Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.03.2007, Síða 9

Bæjarins besta - 29.03.2007, Síða 9
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 9 Gjaldkeri – Þjónustufulltrúi Laust er til umsóknar starf gjaldkera hjá Vátryggingafélagi Íslands, Ísafirði. Í starfinu felst meðferð fjármuna, trygg- ingaráðgjöf, sala vátrygginga og önnur almenn afgreiðsla. Um er að ræða hálfs dags starf, eftir hádegi. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur jákvætt viðmót, ríka þjónustu- lund og reynslu af skrifstofustörfum. Við- komandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skilað til skrif- stofu félagsins að Hafnarstræti 1, Ísafirði. Nánari upplýsingar má fá hjá Guðna Guðnasyni í síma 660 5094. Ræsting Hjá Heilbrigðisstofnuninni Ísafjarðarbæ er nú nú laus strax staða starfsmenns í ræstingu. Vinnutími er frá kl. 07:30 -15:30 virka daga og aðra hvora helgi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Verkalýðsfélags Vestfirðinga og stofnana- samningi HSÍ. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Fjórðungssjúkrahússins á Ísa- firði. Öllum umsóknum verður svarað er ráðið hefur verið í starfið. Frekari upplýsingar gefur Guðrún Krist- jánsdóttir, ræstingarstjóri í síma 450 4500. Einbýlis- hús til sölu! Til sölu er húseignin að Seljalandi 21 á Ísafirði. Húsið er 192m² með kjallara undir hluta af húsinu. Sjón er sögu ríkari! Upplýsingar gefur Halldór Sveinbjörns- son í síma 894 6125. Flæddi inn í kjallara sjúkrahússins Slökkvilið Ísafjarðarbæjar var kallað út um klukkan 21:30 á fimmtudagskvöld í síðustu viku vegna vatns sem flæddi inn í kjallara Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði. Ástæða flóðsins var stífla í frárennslisröri sem olli því að dælubrunnur við Hafnar- stræti stíflaðist. Á heimasíðu slökkviliðsins kemur fram að í fyrstu hafi gengið vel að halda aftur af vatnsflaumnum en þegar háflóð var í kringum miðnætti, var vatn farið að flæða upp um niðurföll í kjallara sjúkrahússins. Vatnssugum og minni dælum var beitt og tókst að ná gólfi þurru um klukkan 02:00 eftir miðnætti. Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann í fimm mánaða fangelsi fyrir skatta- og hegningarlagabrot,en refs- ingin var skilorðsbundin til tveggja ára. Þá var manninum gert að sök að hafa brotið lög um virðisaukaskatt annars vegar og um staðgreiðslu op- inberra gjalda hins vegar, en hann var framkvæmdastjóri einkahlutafélags sem tekið var til gjaldþrotaskipta með úr- skurði Héraðsdóms Vest- fjarða fyrir þremur árum. Maðurinn stóð ekki sýslu- manninum á Patreksfirði skil á virðisaukaskatti, sem inn- heimta bar í nafni einkahluta- félagsins á árunum 2001 til 2004, því sem nemur tæpum 50 milljónum króna. Þá stóð hann heldur ekki skil á stað- greiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélags- ins á árunum 2003 og 2004, sem nemur rúmum 8 milljón- um króna. Ákærða var gert að greiða 70.000.000 króna sekt til rík- issjóðs og komi tólf mánaða fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins. – thelma@bb.is Fimm mánaða fangelsi fyrir skatta- og hegningarlagabrot Menningarráð Bolungar- víkur sótti á dögunum um st- yrk til Pokasjóðs til þess að gefa út myndskreyttar sögur af landnámskonunni Þuríði Sundafylli. Sótt var um 1,2 milljónir króna, en gert var ráð fyrir 250 þúsund króna mótframlagi frá menningar- ráði. Þuríður Sundafyllir var landnámsmaður í Bolungar- vík og bjó í Vatnsnesi. Um nafngift Þuríðar segir í Land- námabók: „Hún var því kölluð sundafyllir, að hún seiddi til þess í hallæri á Hálogalandi, að hvert sund var fullt af fisk- um. Hún setti og Kvíarmið á Ísafjarðardjúpi og tók til á kollótta af hverjum bónda í Ísafirði.“ Þuríður var að auki bæði göldrótt og skyggn, og að því er fram kemur á vefnum bolungarvik.com hafði hún einstaka hæfileika til að eiga samskipti við aðra, bjó yfir mikilli réttlætiskennd en var skaprík og gaf sig ekki þegar hún taldi sig vera órétti beitta. Á Vestfjarðavefnum er rakin sagan af því þegar hún leyfði bróður sínum, Þjóðólfi, að eiga jafn mikið land af sínu og hann gæti girt fyrir á einum degi. „Þjóðólfur tók til óspillt- ra málanna og fyrir sólarlag tókst honum að leggja garð frá Stiga fyrir Hlíðardal og hálfan Tungudal. Af þessu spratt ófriður milli þeirra syst- kina og deildu þau um eignar- haldið á Tungudal. Að lokum lögðu þau hvort á annað að verða að steindrangi og lét Þuríður fylgja þá ósk að sem allra flestir fuglar myndu skíta á Þjóðólf. Hann hefndi sín með því að leggja á Þuríði að á henni skyldu vindar gnauða mest. Þuríður sundafyllir varð að bergstandi í norðurhorni Ós- hlíðar og hrundi að hálfu haustið 1836. Þjóðólfur varð að hins vegar að klettadrangi á skeri sem fjölmargir fuglar sátu jafnan á. Hann hvarf sömu nótt og Þuríður hrundi og töldu menn að þau hafi þá verið leyst úr álögum. Einnig er í frásögur fært að við belti Þuríðar hafi hangið lyklar. Hver sá sem hefði getað klifið dranginn og fundið lyklana, hefði getað opnað kistu með dýrgripum hennar sem er falin í rústum landnámsbæjarins.“ Vilja gefa út myndskreyttar sögur um Þuríði Sundafylli Bolungarvík.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.