Víkurfréttir - 11.10.2012, Qupperneq 21
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. október 2012 21
PISTILL
Kjøp din egen sjokolade neste gang!
É g var á ráðstefnu í Osló og stóra systir sem hefur verið búsett í
Noregi í 25 ár hafði bent mér á kaffihús
við Karl Johans götu þar sem fengist
gott kaffi og ljúffengt, handgert konfekt.
Fátt betra eftir langan vinnudag en að fá
sér góðan latte og súkkulaði svo ég fór
að ráðum hennar. Þegar ég kom inn á
þetta tiltekna kaffihús var setið við öll
borð og eitt andartak hélt ég að ég þyrfti
að sleppa þessari óskastund. Ég
ákvað að athuga hvort ég gæti
ekki tyllt mér hjá einhverjum
öðrum og spurði mann á miðjum
aldri sem sat einn við fjögurra
manna borð hvort ég mætti setj-
ast þar og hann hélt það nú. Fór
svo og pantaði mér latte og fimm
konfektmola og bað þjónustu-
stúlkuna að velja bestu molana
og pakka þeim þannig inn að ég
gæti tekið þá með mér. Því næst
fór ég á salernið en þegar ég kom
til baka var búið að setja kaffi-
bollann og molana á borðið en
ekki voru þeir innpakkaðir eins
og ég bað um heldur á penum kökudisk
á miðju borði. Norskan mín skilst þá
ekki betur en þetta, hugsaði ég með mér
en gat ekki beðið eftir að smakka þetta
yndisfagra góðgæti sem var greinilega
búið að nostra við og var því ekkert að
amast yfir þessu.
Ég kom mér vel fyrir með latteið og
súkkulaðið fyrir framan mig og hugsaði
mér gott til glóðarinnar. Valdi mér einn
konfektmola og svei mér þá ef það var ekki
rétt sem var alltaf verið að segja, súkkulaði
er allra meina bót. Vellíðan helltist yfir
mig og ég fann hvernig spennan minnkaði
í líkamanum. Þá gerðist nokkuð ótrúlegt,
þegar maðurinn sem sat við borðið gerir
sér lítið fyrir og fær sér einn konfektmola.
Já, já, tekur einn rándýran, handgerðan
mola og treður upp í sig eins og ekkert sé
sjálfsagðara. Mér krossbrá því fyrir utan
dónaskapinn þá var ég búin að ákveða að
ég fengi mér kannski tvo mola og rest-
ina tæki ég með mér og ætti til góða. En
nú voru bara þrír molar eftir og ég fann
ergelsið og spennuna hellast yfir mig. Ég
horfði á manninn hvössum augum um
leið og ég fékk mér annan mola og var að
vona að samviskubitið mundi buga hann
og ég fengi afsökunarbeiðni. Ég hugsaði
,,þið náðuð kannski völdum yfir Íslend-
ingum árið 1262 en þú skalt ekki halda
að þú komist upp með þetta núna“. En
hann var svellkaldur og horfði bara á mig
á móti og fékk sér ANNAN mola og ég
missti andlitið. Einn moli eftir og mann-
inum að takast að eyðileggja fyrir mér
þessa stund sem lofaði svo góðu í byrjun.
Ég beið ekki boðanna og hrifsaði síðasta
molann og tróð honum upp í mig, enn
með þann fyrri upp í mér. Með úttroðinn
munninn af súkkulaði horfði ég á mann-
inn með manndrápsaugum sem hafði þau
áhrif að hann stóð upp og settist við annað
borð. Þessi dónalegi Norðmaður var gjör-
samlega búinn að eyðileggja ,,minn-tíma“
þennan daginn og ég sá fyrir mér að næsti
pistill mundi fjalla um ,,norska yfirgang-
inn“ sem hefur verið viðloðandi síðan á
Sturlungaöld. Óforskammaðir Norðmenn
sem veigra sér ekki við að valta yfir allt
og alla, stela konfektmolum af saklausum
Íslendingum af því þeir eru svo nískir á
olíuauðinn sinn. Hvað næst, kaffið manns
drukkið og slefað ofan í vatnsglasið! Hann
mátti bara ekki komast upp með þetta.
