Þjóðlíf - 01.04.1991, Qupperneq 25

Þjóðlíf - 01.04.1991, Qupperneq 25
STÆRÐ EFTIR STETT Stéttastaða foreldra hefur áhrif á vöxt skólabarna GUÐBJÖRG LINDA RAFNSDÓTTIR SVÍÞJÓÐ Nýleg sænsk rannsókn hefur leitt í ljós að stéttarstaða foreldra hefur áhrif á vöxt barna. Börn, þó einkum drengir úr lágstétt vaxa hægar en jafnaldrar þeirra úr mið- og hástétt. Þetta eru engin ný sannindi því fyrir seinni heimsstyrjöldina voru áhrif mismunandi þjóðfélagshópa á vöxt drengja vel þekkt en hurfu úr sögunni á 6. áratugnum samfara bættum lífskjörum. Lars Cernerud, skólayfirlæknir í Stokkhólmi hefur skoðað heilbrigðis- skýrslur 10.000 skólabarna sem hafa búið í Stokkhólmi. Þau eru fædd árin 1933, 1943, 1953 og 1963. Börn sem voru fædd árið 1943 og tilheyrðu lágstétt voru að meðaltali 2 cm styttri þegar þau hófu skó- lagöngu sína en jafnaldrar þeirra úr mið- og hástétt. Það þykir töluvert mikill mun- ur þar sem um er að ræða meðaltal. Tíu árum síðar reyndist hins vegar eng- inn mælanlegur munur til staðar á milli þessara þjóðfélagshópa og menn hafa allt fram til þessa talið að bætt lífskjör og ókeypis skólamáltíðir hefðu máð út þenn- an stéttamun fyrir fullt og allt. Svíar vökn- uðu því upp við vondan draum þegar í ljós kom að munur á lengd skólabarna eftir stéttastöðu foreldra hafði aftur skotið upp kollinum meðal barna sem fædd voru á 7. áratugnum. Þetta kom þeim sem að rann- sókninni stóðu svo á óvart að þau endur- tóku hana til að fullvissa sig um að niður- stöðurnar væru réttar og að hópar innflytj- enda hefðu ekki áhrif á þær. Ekki hefur tekist að skýra hvers vegna þessi stærðarmunur barna kemur síður fram hjá stúlkum en drengjum. Aðrar rannsóknir hafa þó leitt í ljós að vöxtur drengja er viðkvæmari fyrir áhrifum ým- issa umhverfisþátta en vöxtur stúlkna. Gunnilla Westin-Lindgren, prófessor við Kennaraháskólann í Stokkhólmi, hef- ur haft yfirumsjón með nefndri rannsókn. Hún segir að ekki sé um að ræða neitt sjálfvirkt samband á milli þjóðfélagshópa og vaxtar barna. Það sem skýri þennan mun séu þættir eins og mismunandi lífs- kjör, ólíkt mataræði og líkamleg hreyfmg. Hún bendir jafnframt á að þótt sænsk börn þjáist ekki af næringarskorti þá séu matarvenjur þeirra ekki alltaf eins og best verði á kosið. Sum þeirra borði ekki morg- unmat og dæmi séu um að börn borði ekki matinn sem þeim er boðið upp á í skólan- um. Hún nefnir einnig að sameiginlegar kvöldmáltíðir séu liðin tíð hjá mörgum fjölskyldum nema þá um helgar og þá séu oft borðaðar steikur og önnur kaloríurík fæða. iðurstöður ofannefndrar rannsókn- ar hafa orðið til þess að veitt hefur verið fjármagni til þess að rannsaka nánar mismunandi aðstæður sænskra skóla- barna í þjóðfélaginu nú á tímum og hugs- anleg áhrif þess á líkams- og félagsþroska þeirra. 0 VEL TRYGGT TR YGGINGA RFÉLA G Sarnafil þakið á hinu nýja húsi Sjóvá- Almennra er með 10 ára ábyrgð, og auðvit- að baktryggt hjá þeim sjálfum eins og öll önnur Sarnafil þök í landinu. Nokkur hús með Sarnafil-þökum: Húnavallaskóli, íþróttahús Álftamýraskóla, Húsmæðraskólinn á Laugarvatni, Iðnaðarmannahús v/Hallveigarstíg, K-bygging Land- spitala, KÁ Selfossi, Suðurlandsbraut 30, Skipholt 50, Stjórnsýslu- hús Isafirði, Flugturn Egilsstöðum, KS Sauðárkróki, Dvalarheimili Siglufirði, Þjóðarbókhlaða, ísgeymsla Vopnafirði, Njarðvíkurkirkja og fjöldi húsa um allt land. SIMI 621370
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.