Víkurfréttir - 11.10.2012, Page 19
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012 19
Valgerður Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri menningarsviðs
og forstöðumaður safnsins, var
með stutta framsögu þar sem hún
stiklaði á skyldum safnsins, stefnu,
markmiðum og því umhverfi sem
opinbert safn starfar í. Í pallborði
sátu einnig Hermann Árnason for-
maður Félags myndlistarmanna
í Reykjanesbæ, Björgvin Björg-
vinsson formaður Ljósops félags
áhugaljósmyndara og Inga Þórey
Jóhannsdóttir sem sæti á í listráði
safnsins.
Tæplega 30 manns, margir úr hópi
sýnenda, tóku þátt í umræðunum
sem voru bæði gagnlegar og áhuga-
verðar. Helstu niðurstöður voru
þær að mikill vilji er hjá safninu til
að styðja vel við grasrótina og vera
í góðu samstarfi við menningar-
félögin í bænum. Sömuleiðis kom
fram að listiðkendur á svæðinu
eru almennt mjög ánægðir með þá
aðstöðu sem bærinn hefur skapað
þeim og telja hana með því besta
sem gerist á landinu. Hér fái allir að-
stöðu til að leggja stund á sína list-
sköpun án þess að þurfa að greiða
fyrir það dýrum dómum. Þátt-
takendur lýstu líka mikilli ánægju
með þetta framtak Listasafnsins
að standa fyrir samsýningunni Allt
eða ekkert og kölluðu eftir frekari
forgöngu Listasafnsins í að hrinda
verkefnum í þessum dúr af stað.
F rset kosningar 30. júní 2012
Þjóðaratkvæðagreiðsla,
laugardaginn 20. október 2012
Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram laugardaginn 20. október nk., samkvæmt þingsályktunartillögu Alþingis
frá 24. maí 2012, sem ályktaði að efna til ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur
Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá.
Atkvæðagreiðslan fer fram á grundvelli laga nr. 91/2010 um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna.
Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Sandgerðisbæjar í Vörðunni,
Miðnestorgi fram að kjördegi.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar.
Kosið er í Grunnskólanum í Sandgerði.
Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki.
Kjörstaður opnar kl. 9:00 og lokar kl. 22:00.
Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum í Sandgerði og í síma 899-6317.
Kjörstjórn Sandgerðisbæjar
Á tali hjá Listasafni
Reykjanesbæjar
L augardaginn 6. október stóð Listasafn Reykjanesbæjar fyrir málþingi í tengslum við yfirstandandi sýningu, Allt eða ekkert,
samsýningu 55 listamanna af Suðurnesjum, leikra og lærðra. Mark-
miðið með málþinginu var að velta fyrir sér hlutverki, stöðu og stefnu
Listasafnsins og tengslum og hlutverki safnsins í samstarfi við gras-
rótina á svæðinu sem er í miklum blóma.
ALMENNAR RAFLAGNIR
Viðhald og breytingar á raflögnum
Nýlagnir og endurnýjun raflagna
Rafmagnstöflur
Tölvu- og símalagnir
Sjónvarpslagnir
Dyrasímar
Ekkert sem tilheyrir raflögnum og rafmagni er okkur
óviðkomandi. Við leggjum áherslu á fagmannleg vinnubrögð
og góða umgengni.
Við komum á staðinn, gerum úttekt á raflögnum og ástandi
þeirra og veitum ráðleggingar um framhaldið.
Brekkustíg 16 - Reykjanesbæ - S: 612-5552, 611-5552 og 421-4426
Silja Dögg Gunn-arsdóttir, skjala-
stjóri og aðstoðar-
maður framkvæmda-
stjórnar HS Orku
og varabæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins
í Reykjanesbæ, hefur
ákveðið að gefa kost
á sér í 2. sæti Fram-
sóknarf lokksins í
Suðurkjördæmi fyrir
alþingiskosningarnar í vor.
Silja Dögg er 38 ára gömul, þriggja
barna móðir, búsett í Innri-Njarð-
vík og gift Þresti Sigmundssyni.
Silja Dögg er sagnfræðingur að
mennt og hefur m.a. starfað sem
blaðamaður, ritstjóri,
lögreglumaður, kenn-
ari og rekið eigið fyrir-
tæki.
Silja Dögg tók sæti
s e m v ar ama ð u r í
bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar vorið 2010
og er í stjórn Atvinnu-
og hafnaráðs Reykja-
nesbæjar.
Silja Dögg hefur hefur
verið í stjórn Framsóknarfélags
Reykjanesbæjar síðan 2010 og
á sæti í miðstjórn Framsóknar-
flokksins og í landsstjórn Lands-
sambands Framsóknarkvenna.
Að undanförnu hafa kennslu-ráðgjafar á Fræðsluskrif-
stofu Reykjanesbæjar og sér-
kennarar grunnskólanna skimað
lestrargetu nemenda í 9. bekk
með greiningartækinu LOGOS.
Niðurstöður skimunarinnar eru
nýttar til að bregðast við ef þær
sýna að lestrargetu er ábótavant hjá
einstaka nemendum svo hægt sé að
aðstoða þá, kennara þeirra og for-
eldra, við að bæta lestrarfærnina.
Tryggja þarf að nemendur með
lestrarerfiðleika fái aðstoð og geti
nýtt sér þá tækni og búnað sem í
boði er sem sífellt verður betri og
fjölbreyttari.
Einnig stendur til að skima lestrar-
getu nemenda í 6. bekk í nóvember
og í 3. bekk í janúar 2013.
Skimun á lestrargetu nemenda Silja sækist eftir
2. sæti Framsóknar
ÞaRFTU
að aUglýsa?
Hafðu samband í
síma 421 0001
eða á fusi@vf.is
REYKJANESBÆR FRAMBOÐ