Hvernig átti ég að bregðast við - mér
fannst þjóðarstoltið liggja að veði.
Ég fylgdist með manninum og sé þegar
þegar þjónninn kemur með stóran bolla
af heitu súkkulaði með rjóma og setur
fyrir framan hann og pollrólegur hrærir
hann í bollanum eins og ekkert glæpsam-
legt hafi átt sér stað. Ég finn að ég er búin
að fá nóg, tek saman dótið mitt og labba
í átt að útidyrunum. Áður en þangað var
komið stoppaði ég við borð mannsins,
beygi mig niður að honum, horfi djúpt í
augu hans, hrifsa af honum skeiðina og
hræri með látum í bollanum svo slettist
upp úr. Tók mér síðan gúlsopa þannig að
ég fann hvernig rjómaskeggið lagðist á efri
vörina og súkkulaðitaumarnir láku niður
munnvikin og sagði svo ákveðin: kjøp din
egen sjokolade neste gang! Hann horfði á
mig skelfingu lostinn en ég lét það ekki á
mig fá. Ég labbaði örugg í fasi sem fulltrúi
íslensku þjóðarinnar, í gegnum kaffihúsið
í átt að dyrunum, og skilaboðin voru skýr:
svona nokkuð látum við Íslendingar ekki
bjóða okkur.
Ekki laust við að ég titraði örlítið þegar ég
nálgaðist útidyrnar og brá þegar það er
kippt í annan handlegginn og á móti mér
stendur þjónninn og segir: du må ikke
glemme din sjokolade! Ég missti mátt-
inn í fótleggjunum á sama tíma og hann
rétti mér fallega innpakkað konfektið! Það
þýddi þá að konfektmolarnir á borðinu
voru í eigu....... tilgi meg, alle mine norske
venner!
Þangað til næst – gangi þér vel.
Anna Lóa
Fylgstu með mér
www.facebook.com/Hamingjuhornid
ANNA LÓA
ÓLAFSDÓTTIR
SKRIFAR
HamIngjUHoRnIð
Anna Lóa
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA
Með vísan til 5. gr. laga um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, nr. 91/2010, sbr. ályktun Alþingis
24. maí 2012, fer fram ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur Stjórnlagaráðs að frumvarpi til
stjórnarskipunarlaga og tiltekin álitaefni þeim tengd, 20. október nk.
Kjörskrá liggur frammi á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, 2. hæð.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar.
Kjörfundur verður í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2. Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00.
Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í grunnskólanum á kjördag.
Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Yfirkjörstjórn Grindavíkurbæjar
UM TILLÖGUR STJÓRNLAGARÁÐS AÐ FRUMVARPI
TIL STJÓRNSKIPUNARLAGA, 20. OKTÓBER 2012
Ökumenn við
skóla til sóma
Lögreglan á Suðurnesjum hélt uppi eftirliti með umferð við
grunnskóla og leikskóla í um-
dæminu í vikunni. Allir þeir öku-
menn sem áttu leið um viðkom-
andi götur voru í öryggisbeltum
og enginn ók yfir hámarkshraða.
Ástand var því í góðu lagi að öllu
leyti nema því að nokkrir foreldrar
höfðu lagt bílum sínum uppi á
gangstétt við einn leikskólann og
skapað þar með óþægindi fyrir
gangandi vegfarendur. Lögregla
ræddi við ökumennina, sem
þetta gerðu og lofuðu þeir að
láta þetta ekki koma fyrir aftur.
Mannlaus bíll
með kerru rann
tugi metra
Mannlaus sendibifreið með kerru aftan í lagði af stað
frá útgerðarfyrirtækinu Vísi í
Grindavík fyrir helgi, rann niður
bratta brekku, áfram yfir götu og
hafnaði á grjótgarði við höfnina.
Bílnum hafði verið lagt á bíla-
stæði við Vísi og rann hann tugi
metra áður en grjótgarðurinn
stöðvaði ferð hans. Af förum
eftir hann að dæma hafði hann
rétt sneytt fram hjá ljósastaur í
brekkunni. Farmur var á kerr-
unni sem hann dró. Minni háttar
skemmdir urðu á bíl og kerru.