Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.10.2012, Page 22

Víkurfréttir - 11.10.2012, Page 22
fimmtudagurinn 11. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR22 2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR Þjónustumiðstöðin Nesvöllum Vikan 11. - 17. okt. nk. • Bingó • Gler-, keramik- og leirnámskeið • Handavinna • Leikfimi - dans- boltaleikfimi. • Línudans • Félagsvist • Tölvuklúbbur • Bridge • Hádegismatur • Síðdegiskaffi • Bókaútlán Léttur föstudagur 12. október nk. Dönsum saman á Nesvöllum föstudaginn 12.október n.k. kl. 14:00 Línudanshópur frá Glóð í Kópavogi kemur í heimsókn ásamt Óla Geir danskennara. Allir velkomnir Nánari upplýsingar í síma 420 3400 eða á www.nesvellir.is/ SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0000 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS ÓSKAST Íbúðarhúsnæðið óskast. Við erum par með 2 börn sem óskum eftir 4 herbergja íbúð eða stærri í Keflavík sem fyrst, helst í Heiðarskólahverf inu. Höfum meðmæli ef þess er óskað. Upplýsingar í síma 869 2112. Íbúð óskast. 3 - 4ra herbergja íbúð óskast til leigu í Keflavík eða Njarðvík. Er með hund. Uppl. í síma 691 9847. ÞJÓNUSTA Vagnageymslur í vetur hjá Alex ferðaþjónustunni , k r. 7 5 0 0 , - l e ngd ar m e t e r i n n tímabilið. Uppl. alex@alex.is eða 421 2800 á skrifstofutíma. Geymsluhúsnæði Geymslupláss fyrir tjaldvagna, fellihýsi og húsbíla til leigu. Upplýsingar í síma 861 9339. Vandaðar gelneglur! Jóa heiti ég og er naglafræðingur. Er að gera gelneglur í heimahúsi í Njarðvík. Bókanir/ upplýsingar í síma 772 8296. GÆLUDÝR Hundapössun ! Hæ hæ ég heiti Hafrún Júlía og er 9 ára frá því í júlí. Bý í Reykjanesbæ. Ég er til í að passa hunda ef þið eruð í vandræðum með pössun. En hundurinn má ekki vera stór af því að þá ræð ég ekki við hann. Ef þú vilt hringja í mig er síminn hjá mér 774 5266 og ég tek 500 kr á klukkutíma. En ef hundurinn er óþægur tek ég 1000 kr. Kortið prýðir vatnslitamynd eftir Stefán Jónsson Minningarsjóður Vilhjálms Ketilssonar Minningarkortin fást hjá Víkurfréttum, Krossmóa 4a, Reykjanesbæ. Opið alla virka daga kl. 09-17 PÓSTKASSINN n Björgvin Jónsson skrifar: Þegar ég var yngri heyrði ég reglulega talað um ungmenna- félagsandann. Þá var átt við félagsskap þar sem fólk kom saman og vann sjálfboðavinnu. Ég man eftir því að fót- boltavöllurinn í mínum gamla heimabæ Garðinum, var alfarið reistur í sjálfboðavinnu, eins og fótboltavöllurinn í Njarðvík. Allir lögðu sitt af mörkum og skipti engu hvort um var að ræða fyrirtæki, konur eða karla. Hvað er ungmenna- félagsandi? Ég hafði ekki heyrt þetta orð í háa herrans tíð fyrr en mágur minn stofnaði Júdódeild Njarðvíkur þar sem ungmennafélagsandinn átti að vera í hávegum hafður. Hugsjónin höfð að leiðarljósi, eins og áður fyrr. Hann vildi byggja upp deild sem gæti orðið sjálfbær og þar sem öll börn og ungmenni hefðu jafnan rétt til að stunda íþróttina, hver sem staða þeirra eða foreldra/ forráðamanna væri. Hugmyndin var sú að þjálfarar, foreldrar og börn ynnu saman að því að skapa íþróttafélag, byggða á þessum margumrædda ungmennafélags- anda. En hvaðan er hugtakið ungmennafélagsandi komið? Á sambandsþingi Ungmennafélags Íslands árið 2005 var ungmenna- félagsandinn skilgreindur á þennan hátt: Ég er heiðarleg(ur) og hlýði samvisku minni skynsam- lega. Ég treysti öðrum og mér er treystandi. Ég veit að ég hef ekki alltaf rétt fyrir mér, þess vegna hlusta ég og læri. Ég ber virðingu fyrir mér og öðrum og vil að aðrir beri virðingu fyrir mér. Ég anda að mér hreinu lofti, borða hollan mat og hreyfi mig reglulega svo að mér líði vel. Ég nota ekki vímuefni. Ég tek þátt, mér og öðrum til ánægju. Ég stefni á sigur, samgleðst með sigurvegurunum og get sett mig í spor þeirra sem verða undir. Ég lifi lífinu lifandi og nýt þess sem á vegi mínum verður. Ég vil deila með öðrum og skila því sem lífið lánar, bættu til komandi kynslóða. Í kjölfarið var Björn B. Jóns- son, þáverandi formaður UMFÍ spurður nánar um skilgreiningu ungmennafélagsandans og hvernig hann fléttist inn í nútímann. Hans svar var svona: “Ungmenna- félagsandinn hefur aldrei virkað betur en í dag, í nútímaþjóð- félaginu, þegar alls staðar leynast hættur fyrir ungt fólk. Andinn virkar þannig að mörg þúsund ungmennafélagar vinna sjálf- boðavinnu um allt