Bæjarins besta - 29.03.2007, Síða 11
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 11
Matthildur: „Ég hef fengið athugasemdir eins og
„hvernig ætlið þið að skera úr um ef þið eruð með
tvo feita hver er fallegri“ og mitt svar hefur verið
„Hvernig er það gert við tvo mjóa?“ Við hljótum
að geta fundið álíka heimskulega aðferð.“
athugasemdir eins og „hvern-
ig ætlið þið að skera úr um ef
þið eruð með tvo feita hver er
fallegri“ og mitt svar hefur
verið „Hvernig er það gert við
tvo mjóa?“ Við hljótum að
geta fundið álíka heimskulega
aðferð. Ég kemst að því þegar
ég tala við fólk að það eru
ótrúlega margir fastir á ein-
hverri hrikalega mjórri braut.
Eins og dæmið af Lagerfeld
sannar þegar hann rauk bara
upp og skellti hurðum af því
að H & M stækkaði fötin hans
upp í stærðir sem venjulegt
fólk getur notað.“
Gréta: „Já með athyglina,
þá hefur hún verið að aukast
að utan en ekki verið eins mik-
il hér heima á Íslandi.
Íris: „Ég vil kannski meina
að við höfum ekki haft meira
að segja í bili eftir fyrsta
hring.“
Gréta: „Hérna heima var
þetta bara bóla, en úti vilja
þeir eitthvað meira.“
Íris: „Mér finnst bara eðli-
legt að þegar það kemur meira
frá okkur þá verður fjallað
frekar um það.“
Matthildur „Svona eru bara
fjölmiðlar, fólk veigrar sér við
að spyrja gagnrýninna spurn-
inga.“
Íris: „Ég held að ein ástæða
þess að við höfum fengið
svona mikla athygli að utan
að fólki er bara orðið mis-
boðið. Það eru allir komnir
með nóg af einhverjum BMI
staðli og 0 stærðum. Úti er
umræðan um þessa hluti bara
komin á annað stig en hér
heima.“
Matthildur: „Þarna hefur
fólk meiri áhyggjur af því að
einhver gæti verið í lífshættu
út af þessu.“
Gréta: „Það hefur gerst að
þegar svona gagnrýnisraddir
heyrast að þá er það bara tekið
sem væli í „enn einum femín-
istanum“ og þannig er umræð-
unni sópað út af borðinu.“
Íris: „Við sjáum reyndar í
dag stelpur sem hafa verið að
taka þátt í þessu segja „það er
fullt athugavert við þetta, þetta
stuðar meðal annars að átrösk-
un. Þó það séu eflaust þættir
sem spila inn í hjá viðkvæm-
um einstaklingum, en útlits-
dýrkun er stór áhættuþáttur.“
Það er gott að vita að það eru
fleiri í þessu.“
– Nú hafið þið persónulega
fengið mjög góð viðbrögð við
þessu framtaki ykkar, hvað
með neikvæð viðbrögð, eitt-
hvað orðið varar við slíkt?
Matthildur: „Það hefur ekki
verið neitt áberandi. Það hefur
ein komið til mín og spurt af
hverju við berjumst ekki fyrir
einhverju þarfara eins og of-
fitu og ég hef þurft að eyða
einni færslu úr gestabókinni á
ensku síðunni, annars er það
ekkert. Það getur alveg eins
verið af því að fólk hefur ekki
áhuga á rökræðum um þetta.“
Íris: „Kannski sér fólk líka
að þetta eru ekki persónulegar
árásir á neinn, heldur erum
við að koma að þessu út frá
því að þetta sé samfélags-
vandi. Ekki með of miklum
látum heldur viljum við hafa
gaman af þessu líka.“
Matthildur: „Við erum í
raun ekki að segja neitt sem
ekki hefur verið sagt áður, þó
að keppnin sem slík sé ný
hugmynd.“
Gréta: „Ef þú vilt fá fólk til
að hlusta á þig, prófa að taka
þetta út frá jákvæðninni.“
Matthildur: „Háðið er rosa-
lega sterkt vopn.“
Gréta: „Við tökum smá úr
öllu háðinu, gríninu og alvör-
unni. Við reynum að hafa allt
með.
