ekki töff í dag að vera
á Range Rover. Kia Soul er hins veg-
ar mjög töff.
Útlitið vakti athygli fleiri. Í um-
ferðinni varð ég vör við forvitnilegt
augnaráð og einn daginn þegar ég
var að koma heim með innkaupa-
pokana stoppaði mig af ungur fjöl-
skyldufaðir sem vildi vita bókstaf-
Rafmagnsbíll
Dregur 200 km á
fullri hleðslu
Litium-ion fjölliða
rafhlaða
11,2 sek frá
0-100 km/klst
0 g/km CO2
Lengd
4140 mm
Breidd
1800
Hæð
1593
Stærð farangursrýmis
281-891 l
Verð frá
4.750.777 kr
Heimahleðslustöð fylgir.
kia soul eV
lega allt um þennan bíl. Já, börnin
hans og kona fengu að bíða á meðan
ég sagði honum að þetta væri nýr
rafmagnsbíll, að hann drægi 200
kílómetra á hleðslunni og að hann
kæmi í sölu í lok nóvember.
Þar sem þetta er ekki fyrsti raf-
magnsbíllinn sem ég prófa lét ég
mér ekki bregða þegar ekki heyrð-
ist meira en þægilegt tölvustef þeg-
ar ég var búin að kveikja á bílnum
og ég ók honum nánast hljóðlaust
af stað. Eins og þeir sem hafa mætt
rafmagnsvespum á gangstéttinni
vita þá er heldur óþægilegt þegar
þær birtast skyndilega án þess að
nokkuð heyrist. Af öryggisástæð-
um er Kia Soul því þannig búinn að
þegar ekið er á undir 20 km/klst
sendir bíllinn frá sér vélarhljóð, sem
kom sér til að mynda afar vel þegar
ég tók rólegan rúnt á mannmörgum
Laugaveginum, og svo heyrist það
líka þegar honum er bakkað. Að
sjálfsögðu bauð ég vel völdum vin-
um með mér og einn hafði á orði að
bílferðin líktist því helst „að svífa“
um göturnar.
Kia Soul er hægt að fá í nokkrum
litaútfærslum og sá sem ég ók var
hvítur með ljósbláu þaki og spegl-
um. Það er líka hægt að fá svartan
með rauðu, bláan með hvítu, og svo
bíla sem eru alhvítir eða alsilfrað-
ir. Þegar það er í boði að fá tvílitan
myndi ég þó alltaf velja það bara því
það er meira töff.
Kia hefur verið með Soul á mark-
aði en nú er hann í fyrsta skipti
fáanlegur sem rafmagnsbíll, en
þeir sem það kjósa geta valið dísil-
bíl. EV stendur sumsé fyrir Elect-
ric Vehicle og það er meira töff en
dísil. Svo er líka ógurlega notalegt
að spara olíulindir heimsins, spara
peninga og vita af því að núll grömm
af koldíoxíði fara út í andrúmsloftið
með akstrinum.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Kia Soul er allur hinn glæsilegasti í útliti og vekur athygli hvert sem ekið er. Mynd/Hari
Leiðsögukerfið sýnir nærliggjandi götur og bíllinn
fylgist með skiltum sem sýna leyfilegan hámarks-
hraða þar sem þú ert að keyra. Bakkmyndavélin er mjög skýr.
Hægt er að stækka farangursrýmið.Í mælaborðinu sést vel hvernig bíllinn eyðir orkunni.
Hliðarspeglarnir eru fallega ljósbláir