land og svo virðist sem ungmennafélögin séu tilbúin til að leggja mikið á sig til að unga fólkið fái sín tækifæri.” Allir sitja við sama borð Þjálfarar og stjórn Júdódeildar Njarðvíkur hafa undanfarið ár lagt á sig mikla vinnu til að gefa öllum börnum og ungmennum á svæðinu tækifæri til að iðka júdó. Ákveðið var að innheimta ekki æfingagjöld og hefur deildin því alfarið verið rekin af styrktarað- ilum og sjálfboðavinnu. Við hjá Júdódeild UMFN höfum ítrekað verið spurð út í hvenær við ætlum að fara að rukka inn æfingagjöld. Því er auðsvarað. Svo lengi sem þjálfarar, foreldrar og styrktaraðilar vinna saman að því að halda deildinni gangandi mun Júdódeild UMFN halda áfram að þjálfa börn og unglinga án endurgjalds. Við viljum blása lífi í ungmennafélagsandann á ný og gefa öllum börnum í Reykjanesbæ og nágrenni tækifæri til að þjálfa íþrótt sem eflir líkamlegt, félagslegt og andlegt heilbrigði. Með því að innheimta engin æfingagjöld sitja ALLIR við sama borð. Júdódeild UMFN mun því leyfa börnum og unglingum að æfa án endur- gjalds eins lengi og mögulegt er. Áframhaldandi upp- bygging deildarinnar Við megum ekki gleyma grunn- gildum ungmennafélagshreyf- inganna. Ég tel að það hafi aldrei verið mikilvægara en nú að standa vörð um íþróttaiðkun barna og unglinga og byggja yngstu kyn- slóðinni þannig bjartari framtíð. Íþróttir og félagsstörf eru frábær forvörn gegn sjúkdómum, fíkn og félagslegum kvillum og því nauðsynlegt að möguleiki barna og unglinga til að stunda íþróttir sé ekki skertur vegna fjárhagslegra stöðu foreldra. Það eru vissulega mjög margir sem sinna óeigin- gjörnu starfi fyrir hin ýmsu félög og deildir en alltaf vantar gott fólk til starfa við góð málefni. Ég vil því hvetja alla Suðurnesjamenn að taka höndum saman og finna ung- mennafélagsandann hjá sér aftur. Björgvin Jónsson, formaður Júdódeildar UMFN Hver stal ungmenna- félagsandanum? Vin sæ lt Mest lesið á vf.is Fréttir | 04. október 2012 Barn tekið úr barnavagni - fannst í næsta húsgarði Mannlíf | 08. október 2012 Gaf tvær milljónir króna til tölvu- kaupa Fréttir | 08. október 2012 Með 29 ketti á heimilinu Íþróttir | 04. október 2012 Guðjón Þórðar rek- inn frá Grindavík Vefur Víkurfrétta var 19. mest lesni vefurinn á Íslandi í liðinni viku! síðustu 7 sólarhringa Þann 13. október 2012 munu millj-ónir manna á vegum Heimssam- bands KFUM og KFUK koma saman til þess að setja nýtt heimsmet. Heimsáskorun KFUM – 2012 „Hoop Springs Eternal“ er viðburður skipu- lagður þann 13. október 2012 til þess að fagna starfi KFUM og KFUK um allan heim á sviði valdeflingar ungs fólks. KFUM og KFUK félög munu skipuleggja viðburði þar sem að öllum þátttakendum og fleirum verður boðið að skjóta á körfu. Viðburðirnir verða fjölmargir á þúsundum staða um allan heim. Viðburðurinn hefst í Nýja-Sjálandi kl. 8.00 á staðartíma að miðnætti sama dag á Hawai. Þennan dag verða fjöl- mörg samfélög og fjöldi menningar- heima tengd saman í gegnum beina veflýsingu og samfélagsmiðla. Við hér á Íslandi tökum vitanlega virkan þátt í þessum stórmerkilega viðburði og verðum með dagskrá á Akureyri, í Reykjanesbæ, Vestmanna- eyjum, Hveragerði, Borgarnesi og í Reykjavík. Hér í Reykjanesbæ ætla bæði börn og unglingar ásamt leiðtogum sínum að vera áberandi á ýmsum stöðum hér í bæ og bjóða fólki að taka þátt í átakinu. Hver hópur hefur útbúið sitt eigið körfuboltaspjald eftir sínum hugmyndum og með því kynna bæði KFUM og KFUK starfið og mikilvægi íþrótta og hreyfingar. Heimsáskorun KFUM og KFUK Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa okkar, Garðars Brynjólfssonar, Krossholti 15, Keflavík. Helga Auðunsdóttir, Anna Guðrún Garðarsdóttir, Sigurjón Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. SVIÐAVEISLA KEFLAVÍKUR Körfuknattleiksdeild Keflavíkur mun reiða fram alvöru sviðaveislu föstudaginn 19. október nk. í félagsheimili Keflavíkur að Sunnubraut 34. Sviðaveislan hefst kl. 19:30 en húsið opnar 18:30. Framreidd verða bæði heit og köld svið ásamt dýrindis meðlæti. Látum ekki þjóðlegan herramannsmat íslenskra forfeðra vorra framhjá okkur fara! Verð: kr. 3500,- á mann. Nánari upplýsingar og miðapantanir gefa: Ólafur Ásmundsson - s: 664 0375 - oli@velao.is Birgir Már Bragason - s: 618 5155 - biggi@keilir.net

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.