Fréttatíminn - 28.11.2014, Qupperneq 90
I ngibjörg Reynisdóttir lærði leiklist í Danmörku fyrir rúm-um 15 árum og vinkona hennar
úr náminu var stödd hjá henni á
Íslandi fyrir tveimur árum og sagði
henni frá vinum sínum í Kaup-
mannahöfn. Frásögn vinkonunnar
varð til þess að Ingibjörg byrjaði að
skrifa bók, nánast um leið.
Camilla, vinkona Ingibjargar,
sem er kveikjan að sögunni segir
það skemmtilegt að vera fyrirmynd
að skáldsagnapersónu.
„Camilla er búin að koma 8 eða 9
sinnum til Íslands og varð ástfang-
in af landinu, eins og svo margir,“
segir Ingibjörg. „Ég kom hingað
síðast fyrir tveimur árum og var
hjá Ingibjörgu og eitt kvöldið ákvað
ég að segja henni og manninum
hennar frá vinum mínum í Kaup-
mannahöfn,“ segir Camilla, sem
þjáist af sjálfsofnæmi sem lýsir sér
þannig að henni vex ekki hár. „Ég
sagði þeim frá matarboði sem ég
hafði haldið stuttu áður og í því
voru samankomnir nokkrir vinir
mínir. Ég er samkynhneigð og bý
með sænskri konu sem er 15 árum
eldri en ég og við eigum tvö börn
saman, sem við eignuðumst með
sæðisgjafa,“ segir Camilla. „Ein
besta vinkona mín var í matarboð-
inu og hún var nýbúin að kynnast
manni sem er tantragúrú. Hann
sérhæfir sig í innanlegganganuddi
sem hann framkvæmir með getn-
aðarlimi sínum, svo hann hefur
mjög sérstaka sögu. Svo voru
vinahjón okkar frá Slóveníu
sem voru nýbúin að taka þá
ákvörðun að leyfa hjákonu
eiginmannsins að búa hjá
sér. Það var orðið full mikið
vesen fyrir karlinn að flakka
á milli,“ segir Camilla. „Svo
þetta er litríkur hópur, en ég
áttaði mig á því að öll lifðum
við eðlilegu lífi þrátt fyrir að
vera öll svolítið sérstök.“
„Þegar Camilla sagði mér
þessa sögu með allskonar
leikrænum tilbrigðum þá
sogaðist ég bara inn og
vildi heyra meira og meira,“
segir Ingibjörg. „Þetta var
algjör veisla fyrir rithöfund
að heyra frásagnir frá svona
litríkum hópi fólks. Svo ég
ákvað að skrifa sögu og Ca-
milla sagði bara já, ekkert
mál.“
Hvað með fólkið sjálft, veit
það að það er orðið að sögupers-
ónum?
„Fyrir ári þegar Ingibjörg var í
heimsókn í Köben þá ákvað ég að
halda annað matarboð, með sama
fólki og fleirum með henni,“ segir
Camilla. „Það var mjög gott því ég
var byrjuð að skrifa og vildi hitta
þetta fólk,“ segir Ingibjörg. „Þó svo
að ég byggi karakterana á þessu
fólki, er ég að búa til nýjar pers-
ónur. Ég nota bara þeirra aðstæður
og slíkt, en persónurnar eru skáld-
skapur. Það var gaman að sjá þetta
fólk, og sjá að það var ekki líkt
mínum persónum þrátt fyrir sömu
aðstæður. Camilla er mjög góð að
segja frá og hún var auðvitað búin
að ýkja þau öll í sínum frásögnum,
en svo voru þau öll bara ósköp
venjuleg þegar ég hitti þau.
Þetta var eins og í sögu
að vera með þessu fólki.
Þau eru öll einstök á sinn
hátt. Það er ekki hægt að
búa svona til,“ segir Ingi-
björg.
Rogastanz fjallar um
Söru, sem er nútímakona,
einhleyp og barnlaus.
Blaðakona á heilsutíma-
riti en lifir í algerri mót-
sögn við gildi blaðsins.
Charlotte er skipulögð
og ferköntuð. Hún er
með sjálfsofnæmi og
hefur misst allt hárið af
þeim sökum. Svona er
bókinni Rogastanz lýst
í káputexta bókarinnar.
„Aðalpersónan í sögunni,
Sara, er íslensk. Hún er
svona blanda af mér og annarri vin-
konu Camillu. Charlotte er byggð
á Camillu, en ekki að öllu leyti.
