Víkurfréttir - 11.10.2012, Síða 15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012 15
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA
UM TILLÖGUR STJÓRNLAGARÁÐS AÐ FRUMVARPI TIL
STJÓRNSKIPUNARLAGA 20. OKTÓBER 2012
Kjörskrá og kjörstaðir í Reykjanesbæ.
Kjörskrá í Reykjanesbæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur Stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga sem fram fer þann
20. október 2012 liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar frá og með 10. október 2012 fram að kjördegi.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint
til bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Kjörfundur fyrir íbúa í Innri Njarðvík, Höfnum og Ásbrú er í Akurskóla
Kjörfundur fyrir íbúa í Ytri Njarðvík er í Njarðvíkurskóla
Kjörfundur fyrir íbúa í Keflavík er í Heiðarskóla
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis
persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00.
Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Heiðarskóla
sími 420-4515.
Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar
Auglýsing um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar
vegna ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem
fram á að fara 20. október 2012
Mánudag 15. október til laugardags 20. október verður utankjörfundaratkvæðagreiðsla
sem hér segir á skrifstofum embættisins að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ
og Víkurbraut 25, neðri hæð, Grindavík:
Reykjanesbær:
Alla virka daga frá kl. 08:30 til 19:00
Á kjördag, laugardaginn 20. október, verður opið frá kl. 10:00 til 12:00.
Grindavík:
Alla virka daga frá kl. 8:30 til 13:00
Atkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum og dvalarheimilum aldraðra fer fram 16.-18. október nk.
skv. nánari auglýsingu á viðkomandi stofnunum.
Sýslumaðurinn í Keflavík
10. október 2012
Þórólfur Halldórsson sýslumaður