Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.11.2014, Page 56

Fréttatíminn - 28.11.2014, Page 56
Þegar klukkurnar hringja inn jólin klukkan sex á aðfanga- dagskvöld er fátt betra en að skála við fjölskyldumeð- limi í sínu fínasta pússi. Það að finna hið fullkomna jóla- dress getur hins vegar reynst þrautin þyngri. Andrea Röfn Jónasdóttir, nemi í Háskól- anum í Reykjavík og bloggari hjá trendnet.is, veit hvað hún syngur þegar kemur að tísku og hér ræðir hún um hvað mun einkenna jólatískuna í ár.  Konur Fjölbreytt jólatísKa Djúpir fallegir litir og rauður varalitur áberandi yfir hátíðirnar t ískan er orðin svo fjölbreytt að ég held að það verði ekki eitthvað eitt sem muni ein- kenna jólatískuna í ár,“ segir Andr- ea Röfn, sem fagnar fjölbreytileik- anum. „Sumar kjósa að klæðast kjólum en aðrar vilja heldur spari- legar buxur og topp.“ Að hennar mati einkennist klassísk jólatíska þó af djúpum fallegum litum, kjólum og rauðum varalit. Aðspurð hvað muni einna helst einkenna jólatísk- una í ár segir Andrea: „Í dag sé ég mikið af síðerma kjólum, samfest- ingum, rúllukragapeysum og gróf- um hælaskóm og þykkbotna. Einn- ig finnst mér mikið um töffaralega hatta, stóra trefla og leðurhanska og við munum eflaust sjá mikið af þessu á aðventunni.“ Skór og fylgihlutir gera heilmikið fyrir einfaldan klæðnað Andrea hrífst mjög af skóm og fylgihlutum og finnst yfirleitt skemmti- legra að skoða þá en föt. „„Statement“ skartgripir sem geta dressað upp ein- földustu klæði eru í sér- stöku uppáhaldi hjá mér, sérstaklega stór hálsmen.“ Andrea segir að skótískan sé einnig orðin fjölbreytt, allt frá stígvélum upp í háa hæla með þykkum sóla. Fallegur jólakjóll er hin klassíska jólaflík En er hin klassíska jóla- flík til? „Það er alltaf klassískt að eiga kjóla sem hægt er að nota aftur og aftur. Ég á einn kjól frá Kron by Kronkron sem gengur alltaf þrátt fyrir að vera með áberandi mynstri. Svo klikkar „litli svarti kjóllinn“ sjaldan því það er alltaf hægt að klæða hann með mismun- andi skartgripum og sokkabuxum. Einnig finnst mér að allir ættu að eiga fallega kápu eða pels.“ Andr- ea ráðleggur þeim sem eiga eftir að finna jóladressið í ár að kaupa klassíska flík í góðum gæðum. „Þá verður maður ekki þreyttur á henni strax og hún nýtist manni lengur, jafnvel ekki bara á jólunum.“ Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is „Yfir hátíðarnar gef ég mér meiri tíma til að dunda mér við alls kyns smáatriði eins og fallega förðun og nagla- lakk í hátíðlegum litum.“ 56 jólaföt Helgin 28.-30. nóvember 2014 Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Kápa kr. 19.900 Mikið úrval Laugavegi 178 Sími 551-3366 www.misty.is OPIÐ: Mán. - fös. 10 - 18, Laugardaga 10 - 14 GJÖFIN SEM GLEÐUR YKKUR BÆÐI :) teg DALILA - “push up” á kr. 8.680,- Buxur á kr. 3.550,- Við elskum skó Smáralind • S. 511 2020 29.990 kr. Dömu/ Herra Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. Evonia er hlaðin bætiefnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Bætiefni ársins í Finnlandi 2012. Evonia www.birkiaska.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.