Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.03.2007, Page 1

Bæjarins besta - 29.03.2007, Page 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk Fimmtudagur 29. mars 2007 · 13. tbl. · 24. árg. – sjá viðtal í miðopnu við hressar konur á Ísafirði sem standa fyrir óhefðbundinni feg- urðarsamkeppni. Þær segja loðin bök geta verið kynþokkafull og það séu ekki einungis „brjálaðir femínistar“ sem finnist hefðbundnar fegurðarsamkeppnir gagnýnisverðar Óbeisluð fegurð Á tímabilinu frá ágúst í fyrra fram til loka janúarmánaðar í ár seldust 34 fasteignir í fjöl- býli á Ísafirði samkvæmt verð- sjá fasteigna. Tíu eignir voru 2 herbergja og jafn margar voru 3 herbergja. Átta fast- eignir voru 4 herbergja og tvær voru 5 herbergja. Meðal- talsfermetraverð var ríflega 80 þúsund. Á sama tímabili ári fyrr seldust 23 fasteignir í fjöl- býli, og er aukningin því um 48% á milli ára. Taka verður þó fram að þeg- ar sölutölur eru þetta lágar þarf lítið til að þær fari á flug, upp eða niður. Meðaltalsfermetra- verð árið á undan var ríflega 76 þúsund, og jókst verð því um 5,4% á milli ára. Virðist þetta vera áframhald á sömu þróun sem átt hefur sér stað síðastliðin ár, það er að tölu- verð aukning sé í seldum íbúð- um og að verð séu að hækka. Fasteignaverð á svæðinu hafði staðið nokkurn veginn í stað um nokkuð árabil á með- an fasteignaverð, t.d. á höfuð- borgarsvæðinu, hækkaði. Verðsjá fasteigna birtir upp- lýsingar um verð íbúðarhús- næðis samkvæmt kaupsamn- ingum. – eirikur@bb.is Ísafjörður. Sala á eignum í fjölbýli eykst og verð hækkar Tveir ungir menn lentu í átökum á hafnarsvæðinu á Ísafirði undir lok síðustu viku og hlutu einhver meiðsl af. Einnig mun bifreið hafa skemmst í átökunum og hafa kærur verið lagðar fram vegna málsins. Eitt fíkniefnamál kom upp hjá lögreglunni á Ísa- firði í síðustu viku þar sem lagt var hald á áhöld til fíkniefnaneyslu og leyfar af fíkniefnum. Á fimmtudag í síðustu viku ók flutningabifreið aftan á jeppabifreið á Vatns- fjarðarvegi í Ísafjarðar- djúpi. Bifreiðarnar munu hafa skemmst lítið og gátu báðir aðilar haldið áfram för sinni, annar suður og hinn vestur. Skemmdu bíl í átökum

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.