Matthildur: „Síðan erum
við bara öll í fullri vinnu og
höfum hreinlega ekki haft
tíma til að elta uppi allt sem
sagt er um keppnina. Það getur
vel verið að það sé fullt af
einhverju skítkasti á hana
þarna einhversstaðar úti. Við
erum bara ekkert að leita eftir
því.“
Eygló: „Og höfum engar
áhyggjur af því.“
Gréta: „Það er ekki eins og
við viljum ekki heyra nei-
kvæðu raddirnar. Það væri
bara gott að geta snúið ein-
hverjum.“
Íris: „Líka ef það gerist þá
er bara að hafa ekki of miklar
áhyggjur af því.“
Matthildur: „Ég er reyndar
svolítið hissa, því ég átti von
á meira skítkasti.“
Gréta: „Af því að þetta er
viðkvæmt og það eru eflaust
margir til í að vera með skoðun
á þessu.“
Íris: „Kannski er það bara
af því að við erum að gera
þetta öðruvísi en áður hefur
verið gert. Nálgunin er ný þó
við missum ekki alvöruna úr
þessu.“
Styrkja Sólstafi
– Hvernig er með heimild-
armyndina?
Matthildur: „Það mál er
bara á frumstigi.“
Eygló: „Það var maður sem
hafði samband við okkur.
Hann hefur gert nokkrar heim-
ildarmyndir áður. Til að mynda
eina um konu sem vaknaði úr
dái eftir 19 ár.“
Íris: „Ég veit ekki hversu
mikið er hægt að segja um
þetta í bili, en hann hefur sýnt
áhuga og við erum í viðræðum
við hann.“
Matthildur: „Þetta er í burð-
arliðnum og hann er áhuga-
samur. Hvernig hann setur
mál sitt fram bendir til þess að
hann vilji fjalla um þetta út
frá sama punkti og við.“
Íris: „Hann nær því alveg
hvað við erum að fara.“
– Hvernig hefur svo gengið
að fá keppendur til að taka
þátt?
Matthildur: „Við erum núna
að fara að staðfesta keppend-
ur. Það eru 12 sem eru skráðir
núna. Þar á meðal eru ein-
hverjir sem skráðu sig í upp-
hafi og héldu að þetta yrði
lítið kósýkvöld. Þeir eru svo-
lítið að velta fyrir sér núna
hvort þeir eigi að þora, þar
sem umfjöllunin hefur verið
miklu meiri en þau bjuggust
kannski við. Við munum ekki
þjarma að neinum, þetta er
allt vinsamlegt og með virð-
ingu gagnvart fólki. Allt grín
sem kann að spinnast upp í
kringum keppnina verður ekki
sett gagnvart keppendunum
sjálfum. Skemmtiatriðin á
kvöldinu verða grínið þegar
að þar að kemur.“
– Hvað með framhaldið?
Matthildur: „Það er frekar
leiðinlegt til þess að hugsa
sérstaklega þegar maður er
búinn að vera að berjast í þessu
lengi að eftir 18.apríl þá verði
þetta bara búið. Án þess að
það sé búið að ákveða neitt í
þeim efnum þá sé ég fyrir mér
að þetta verði árviss viðburð-
ur. Að kyndilinn verði færður
eitthvað áfram eða í kjölfarið
á keppninni verði stofnuð
samtök sem vinna gegn þessu
á faglegum nótum.“
– Hvað með styrktaraðila?
Íris: „Við viljum nú endi-
lega skora á fyrirtæki og ein-
staklinga að leggja málefninu
lið.“ Fyrir þá sem vilja fylgjast
með gangi mála í Óbeislaðri
fegurð, þá er hægt að fylgjast
með á www.obeislud.it.is.
Aðstandendur keppninnar þau Eygló Jónsdóttir, Íris Jónsdóttir, Guðmundur Hjaltason, Margrét Skúladóttir og Matthildur Helgadóttir.