Þjóðlíf - 01.04.1991, Side 43
RoboCop 3. Peter Weller hefur fengið
sig saddan af hlutverki vélmennisins og er
farinn en í hans stað kemur Robert nokk-
ur Burke sem hefur til þessa einungis leik-
ið í sjónvarpinu.
Roger Rabbitt II er í sigtinu og verður
litlu til sparað við framleiðsluna, því get ég
lofað. Fyrirtækið Warner Bræður ætla að
gera mynd um hundinn huglausa Scoobie
Doo. Það er erfitt að ímynda sér hver mun
fara með aðalhlutverkið en það væri áskor-
un sem DeNiro ætti að hugleiða.
Ofurhetjur allstaðar! Hér eru nokkrar
sem komast á breiðtjaldið á næstunni:
The Avengers, Kafteinn Ameríka, Dr.
Strange (Coppolla framleiðir!), Fantast-
ic Four, Járnmaðurinn, Sgt. Rock (fram-
leiðendur Joel Silver og Zemeckis), The
She-Hulk leikstýrð af Larry Cohen (gerði
The Blob), The Silver Surfer, Sub Mar-
iner, Þór, Watchmen leikstýrð af Terry
„Brazil“ Gilliam, Wolverine, X-Men...
o.s.frv. Fyrir hörðustu aðdáendur Marvel
hasarblaða ætti þessi listi að vera kærkom-
inn. Hvort þetta allt verður enn ein tísku-
bylgja úr furðuheimi Hollywood er erfitt
að spá um, ef svo færi verður gaman hjá
okkur aðdáendum teiknimynda/kvik-
mynda meðan á því stendur.
0
T)ave
jtevenj
© 1985
Upphaflega útgáfan af persónum í kvikmyndinni The Rocketeer, sem framleidd er af Disney.
og yfirbuga illmenni eins og hann lystir.
Það er nýliðinn Bill Campbell sem leikur
hetjuna en ástkonu hans leikur hin ítur-
vaxna Jennifer Connelly (lék á móti brúð-
um og Bowie í mynd Hensons, Labrin-
yth). Stórleikarinn Timothy Dalton er
með smá hlutverk í myndinni.
Önnur athyglisverð kvikmynd er The
Addams Family sem er byggð á vinsælli
fjölskyldu fullri skringilegra persóna. Það
eru leikarar á borð við Anjelica Houston
(Prizzies Honour), Raul Julia (The
Morning After) og Christopher Loyd
(Aftur til Framtíðar I,II og III) sem fara
með aðalhlutverkin. Leikstjóri er Barry
Sonnenfeld en hann er einn virtasti kvik-
myndatökumaður í bransanum í dag.
Nýjasta mynd hans er Misery. Listinn er
langur og margar fígúrurnar sem mynd-
irnar eru byggðar á eru ókunnugar íslend-
ingum sem ekki hafa haft mikið úrval af
hasarblöðum og teiknimyndasögum að
moða úr. Ástandið er samt að batna og
fyrir þá sem vilja kynna sér hetjur og pers-
ónur komandi mynda í upphaflegri útgáfu
sinni (þ.e.a.s. teikningum) þá er bókabúð
andspænis Hlemmi sem býður uppá mik-
ið og gott úrval slíkra bókmennta.
Eftirtaldar myndir eru mislangt á veg
komnar, sumar eru í framleiðslu og aðrar
ennþá fastar á pappírnum og óvíst hvort
úr nokkru verði en allar eru þær byggðar á
persónum og sögum kunnum okkur Is-
lendingum:
Blondie, eða Ljóska Moggans. Disney
á réttinn og stefnir á framleiðslu söng-
leiks.
The Flintstones (Steinaldarmennirn-
ir). Það verður heljarmennið John
Goodman (Always) sem leikur Fred og
væntanlega Jim Belushi í gervi Barneys.
Það er Amblin fyrirtæki Spielberg sem á
réttinn á þessari. Tökum var nýlega frest-
að fram til “92 eða “93.
Lukku Láki, leikinn af Terence Hill
(sá minni með bláu augun af bræðrunum).
Þetta verða sjónvarpsþættir í fyrstu, en
hver veit?
Anjelica Houston og Ravl Julia ígervum s/n
um í myndinni um Adamsfjölskylduna.
ÞJÓÐLÍF 43