Þjóðlíf - 01.04.1991, Blaðsíða 12

Þjóðlíf - 01.04.1991, Blaðsíða 12
INNLENT Jón Baldvin hélt því fram í fjölmiðlum í byrjun stjórnarmyndunarviku að mál- efnin réðu því að hann vildi í stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Nefndi hann þar til sögu að það þyrfti að koma í gegn 5 til 10 milljarða niðurskurði strax á næsta ári, þá þyrfti að koma á kvótaleigu sem skilaði fimm milljörðum á fyrsta ári í ríkissjóð og víðtæk uppstokkun á landbúnaðarkerflnu stæði fyrir dyrum. Þetta væru hin gull- vægu prinsipp Alþýðuflokksins. Annað var ekki að skilja, en þegar leið á Viðeyjar- vikuna urðu þau undur að þessi málefni voru talin niður og enduðu flest hver í óútskýrðum nefndum til skoðunar. „Mál- efnasamningur er ekki það sem skiptir höfuðmáli heldur gagnkvæmt traust sem menn ætla að sýna hverjum öðrum“ sagði Davíð strax á þriðjudegi. Jón Baldvin átti eftir að telja heldur betur niður menn og málefni áður en stjórnarmyndunarvikan var öll. Þor- steinn Pálsson reyndist á lokasprettinum í Sjálfstæðisflokknum sterkari en Davíð. Þorsteinn kom í veg fyrir að Björn Bjarna- son yrði ráðherra eins og Davíð vildi og tók sjávarútvegsráðuneytið sem Davíð hafði heitið Alþýðuflokknum ef hann mætti í Viðey. Þorsteinn kvað strax uppúr með það að kvótaleiga væri ekki á dagskrá. Halldór Blöndal sem Þorsteinn náði einn- ig inn í ríkisstjórn kvað heldur ekki neina byltingu í vændum í landbúnaðarmálum. Sterki maðurínn ístjórninni? Þorsteinn virtist ráða mestu um skipan ráðuneytisins á endasprett- inum. Strax með fyrstu yfirlýsingum þessara manna var ljóst að málefnin hefðu ekki verið skýringin á þessari stjórnarmyndun af hálfu Alþýðuflokksins. í ráðuneyta- skiptingunni fór Alþýðuflokkurinn enn háðulegar út úr dæminu þannig að ekki getur sú skipting heldur verið skýring á þessari stjórn. „Mér sýnist hlutur Alþýðu- flokksins í atvinnu- og byggðamálum það lítill að enginn sannur jafnaðarmaður geti við unað“, sagði Pétur Sigurðsson verka- lýðsleiðtogi og varaþingmaður Alþýðu- flokksins í fyrsta maí blaði Alþýðublaðs- ins. í áðurnefndu viðtali Þjóðlífs við Jón Baldvin Hannibalsson sagði hann m.a.: „Það er margt sem bendir til þess að sjálfs- óánægja forystu Sjálfstæðisflokksins, meðvitund þeirra um það að þeir hafa klúðrað sínum tækifærum og brugðist sem pólitísk forysta, brjótist út með þeim hætti að í stað málefnalegrar umræðu leggi þeir höfuðáherslu á persónulegar ófræg- ingarherferðir. Þeir draga pólitík niður í skítinn í skjóli því sem næst alveldis þeirra í fjölmiðlum. Aðförin að mér á sl. hausti, aðallega á Stöð 2, var af því tagi. Hún var engin tilviljun heldur rækilega undirbúin og að henni komu margir menn úr innsta hring Sjálfstæðisflokksins...“ Nú hefur hann myndað stjórn með þessum „aðfar- armönnum“ öðru sinni. nnan þingflokka stjórnarinnar er tölu- verð óánægja með stjórnina sem bætist við strekking milli manna í báðum þing- flokkum. Innan Alþýðuflokksins höfðu vonir staðið til þess að Karl Steinar Guðnason yrði ráðherra auk þess sem tveir eða þrír þingmenn eru mjög óánægð- ir með þetta ráðslag allt. Innan Sjálfstæð- isflokksins höfðu margir talið eðlilegt að Eyjólfur Konráð, Matthías Bjarnason og þó umfram aðra Pálmi Jónsson yrðu ráð- herrar. Meðal landsbyggðarþingmanna er mikil óánægja með þéttbýlisáherslur ráð- herragengisins og málefnasnauður stjórn- arsáttmáli veldur báðum flokkum vand- ræðum. Formaður Alþýðuflokksins lýsti mjög eftir stefnu Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar. Stjórnarsáttmálinn svarar ekki þeirri spurningu, ekki heldur yfirlýsingar Davíðs Oddssonar en ef til vill yflrlýsingar Halldórs Blöndals og Þorsteins Pálssonar. Ýmsir telja að „kolkrabbinn“ eða „fjöl- skyldurnar fjórtán" eigi þessa ríkisstjórn. Og gárungarnir kalla Alþýðuflokkinn „fimmtándu fjölskylduna“. Menn óttast að hagsmunagæslueðli Sjálfstæðisflokks- ins verði viljanum til breytinga yfirsterk- ara. Óvissa um stefnu í efnahags og at- vinnumálum skapar ótta gagnvart þessari ríkisstjórn. Menn óttast vaxtafyllerí og verðbólgu, þar sem engin fagleg vinnu- brögð verði viðhöfð. Menn óttast ákveðna stöðnun án þess að stöðugleiki verði tryggður. En á hinn bóginn telja margir að þessi ríkisstjórn ætti að hafa pólitískar forsendur til að stokka upp í atvinnulífinu og gera ýmsa góða hluti. Reynslan ein sker úr um það. 0 Þessu hafnaði Alþýðuflokkurinn Ólafur Ragnar Grfmsson formaður Alþýðubandalagsins kynnti Jóni Baldvin Hannibalssyni formanni Al- þýðuflokksins í byrjun stjórnarmynd- unarviku nokkrar málefnaáherslur þar sem m.a. var gert ráð fyrir kvóta- leigu og að allur flskur færi á innlend- an markað. Málefnaáherslurnar höfðu verið kynntar í þingflokki Alþýðubandalag- sins. Þær voru sjö síðna lesning og at- hyglisverðar fyrirsakir opnunar og frjálsræðis. Þar var m.a. gert ráð fyrir að haldið yrði áfram að selja ríkisfyrir- tæki, stuðningur við evrópska efna- hagssvæðið, efla fríverslun við Banda- ríkin, Kanada og Kyrrahafslöndin samfara Evrópusamningum, löggjöf gegn einokun og hringamyndun, upp- stokkun á landbúnaðarkerfinu o.s.frv. o.s.frv. a 12 ÞJÓÐLÍF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.