Þjóðlíf - 01.04.1991, Page 50
VIÐSKIPTI
Aukin auðlegð bandarískra fjármála-
manna „seytlar“ ekki endilega út í þjóð-
hagkerfið segir Robert Reich, hún seytlar
út um allan heim. Menn fjárfesta þar sem
þeir eygja mesta ágóðavon. Og það er ekki
Eftir sitja íbúarnir og
þeir eru þjóðarauður í
orðsins fyllstu merkingu
segir Reich
hagfræðiprófessor.
Hann segir að hagsæld
þjóðar róðist í sífellt
auknum mæli af hugviti,
menntun og
kunnóttusemi vinnandi
manna og við þó þætti
þurfi að leggja æ meiri
rækt.
einungis fjármagn sem Bandaríkjamenn
flytja út, þeir flytja einnig út verksmiðjur,
tækjabúnað og rannsóknarstofur -þangað
sem hagnaðarvon er mest. Bandarísk
fyrirtæki juku fjárfestingu erlendis um 17
prósent í fyrra en aðeins um 6 prósent í
Bandaríkjunum sjálfum. Hewlett-Pack-
ard hannar og framleiðir tölvur í Frakk-
landi, Texas Instrumentsframleiðir mest-
an hluta örtölva sinna í Japan, og bíla-
verksmiðjur í Bandaríkjunum, Japan,
Ítalíu og Þýskalandi fléttast æ meir saman.
Þar að auki hefur erlend fjárfesting í
Bandaríkjunum sjálfum fjórfaldast frá ár-
inu 1980. Fjármagn ber með öðrum orð-
um litla virðingu fyrir landamærum. Ekki
er lengur hægt að reikna með því að fjár-
magnseigandinn haldi tryggð við hagkerfi
ættjarðarinnar öðrum fremur.
Eftir sitja íbúarnir og þeir eru þjóðar-
auður í orðsins fyllstu merkingu, segir
Menn fjórfesta þar sem
þeir eygja mesta
gróðavon.
Reich hagfræðiprófessor. Hann segir að
hagsæld þjóðar ráðist í sífellt auknum
mæli af hugviti, menntun og kunnáttu-
semi vinnandi manna og við þá þætti þurfi
að leggja æ meiri rækt. Þessvegna sé mikil-
vægt að efla mennta- og fræðslumál, auk
þess að bæta samgöngur í víðustu merk-
ingu, —það er að segja tölvu- og fjar-
skiptakerfi, auk vegakerfis og flugvalla,
svo dæmi séu nefnd. En hvernig stendur á
því að svo mikið veltur á hugviti og sam-
göngum?
Jú, svarar þjóðhagfræðingurinn, um
allan heim bera þeir hæstar tekjur úr být-
um sem beita sérþekkingu til að tengja
saman ákveðnar hugmyndir og ákveðna
markaði. Þar komi þrennt til:
Kunnáttusemi við að finna nýjar úr-
lausnir, það er að segja að setja hluti saman
á einstæðan hátt, sama hvort það eru
málmar, örtölvur, hugbúnaður, kvik-
myndahandrit eða hlutabréfapakkar.
Næst komi hæfileikar til að koma auga á
ný tækifæri, það er að segja að hjálpa við-
skiptavinum við að mæta einstæðum þörf-
um með sérhönnuðum úrlausnum, í stað
þess að búa til vöru sem síðan er reynt að
selja sem flestum.
í þriðja lagi þarf svo milligöngumenn
sem skilja nægilega vel fyrirliggjandi
tækni og markaði til þess að koma auga á
Bandarísk fyrirtæki juku
fjórfestingu eriendis um
17 prósent í fyrra en
aðeins um 6 prósent í
Bandaríkjunum sjólfum.
tækifæri, safna fjármagni og ráða rétta
menn til að glíma við úrlausnina.
Reich segir að fyrirtæki sem eigi ekki á
hættu að vera undirboðin á heimsmarkaði
Raunverulegur
framleiðslukostnaður
vörunnar er sífellt
minni hluti
söluverðsins. Það er
hugvitið,
sérþekkingin, reynsla
og markaðsþekking
sem skiptir sífellt
meira máli.
50 ÞJÓÐLÍF
J