Það eru margir atburðir í sögunni
sem hafa hent mig og aðra sem ég
þekki. Hvort sem það eru brúð-
kaup, heimsóknir í mæðraskoðun
eða annað. Það er svo nauðsynlegt
að geta sagt sögur sem hafa átt sér
stað í raunveruleikanum, með smá
kryddi,“ segir Ingibjörg.
Ertu alltaf að leita eftir góðum
sögum?
„Já það gætu allir átt von á því að
enda í bók,“ segir Ingibjörg.
„Hún er alltaf að hlusta. Stund-
um heldur maður að hún sé ekki
að hlusta, en þá er hún að hlaða inn
efninu,“ bætir Camilla við.
Ingibjörg gaf síðast út bókina
Gísli á Uppsölum. Sú bók fékk frá-
bærar viðtökur og var ein af met-
sölubókunum árið 2012 og var Ingi-
björg ekki á leiðinni að skrifa aðra
bók strax. „Ég var á fullu að gera
Gísla árið 2012 þegar ég fór til spá-
konu því mér fannst ég þurfa svör
við nokkrum spurningum,“ segir
Ingibjörg. „Hún byrjaði að tala um
sögu sem ég yrði að skrifa og hló
mikið. Ég vissi ekki hvað hún var
að tala um en hún hélt áfram að
tala um þessa bók og að ég yrði að
skrifa hana. Ég hlustaði ekki mikið
á hana þar sem ég var alveg á kafi
með Gísla. Nokkrum mánuðum
síðar segir Camilla mér söguna og
um leið var ég farin að pæla í þess-
ari sögu,“ segir Ingibjörg. „Svo spá-
konan endaði bara líka í sögunni.“
Kvikmyndinni Órói, sem gerð
var eftir samnefndri sögu Ingi-
bjargar, var vel tekið og segir Ingi-
björg Rogastanz jafnvel rata á hvíta
tjaldið.
„Ég hef nú ekki talað neitt um
það áður, en ég er kominn með vil-
yrði frá Kvikmyndasjóði um styrk
til þess að gera kvikmynd úr þess-
ari bók,“ segir Ingibjörg. „Það yrði
frábært því sagan er mjög kvik-
myndavæn. Ég er búin að senda
þýðinguna til fólksins í Danmörku
og þeir sem hafa svarað eru ánægð-
ir með söguna. Tantragúrúinn
hefur ekki svarað ennþá, kannski
er hann bara upptekinn,“ segir
Ingibjörg.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Sjálfsofnæmissjúk-
lingur, þríhyrningur
og tantragúrú
Nýjasta bók rithöfundarins Ingibjargar Reynisdóttur kom út á dögunum og
nefnist hún Rogastanz. Bókin er byggð á raunverulegum persónum þó sagan sé
skáldskapur. Ingibjörg fór í matarboð í Danmörku þar sem flestar sögupersón-
urnar voru saman komnar og segir hún það hafa verið draumi líkast.
Ingibjörg Reynisdóttir og Camilla, vinkona hennar, sem plantaði hug-
myndinni í koll rithöfundarins. Mynd/Hari
Þetta var
eins og í
sögu að
vera með
þessu fólki.
Þau eru öll
einstök á
sinn hátt.
Það er ekki
hægt að
búa svona
til.
90 menning Helgin 28.-30. nóvember 2014
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 29/11 kl. 13:00 25.k. Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Lau 10/1 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 13:00 26.k. Fös 26/12 kl. 13:00 Sun 11/1 kl. 13:00
Lau 6/12 kl. 13:00 27.k. Fös 26/12 kl. 16:00 Lau 17/1 kl. 13:00
Sun 7/12 kl. 13:00 28.k. Lau 27/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00
Lau 13/12 kl. 13:00 29.k. Sun 28/12 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00
Sun 14/12 kl. 13:00 30.k. Lau 3/1 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00
Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Sun 4/1 kl. 13:00 Lau 31/1 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 29/11 kl. 17:00 aukas. Lau 6/12 kl. 20:00 Lau 13/12 kl. 20:00
Lau 29/11 kl. 20:00 26.k. Sun 7/12 kl. 20:00
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Gaukar (Nýja sviðið)
Lau 29/11 kl. 20:00 17.k. Sun 30/11 kl. 20:00 18.k.
Grátbroslegt verk um karlmenn, tilfinningar og sparakstur
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 28/11 kl. 19:00 17.k. Lau 6/12 kl. 20:00 22.k. Fös 19/12 kl. 20:00 aukas.
