Fréttatíminn - 28.11.2014, Síða 94
94 dægurmál Helgin 24.-26. maí 2013
Fagnaðarfundir í Bristol
Fagnaðarfundir íslenskra poppara urðu í
vikunni í Bristol á Englandi. Hljómsveitir John
Grant annars vegar og Ásgeirs Trausta og
Lay Low hins vegar voru með tónleika sama
kvöldið í borginni, á sitt hvorum staðnum
þó. Tónleikarnir heppnuðust vel og hittust
nokkrir meðlimir sveitanna eftir þá. Sjaldan
hafa jafnmargir íslenskir tónlistarmenn verið
samankomnir í sömu erlendu borginni.
Að undanförnu hafa birst í sjón-
varpi bókaauglýsingar frá Sögum
þar sem tónlistarmaðurinn Björn
Jörundur ræðir við vin sinn um
lestur góðra bóka. Fáir vita þó að
sá sem leikur á móti honum heitir
Björn Þór Sigbjörnsson og starfar
sem blaðamaður og var rótari
hljómsveitar Björns Jörundar, Ný
dönsk, á sokkabandsárum sveitar-
innar. Í starfi sínu sem rótari gekk
hann undir nafninu Mike Technic.
Hallgrímur leitar
að jólunum
Sýningar á jólaleikritinu Leitin að
jólunum hefjast á laugardaginn í
Þjóðleikhús-
inu. Þetta er
10 árið í röð
sem sýningin
fer á fjalirnar
og er alltaf
jafn vinsæl.
Arnbjörg Hlíf
Valsdóttir
leikur sem
fyrr annað
hlutverkið
en leikarinn
Hallgrímur Ólafsson leikur í
verkinu í fyrsta sinn í ár.
Laddi málar
Leikarinn góðkunni,
Laddi, heldur sína fyrstu
málverkasýningu ásamt
eiginkonu sinni, Sigríði
R. Thorarensen, í dag
föstudag. Sýningin er
haldin í Heimahúsinu,
Ármúla 8, og er opnun
sýningarinnar frá klukkan
16-19. Sýningin stendur til
sunnudags og verða allar
myndirnar til sölu.
Skemmtanir Hin Heilaga þrenning treður upp á Húrra
Gullfoss, Geysir og Jónas
Jónas Sig og ritvélar fram-
tíðarinnar ásamt plötu-
snúðatvíeykinu Gullfoss og
Geysir halda fullveldishátíð
Íslendinga hátíðlega á laug-
ardaginn á skemmtistaðnum
Húrra. Jónas mun byrja
kvöldið með látum og Gull-
foss og Geysir halda fólki svo
á tánum að leik loknum hjá
ritvélunum.
„Þetta er eitthvað sem
varð að gerast,“ segir Jói B,
sem kenndur er við Gullfoss.
„Þetta er hugmynd frá Jóni
Mýrdal vert á Húrra, og hug-
myndin er góð svo við létum
til leiðast,“ segir Reynir
Lyngdal, Geysir. „Við erum
samt að hittast í fyrsta sinn
núna,“ segir Jónas. „En það
var löngu kominn tími til.“
Jónas hefur að undanförnu
verið að spila á nokkrum
stöðum um landið, en annars
hafa ritvélarnar haft hægt
um sig. „Ég er búinn að vera
að semja tónlist fyrir leik-
ritið Útlenski drengurinn í
Tjarnarbíói, sem var mjög
skemmtilegt, en það kemur
pottþétt út ný plata á næsta
ári,“ segir Jónas.
„Við höfum ekki verið að
spila mikið á opinberum
vettvangi. Bara í lokuðum
veislum,“ segir Jói B. „Það er
meira en ár síðan við gerðum
það síðast að spila fyrir sót-
svartan almúgann.“
Það má því búast við miklu
fjöri á laugardaginn. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 22
á Húrra og er miðaverð 2.000
krónur. -hf
Björn og Björn
fridaskart.is
Strandgötu 43
Hafnarrði
íslensk hönnun í gulli og silfri
V ið gerðum fyrstu útgáfuna um haustið 69,“ segir Helgi Pé, eins og hann er
kallaður. „Við vorum ansi mikið á
hreyfingu á þessum tíma og mjög
vinsælir. Jón Þór Hannesson, sem
var hljóðupptökumaður hjá Sjón-
varpinu, var að fikta eitthvað í
auglýsingagerð og stofnaði seinna
Sagafilm. Hann, ásamt auglýsinga-
stofu Óla Stef, fékk það verkefni
frá Smjörlíkisgerðinni að gera aug-
lýsingu. Textinn var til, hafði verið
saminn af einhverjum starfsmanni
verksmiðjunnar, Jónas frá Grjót-
hálsi minnir mig að hann hafi ver-
ið kallaður. Textinn var frá fjórða
áratugnum, frá dögum Ragnars í
Smára, og hafði verið sunginn á
mannamótum starfsmanna lengi.