Lau 29/11 kl. 19:00 18.k. Sun 7/12 kl. 20:00 23.k. Lau 20/12 kl. 20:00 aukas.
Sun 30/11 kl. 20:00 19.k. Fös 12/12 kl. 20:00 Lau 27/12 kl. 20:00 aukas.
Fim 4/12 kl. 20:00 20.k. Lau 13/12 kl. 20:00 aukas.
Fös 5/12 kl. 20:00 21.k. Sun 14/12 kl. 20:00 aukas.
ATH janúar sýningar komnar í sölu!
Jesús litli (Litla sviðið)
Fös 28/11 kl. 20:00 2 k. Fös 5/12 kl. 20:00 5.k. Sun 14/12 kl. 20:00 8.k.
Mið 3/12 kl. 20:00 3.k. Fim 11/12 kl. 20:00 6.k. Sun 28/12 kl. 20:00
Fim 4/12 kl. 20:00 4.k. Fös 12/12 kl. 20:00 7.k. Mán 29/12 kl. 20:00
Fimm stjörnu mannbætandi leikhúsupplifun!
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Lau 29/11 kl. 13:00 1.k. Sun 7/12 kl. 13:00 aukas. Lau 20/12 kl. 15:00 aukas.
Sun 30/11 kl. 13:00 2 k. Lau 13/12 kl. 13:00 aukas. Sun 21/12 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 15:00 3.k. Sun 14/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 15:00 aukas.
Lau 6/12 kl. 13:00 4.k. Sun 14/12 kl. 15:00 aukas.
Lau 6/12 kl. 15:00 5.k. Lau 20/12 kl. 13:00
Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap
Beint í æð! – HHHH , S.J. F.bl.
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is Konan við 1000° – HHHH „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
Karitas (Stóra sviðið)
Fös 28/11 kl. 19:30 18.sýn Fös 5/12 kl. 19:30 21.sýn Lau 13/12 kl. 19:30 24.sýn
Lau 29/11 kl. 19:30 19.sýn Lau 6/12 kl. 19:30 22.sýn Þri 30/12 kl. 19:30 26.sýn
Fim 4/12 kl. 19:30 20.sýn Fös 12/12 kl. 19:30 23.sýn Sun 4/1 kl. 19:30 27.sýn
Seiðandi verk sem hefur hlotið frábærar viðtökur. Nýjar sýningar komnar í sölu.
Konan við 1000° (Kassinn)
Fös 28/11 kl. 19:30 31.sýn Fös 5/12 kl. 19:30 36.sýn Sun 11/1 kl. 19:30 39.sýn
Lau 29/11 kl. 19:30 33.sýn Lau 6/12 kl. 19:30 37.sýn Mið 14/1 kl. 19:30 40.sýn
Fim 4/12 kl. 19:30 35.sýn Mið 7/1 kl. 19:30 38.sýn Sun 18/1 kl. 19:30 41.sýn
5 stjörnu sýning - einstök leikhúsupplifun.
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 29/11 kl. 13:00 Sun 7/12 kl. 13:00 Lau 20/12 kl. 11:00
Lau 29/11 kl. 14:30 Sun 7/12 kl. 14:30 Lau 20/12 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 13:00 Lau 13/12 kl. 11:00 Lau 20/12 kl. 14:30
Sun 30/11 kl. 14:30 Lau 13/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 11:00
Lau 6/12 kl. 11:00 Lau 13/12 kl. 14:30 Sun 21/12 kl. 13:00
Lau 6/12 kl. 13:00 Sun 14/12 kl. 11:00 Sun 21/12 kl. 14:30
Lau 6/12 kl. 14:30 Sun 14/12 kl. 13:00
Sun 7/12 kl. 11:00 Sun 14/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 10 leikárið í röð.
Ofsi (Kassinn)
Sun 30/11 kl. 19:30 3.sýn Sun 7/12 kl. 19:30 5.sýn Sun 14/12 kl. 19:30
Mið 3/12 kl. 19:30 4.sýn Lau 13/12 kl. 17:00
Átök sturlungaaldar á leiksviði
Fiskabúrið (Kúlan)
Lau 29/11 kl. 14:00 Sun 30/11 kl. 14:00
Lau 29/11 kl. 16:00 Sun 30/11 kl. 16:00
Sannkölluð töfrastund fyrir yngstu áhorfendurna.
Ævintýri í Latabæ (Stóra sviðið)
Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 28/12 kl. 16:30
Stórsöngleikur fyrir börn á öllum aldri í Þjóðleikhúsinu.