Þetta var sent í birtingu og þá
varð fjandinn laus,“ segir Helgi.
„Maður fékk ekki frið,“ segir
Ágúst. „Þarna er Ljómakallinn,
var öskrað á eftir manni, og við
vorum ungir menn.“
„Þessi texti lærðist eins og skot
og það er mjög fyndið að það sé
hægt að syngja um smjörlíki með
þessum árangri,“ segir Helgi. Árið
1989, tuttugu árum seinna, var
gerð önnur útgáfa sem var í lit, og
klippt á milli í gömlu útgáfuna. Þá
öðlaðist auglýsingin annað líf.
„Þá var textanum aðeins
breytt,“ segir Ágúst. „Í fyrri
útgáfunni segir í textanum
„rjómabú, smér“ sem var
breytt í „ljómandi fæða handa
þér.“ Þá mátti ekki gefa
það til kynna að
smjörlíki væri
jafngildi smjörs,“
segir Helgi.
Þetta hefur væntanlega orðið til
þess að þið hafið spilað þetta á tón-
leikum allar götur frá 1969, eða
hvað?
„Það er alltaf beðið um þetta,“
segir Ágúst „Alveg sama hvað við
reyndum að spila þá vildi fólk alltaf
heyra Ljómann,“ segir Helgi.
„Davíð Scheving Thorsteinsson,
sem þá var forstjóri Ljóma, hafði
aldrei lent í öðru eins þegar þessi
auglýsing var birt, í bæði skiptin,“
segir Helgi. „Hann mokaði út
smjörlíki, fólk tengdi svo ofboðs-
lega við þetta. Þetta var svo í mörg
ár notað sem dæmi í viðskipta-
fræðinámi um vel heppnaða aug-
lýsingaherferð. Við vorum bara 19
og 20 ára og óraði ekki fyrir því
hvernig þetta færi,“ segir Ágúst.
Ríó tríó var um áratugaskeið
vinsælasta hljómsveit landsins.
Voru með sjónvarpsþætti og gáfu
út vinsæl lög og plötur.
„Það var ekkert annað í sjón-
varpinu og það horfðu allir á þetta.
„Ekkert ósvipað og Baggalútur
í dag, og Stuðmenn þegar þeir
komu með sitt grín á
sínum tíma. Það
kom okkur ekkert
á óvart og
við
þekktum efnistökin.“
Það er oft mjög sérstakur húmor
sem myndast innan hljómsveita er
það ekki?
„Jú við vorum með mjög mikinn
lókal húmor og oft vorum við
komnir á þrot með vitleysuna,“
segir Ágúst. „Við hlógum eins og
vitleysingar sjálfir en fólk stóð bara
og gapti.
Sá eini sem hló var umboðsmað-
urinn okkar,“ segir Ágúst og þeir
hlæja báðir.
„Nú sitjum við hér, 45 árum
síðar, og að öllu óbreyttu hefðum
við verið að gera eitthvað,“ segir
Helgi.
Ólafur Þórðarson einn meðlima
tríósins lést sviplega árið 2011
og hefur sveitin ekki komið fram
síðan.
„Það vantar prímus mótorinn,“
segir Ágúst „Þrælahaldarann,“
skýtur Helgi inn í. „Það er alltaf
einn svoleiðis í öllum hljómsveitum
og Óli var það svo sannarlega.
Hann er samt að hafa samband
frá þeim stað sem hann er á, við
finnum fyrir því. Honum finnst við
latir og það er spurning hvort við
förum ekki að hlýða honum,“ segir
Helgi.
Haldið þið að Ljómaauglýsingin
muni lifa um ókomna tíð?
„Já þetta er bara partur af þjóðinni
og mun heyrast áfram eins og
hver annar rútubílasöng-
ur,“ segir Helgi. „Okk-
ur þykir vænt um
þessa auglýsingu og
hún rifjar upp góða
tíma og mikil
hlátrasköll.“
Hannes
Friðbjarnarson
hannes@
frettatiminn.is
tónliSt 45 ár frá þVí ríó tríó gerði auglýSingu fyrir ljóma
Helgi Péturs-
son og Ágúst
Atlason segja
Ljómalagið
lifa um
ókomna
tíð. Ljós-
mynd/Hari
Óraði ekki fyrir
þessum vinsældum
Þegar líða tekur að stórhátíðum, eins og jólum, birtist auglýsing um Ljómasmjörlíki sem gleður
flesta sem hana sjá. Auglýsingin, sem skartar meðlimum Ríó Tríós að syngja lag sem hefur grafið sig
inn í undirmeðvitund landsmanna í þau 45 ár sem það hefur heyrst. Þeir Helgi Pétursson og Ágúst
Atlason segjast halda að allir landsmenn þekki Ljómatextann betur en þann upprunanlega.
Hin
heilaga
þrenn-
ing sem
verður á
Húrra á
laugar-
dagskvöld,
Jónas Sig,
Gullfoss
og Geysir.
Ljósmynd/
Hari